Tíminn - 24.08.1982, Side 1
Bráðabirgdalög um efnahagsráðstafanir — bls. 6-8-9-10-11
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Þriðjudagur 24. ágúst 1982
190. tbl. - 66. árgangur
Heimilis-
tTminn:
Lost-
Að detta I
hvala-
vöðu
— bls. 12-13
Búgarður
í afmælis'
gjöf
— bls. 2
Buff
— bls. 23
VÖRUSKIPTAIÖFNUBURINN
HRIKAUGA ÓHAGSTÆÐUR
— Jafngildir rúmum 7 þús. kr. á hvern landsmann fyrstu sjö mánudi þessa árs
■ Fyrstu sjö mánuði ársins höfum við
keypt af útlendingum vörur fyrir
1.654.773.000 krónum hærri upphæð
en við höfum getað selt þeim sömu
útlendingum okkar vörur fyrir. Þessi
upphæð jafngildir 7.164 krónum á
hvem einasta íslending, eða 25-30.000
krónum á hverja af okkar dugmiklu
vísitölufjölskyldum á þessu sjö mán-
aða bili.
Á máli Hagstofunnar heitir þetta að
vöruskiptajöfnuðurinn sé neikvæður
um tæpar 1.654 milljónir nýkróna. Út
tókst okkur að selja vörur fyrir 4.302
milljónir en inn keyptum við vörur
fyrir 5.957 krónur Það vantar með
öðrum orðum 38,5% upp á að við
höfum flutt út jafnvirði þess sem við
höfum keypt inn til landsins, þetta sjö
mánaða tímabil.
Af þessum innflutningi nam vöru-
innflutningur í júlímánuði rúmum 938
milljónum-, sem er 57,5% hærri
upphæð en í sama mánuði 1981.
Útflutningur í júlí nam hins vegar
aðeins 636 milljónum króna, semer 4
milljónum króna minna en í fyrra,
þegar útflutningur nam 640 millj.
króna, og þá um 45 milljónum kr.
meiri en innflutningurinn í sama
mánuði.
Að sögn Hagstofunnar er meðal-
gengi erlends gjaldeyris talið vera
44,5% hærra janúar- júlí í ár en sömu
mánuði í fyrra.
-HEI
■ Dönsku forsætisráðherrahjónin sátu kvöldverðarboð forsætisráðherra íslands, á Hótel Sögu í gærkvöldi. Á myndinni, sem var tekin í upphafi
kvöldverðarboðsins eru frá vinstri Vala Thoroddsen, Ingrid Jörgensen, Anker Jörgensen og Gunnar Thoroddsen.
Nánar um heimsóknina á fjórðu síðu. Tímamynd GE
Verðbætur 1. september nk.:
HÆKKA UM 7.5%
■Af þeirri 11,79% hækkun sem orðið
hefur á framfærsluvísitölu frá maí til
ágúst munu launþegar fá 7,5% sem
verðbótahækkanir launa hinn 1.
september n.k. samkvæmt útreikningi
Hagstofunnar. Frádrátturinn er þvi
4,29%. Stærsti frádráttarliðúrinn eru
þau 2,9% sem launþegar féHust á að
skila aftur af þeirri kauphækkun sem
samið var um í júní s.l. Þá koma 0,6%
vegna búvörufrádráttar, 0,54% vegna
hækkunar á tóbaki og áfengi og loks
0,25% vegna viðskiptakjararýmunar
á tímabilinu.
Af einstökum liðum vísitölugrund-
vallarins hefur mest hækkun orðið á
síma- og póstútgjöldum á þessu 3ja
mánaða tímabili, eða 18,2%. Þá hafa
fargjöld hækkað um 17,9%, lesefni,
hljóðvarp og sjónvarp um 14,3% og
hiti og rafmagn um 12,6%. Matvara
hækkaði um 12,6%. Liðurinn föt og
skófatnaður hefur hins vegar hækkað
um 9,6% á tímabilinu og kaffi, gos,
áfengi og tóbak um 10,3%.
HEI