Tíminn - 27.08.1982, Blaðsíða 1
og dagskrá ríkisfjölmiðlanna 28. ágúst - 3. sept.
■ Stjónvarpið síðustu
viku hefur sjálfsagt
hvorki verið verra né
betra en flestar vikur
aðrar, og hljóðvarpið
heldur sínu striki, að
stytta landsmönnum
stundirnar 16-20 tíma á
sólarhring. Kennir þar
margra grasa, þar sem
fjólur skjóta upp kollin-
um úr illgresinu. Miðað
við hinn langa vinnudag
hljóðvarps er tæpast við
öðru að búast en að
dagskráin þynnist út. En
þar sem allir eru jafnir og
ekki má viðurkenna að
neinn geri neitt verr en
aðrir, kemur náttúrlega
ekki til mála að vekja
sérstaklega athygli á til-
teknu útvarpsefni, sem
telja má að sé athyglis-
verðara en annað sem
boðið er upp á í nærfellt
sólarhringslangri dag-
skrá.
En samt sem áður væri kannski vel
þegið af einhverjum ef dagskrárstjóm
hljóðvarpsins auglýsti betur en gert er
það dagskrárefni, sem þar á bæ er talið
bitastæðara en annað. Dagskráin er
þulin nokkrum sinnum á dag, og er
hætt við að sá langi lestur fari fyrir ofan
garð og neðan hjá flestum þeim sem
ávallt hafa hljóðvarpið hjá sér opið af
vana.
Sjónvarpið hefur þann hátt á, að
kynna það helsta sem sýnt verður þar
í vikubyrjun. Þetta er vel til fundið, en
síður nauðsynlegt í hinni stuttu
dagskrá sjónvarps en hjá hljóðvarpi.
í byrjun þessarar viku vom m.a.
kynntir tveir þættir um norska rit-
höfundinn Knud Hamsun. Sá bútur,
sem valinn var sem sýnishom af
myndinni, var fáránlegur. Að sjálf-
sögðu var hann endursýndur þegar
fyrri hluti myndarinnar var sýndur.
Það em einhverjir sænskir sjónvarps-
menn sem tekið hafa sér það fyrir
hendur að taka saman yfirborðskennd
sýnishorn úr ævi Hamsuns.
Norðmenn hafa aldrei mannað sig
upp í að fjalla um þetta höfuðskáld sitt
SÆNSK SKALDARYNII
ÍSLENSKU SJÓNVARPI
■ Knud Hamsun. Einhverjir sxnskir
sjónvarpsmenn hafa tekið sér fýrir
hendur að taka saman yfirborðskennd
sýnishom úr xvi hans.
síðan hann sendi þeim kveðju sína af
geðveikrahæli, eftir að þeir dæmdu
hann þangað fyrir föðurlandssvik eftir
stríð. Þar skrifaði öldungurinn „Grón-
ar götur“ og þakkaði fyrir samvemna.
Sænsku sjónvarpsmönnunum þótti við
hæfi að hefja kynningu sína á Hamsun
með réttarhöldunum yfir Vidkun
Quisling og létu þess getið að hann hafi
verið dæmdur til dauða ásamt 23
Norðmönnum öðmm fyrir samvinnu
við þýska hernámsliðið. Á þriðja tug
þúsunda vom dæmdir og hirt af þeim
mannorð og eignir. Fjöldi annarra
vom hraktir og hrjáðir í þessu mikla
uppgjöri.
Svíarnir vom fundvísir á sekt
Hamsuns. Staðhæft var í kassanum, að
hann hafi verið meðlimur í National
Samling (svo). Það var tíundað að
hann hafi gefið Göbbels nóbelsverð-
launapening. sinn og hin forkostulega
minningargrein, sem skáldið skrifaði
um Adolf sáluga, fór ekki fram hjá
þeim. Hins vegar þótti ekki taka að
minnast á hvernig Hamsun talaði yfir
hausamótunum á Hitler í eina skiptið
sem leiðir þeirra lágu saman né hvers
hann krafðist af yfirmönnum hérnáms-
liðsins í Noregi.
