Tíminn - 25.08.1982, Side 1
íslendingaþættir fylgja bladinu í dag
TRAUSTOG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Miðvikudagur 25. ágúst 1982
191. tbl. - 66. árgangur
FJORIR ÍTALSKIR RALL-
KAPPAR KÆRDIR TIL RLR
— hreyfdu vid mælum í tveimur leigðum bifreiðum
til að losna við greaðsíu kfiómeiragjaids
mikið víðar,“ sagði Baldur Ágústsson,
3 Bðaleiga Akureyrar hefur kært
fjóra ítalska rallkappa, sem þátt tóku
í Ljómarallinu sem fram fór um
helgina, fyrir að hreyfa við kílómetra-
mælum tveggja jeppa, sem þeir höfðu
á leigu í tvær vikur. Eru rallkapparnir
grunaðir um að hafa fært mælana í
þeim tilgangi að losna við að greiða
kflómetragjald í samræmi við notkun
Ríkisstjórnin:
„HELDUR
AUÐVITAÐ
ÁFRAM
jeppanna.
„Það er augljóst að svik voru á
ferðinni. Öðrum jeppanum var skilað
hingað með kílómetramælinn ótengd-
an, en mælirinn í hinum sýndi að
honum hefði aðeins verið ekið 170
kílómetra. Við vissum af þeim bíl
austur á Geysi í tvígang og auk þess
höfum við grun um að hann hafi farið
hjá Bílaleigu Akureyrar, í samtali við
blaðið í gær.
„Við buðum mönnunum að áætla á
þá vegalengd. Þeir ypptu bara öxlum
og þóttust ekki kannast við að hafa
hreyft við mælunum. Þá var ekki
annað fyrir okkur að gera en kæra þá
til rannsóknarlögreglunnar,“ sagði
Baldur.
Baldur ságði að talsverð brögð væru
að því að fitlað væri í kílómetramælum
bílaleigubíla. „Það er ósköp lítill vandi
fyrir þá sem eitthvað kunna með bíla
að fara og það kunna þessir rallkappar
svo sannarlega. Þess vegna er ég
svolítið hissa á því hversu klaufalega
þeir fóru að,“ sagði Baldur. - Sjó.
STORFUM’
— segir dr.
Gunnar
Thbroddsen,
forsætisráð-
herra
■ „Það var Eggert Haukdal að
þakka, meðal annarra, að unnt var að
mynda núverandi ríkisstjórn fyrir
tveimur og hálfu ári og leysa þannig
langvarandi og hættulega stjómar-
kreppu. Þótt hann óski ekki lengur að
styðja stjórnina, heldur hún auðvitað
áfram störfum, þar sem hún nýtur
engu að síður stuðnings meirihluta
alþingismanna. Eg geng út frá því að
Eggert Haukdal muni áfram styðja
góð og gagnleg mál á Alþingi,“ segir
dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisráð-
herra, í yfirlýsingu sem hann sendi til
fjölmiðla í gær.
Það var í gær sem Eggert gaf út
yfirlýsingu um að hann hefði látið af
stuðningi við ríkisstjórnina og myndi
greiða atkvæði gegn nýsettum bráða-
birgðalögum um efnahagsmál. Með
þessari ákvörðun hefur ríkisstjórnin
misst meirihluta sinn í neðri deild
Alþingis, og því ljóst að bráðabirgða-
lögin hljóta ekki samþykki, nema
einhver stjómarandstöðu þingmaður
styðji þau. Sjá nánar viðtöl á bls. 3
Tekinn með
600 grömm
af hassi
■ Rúmlega tvítugur Reykvíkingur
var tekinn með um sex hundruð
grömm af hassi við komuna til
Keflavíkurflugvallar frá Luxemburg í
fyrrinótt. Var maðurinn með hassið í
handtösku og fundu tollverðir það við
almenna tollleit.
Maðurinn var færður á lögreglu-
stöðina í Reykjavík. Þar var hann
yfirheyrður í gærdag. _ Sjó.
Kvikmynda<
hornid:
Ameríska
vikan
- bis. 23
IVIarka-
kóngur
spítald
bls. 24
nefi Liz
— bis. 2
■ Þótt sólin hafí yfirgefið okkur um stund, má þó alltaf hafa uppi á einum og einum sólskinsgeisln samt, - til dæmis
gerir einn bijóstsykursmoli tilveruna talsvert bjartari í rigningunni. (Tímamynd Ari)
pólitík
bls. 7