Tíminn - 19.08.1982, Síða 3

Tíminn - 19.08.1982, Síða 3
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982 fréttir Árásarmaðurinn fannst í gærmorgun í hlíðum Hafrafells neðan við lllukletta: „ÉG ÆTIA Nð EKKI AÐ NOTA ÞETTA A VKKUR” - sagði hann þegar hann afhenti leitar- mönnum vopn sín, riffil og haglabyssu ■ „Ég ætla nú ekki að nota þetta á ykkur, strákar mínir,“ sagði Grétar Sigurður Arnas, maðurinn sem leitað var að í sólarhring eftir ódæðið á Skeiðarársandi, þegar leitarmenn fundu hann og báðu hann að afhenda vopnin, sem hann hafði. Snorri Magnússon frá Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði varð fyrstur til að koma auga á manninn, þar sem hann var í grjótbyrgi sem hann hafði gert sér. „Fyrstu orðaskiptin voru að ég spurði hann hvort honum væri ekki kalt,“ sagði Snorri í viðtali við Tímann. „Svo sagði ég að ég ætlaði að fá hjá honum riffilinn. Hann sagði mér að vara mig á honum, því hann væri hlaðinn og rétti mér hann mótmælalaust. Síðan afhlóð hann hagla- byssuna sjálfur og rétti okkur hana svo.“ - Sýndi hann engan vott af andspyrnu við að afhenda vopnin? „Nei,nei.“ - Höfðuð þið orð á ódæðinu við hann? „Nei, en hann sagði „Ég ætla nú ekki að nota þetta á ykkur strákar mínir,“ og bætti svo við að þetta hefði verið óviljaverk, eða eitthvað í þá áttina, en ég man ekki nákvæmlega orðalagið." - Hvernig var ástand hans, þegar þið funduð hann? „Hann var kaldur, líkamlega, en andlega var hann bara sljór." Leitarmennirnir fundu Grétar Sigurð neðarlega í hlíðum Hafrafells, neðan við Illukletta. Þeir voru að skoða nánar slóðina, sem hundurinn hafði farið kvöldið áður og dreifðu sér svolítið út frá henni. Grétar Sigurður hafði hlaðið sér þar byrgi þannig að hann hlóð fyrir svolitinn hellisskúta undir stórum steini. Hann var einnig byrjaður á öðru birgi ofan við steininn. „Ég sá þetta af því að ég tók eftir að hlaðið hafði verið við steininn. Þess vegna fór ég að gæta nánar að þessu," sagði Snorri. - Varðstu hræddur, þegar þú stóðst andspænis manninum alvopnuðum? „Eiginlega ekki. Þetta skeði svo snöggt, ég sá hann ekki fyrr en ég kíkti inn í byrgið og þá stóð ég augliti til auglitis við hann, þar sem hann var í seilingarfjarlægð. Ég varð bara ósköp feginn að hann skyldi vera fundinn." -Kom hann svo mótþróalaust með ykkur? „Við vorum í talstöðvarsambandi við hjálparsveitarbílinn og kölluðum hann upp og sögðum frá að hann væri fundinn. Þá kom sýslumaður og fleiri menn á móti okkur, en Grétar Sigurður sýndi engan mótþróa," sagði Snorri Magnússon. SV. ■ Snorri Magnússon, hjálparsveitar- niaður, sem fyrstur kom að árásarmann- inum í byrgi sínu í hlíðum Hafrafells. - Tímamynd: ARI. ■ Staðurinn þar sem (íretar Sigurö- ur Arnas gerði ser bsrgi ng dialjji i þegar hann fannst er merktur inn a imndina. Ilann hefur getað fylgst með ferðuin þeirra sem yiru sið bil hans og leitarniannanná. EfTil rill 'ar það lan leitarmannanna að linna hann ekki lýrr en honiim \ar runninn mesti moðurinn. þ»i hann hafði i : forum sinuni l\ö hlaðin skotsopn. Cjungrmnri \ri. Farið með árásarmann- inn á vettvang ■ „Fólk var mjög hátt stemmt hér í Skaftafelli í dag meðan við vorum hér með fangann,“ sagði Friðjón Guðröðar- son sýslumaður við Tímann í gærkvöldi. Hann bætti við að sér hefði helst dottið í hug galdrabrennumar til foma af framferði fólksins. Farið var með Grétar Sigurð á vettvang á Skeiðarársandi, þar