Hamsun var kynntur sem lítilmót-
legur leppur nasista, og annað ekki,
Vera má að þessi útgáfa sé gömul, en
nokkuð er umliðið síðan ritverkið
mikla um réttarhöldin yfir Hamsun var
gefið út. Það var tekið saman af
dönskum manni, Thorkild Hansen.
Norðmenn kunnu honum litlar þakkir
fyrir athafnasemina. Vera má að nú sé
sú tíð, að það þyki ekki sérstakur sómi
að því, að minnsta kosti ekki á
Norðurlöndum, að loka rithöfunda
inni á geðveikrahælum fyrir þær sakir
einar að segja skoðun sína umbúða-
laust.
Oddur Ólafsson,
ritstjórnarfulltrúi,
skrifar
En gaman var að í þættinum um
Hamsun, að kynnast því að hann hafði
áður gefið nóbelsverðlaunin. Hann
drakk sig fullan á nóbelshátíðinni 10.
des. 1920 og rétti þjóni verðlaunaféð
ásamt öðrum eigum sínum fyrir
rausnarlegar veitingar. Þjónninn var
kurteis maður og skilaði ávísuninni
síðar. Hvað gerði þá til þótt Göbbels
fengi orðuna.
Þýskur reyfari um lögreglumanninn
Derrik ríður enn húsum, og eru þættir
þessir með þeim ósköpum gerðir að
áhorfendur finna morðingjann áður en
myndimar eru hálfnaðar, en vesalings
Derrik kemur ekki upp um þá fyrr en
í lokin.
Morðingjarnir og aðrir skúrkar eru
alltaf sæmilega stæðir karlmenn á
miðjum aldri. Það var sama tegundin,
sem var orsök og afleiðing allrar
óhamingju saklausu sveitastúlknanna
sem áttu við óskapleg vandamál að
stríða í finnskri vandamálasúpu, sem
sjónvarpið var svo heppið að ná í og
sendi út eitthvert kvöld vikunnar. Þar
gaf að líta eitthvert ókræsilegasta
samansafn vesalmenna sem áttu það
sameiginlegt að vera á þessum ömur-
lega aldri karlrembunnar, og að manni
skildist að græða peninga. Einn þeirra
var svo mikið djöfuls svín að hann
hafði verið major í finnska hemum.
Von var að vandamálin hlæðust að
vesalings stúlkutetmnum.
í mynd þessari var fátt um fína drætti
og hún átti það sameiginlegt með
margri íslenskri framleiðslu að lands-
lagið var best.
Talsverðar sviptingar vom í stjórn-
málalífinu í vikunni sem leið og fram
í þá sem nú er senn á enda.
Ríkisfjölmiðlarnir létu málin mikið til
sín taka og vom fréttamenn svo röskir
og ákveðnir í að fylgjast með málum
og spá um úrslit, að oft var þetta allt
eins gaman og heimsmeistarakeppni í
knattspymu. En hvort þeir sem á
hlýddu eða á horfðu vom mikið nær
um raunvemlegan gang mála á meðan
á sportinu stóð er önnur saga.
-O.Ó.
if Föstudag:
Hljómsveitin Lexía ásamt besta diskótekinu i bænum.
if Laugardag:
Hljómsveitin Jamaica ásamt besta diskótekinu í bænum.
if Sunnudagur:
Prófessorinn - Kabarett
Aðalsteinn Bergdal - Lilja Þorvaldsdóttir
Kl. 21. Síðasta sýning.
Veislumaður framreiddur úr veislueldúsinu frá kl.
20.00-22.00
Borðapantanir í sima 2 29 70.
Eitt glæsileoasta samkomuhús á landinu er á Akurevri
OPtO
ALLA VIRKA DAGA
KL. 14 18
LAUGARDAGA 12-1«
VHS VIDEOMYNDIR
VIDEOKLÚBBURINN hf.
Stórhott 1, Reykjavík
SKARTGRIPIR
TRÚLOFUNARHINGAR
margar gerðir.
Skartgripir við öll tækifæri.
SIGMAR Ó. MARÍUSSON
Hverftegötu 16A — Sfcni 21366.