sem óhappaverkið var unnið og hann yfirheyrður þar. Friðjón sagði að í sumu beri sögu hans saman við sögu stúlk- unnar, sem lifði af, nóg til þess að komin væri nokkuð heilleg mynd af því sem gerðist, þótt margt vanti enn í hana. Fanginn var fluttur til Reykjavíkur í gærkvöldi. gy Frumyfirheyrslur yfir árásarmanninum í Skaftafelli í gær: Játaði að hafa banaðstúlkunni — og veitt systur hennar höfuðáverka ■ Friðjón Guðröðarson, sýslumaður Austur-Skaftfellinga, stjóroaði leitinni að árásarmanninum í Öræfum. Ttmamynd:Ari ■ Grétar Sigurður Arnas, maðurinn sem leitað var að vegna morðmálsins í Öræfasveit, fannst lifandi í gærmorgun, um klukkan hálftíu. Hafði hann falið sig undir kletti í nágrenni Illukletta í Hafrafelli, skammt frá þeim stað sem hann skildi við bflinn, sem lík Yvette Marie Bahuaud var í þegar það fannst. Þegar Grétar Sigurður fannst var hann vopnaður riffli og haglabyssu. Við frumyfirheyrslur, sem fram fóru í Skaftafelli í gær, gekkst Grétar Sigurður við því að hafa orðið Yvette Marie Bahuaud að bana. Einnig játaði hann að hafa veitt systur hennar, Marie Luce Bahuaud, mikla höfuðáverka með byssuskefti. Kveðst hann hafa átt leið um Skeiðarársand vegna vinnu sinnar í fyrrakvöld. Þegar hann hafi komið að skýli því sem stúlkurnar ætluðu að gista í um nóttina hafi lagt frá því mikinn hassþef. Segist hann þá hafa kvatt dyra, kynnt sig sem yfirvald og beðið stúlkurnar að koma með sér til Hafnar í Hornafirði. Þær hafi brugðist ókvæða við málaleitan hans og önnur þeirra ráðist á sig að fyrra bragði. Hin hafi hlaupið út um dyr skýlisins og í því hafi skot hlaupið úr haglabyssu, sem hann var vopnaður. Segist hann þá hafa orðið mjög skclkaður, slegið til eldri stúlkunn- ar með haglabyssunni og náð svo þeirri yngri og komið henni fyrir í farangurs- geymslu bíls síns meðan hún var enn á lífi. Laugarvatns- fundi stjórnar- skrárnefndar var frestað ■ Vegna umræðna um væntanlegar efnahagsaðgerðir hefur orðið aö fresta fyrirhuguðum fundi Stjórnarskrár- nefndar sem hefjast átti aðLaugarvatni í dag. En margir nefndarmanna eru bundnir við umræður unt lausn núverandi efnahagsvanda. Ekki er búið að boða annan fundartíma, en þess vænst aö það geti orðið á næstunni. _ ||g|_ Varð fyrir bíl og fótbrotnadi ■ Niu ára gömul stúlku fótbrotnaði þegar hún varð fyrir bil á tengivegi milli Drottningargötu og Hafnar- strætis á Akureyri á sextánda tímanum i gær. Mun stúlkan hafa hlaupið út á götuna eftir að hún kom út úr bfl sem lá kyrrstæður við gangstéttarbrúnina. Ökumaður bflsins, sem hún varð fyrir, sá ekki til hennar fyrr en orðið var of seint að stöðva. 1 -Sjó Leiörétting ■ í blaðinu í gær var ekki rétt farið með nafn aðstoðarmanns Rainier fursta við veiðar í Laxá í Kjós. Sagði í frásögninni að hann hefði hcitið Þórólfur Magnússon, en rétt er að hann heitir Þórólfur Halldórsson. Biðjum við Þórólf vclvirðingar á þessu. Að sögn Friðjóns Guðröðarsonar, sýslumanns, gætir talsverðs misræmis í framburði Grétars Sigurðar og eldri stúlkunnar, sem nú liggur á Borgar- sjúkrahúsinu eftir höfuðuppskurð. Þórir Oddsson, vararannsóknarlög- reglustjóri ríkisins, sagði í samtali við blaðið í gær að enn ætti eftir að yfirheyra þann grunaða mikið áður en hægt yrði að tjá sig frekar um málið. Verður gæsluvarðhaldsúrskurðar krafist yfir honum í dag að öllum líkindum. - Sjó.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.