Tíminn - 31.08.1982, Page 1

Tíminn - 31.08.1982, Page 1
Allt um íþróttir helgarinnar - bls. 10-12 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Þriðjudagur 31. ágúst 1982 196. tbl. - 66. árgangur Allt fast vegna krafna samninganefndar ríkisins í samningaviðræðum við BSRB: NEITAR AÐ RÆÐA AÐRA HLUTI EN KAUPUÐINNI ■ „Þetta stendur þannig, að samn- inganefnd ríkisins neitar að ræða aðra hluti en kaupliðinn, og vill ekki fara út í aðra sálma fyrr en hann hefur verið afgreiddur eftir þeirra höfði“, sagði einn af samningamefndarmönnum BSRB, í samtali við Tímann ■ gærkveldi, en þá stóð yfir samninga- fundur milli ríkisvaldsins og BSRB um nýjan aðalkjarasamning þessara aðila. Fundurinn hófst klukkan níu í gær- morgnn og stóð enn í gærkveldi þegar blaðið fór í prentun. Samkvæmt heimildum Tímans býð- ur samninganefnd rfkisins BSRB svipaðar grunnkaupshækkanir og fel- ast í samkomulagi ASÍ og VSÍ frá því fyrr í sumar. Er það 4% grunnkaups- hækkun frá og með l.ágúst sl. og svo aftur 2.1% grunnkaupshækkun 1. janúar nk. BSRB forystan mun geta sætt sig við 4% grunnkaupshækkun strax en viil fá eins flokks launahækk- un frá áramótum eins og kveðið er á um í samningi ASÍ og VSÍ. Slík launaflokkahækkun mun metin á 3.5%, á meðan eins flokks launahækk- un ASÍ um áramót er metin á 2.1%, sem er nákvæmlega sú tala sem ríkið hefur þegar boðið BSRB í tilboði sínu. Um þessi atriði stendurstyrrinn nú. BSRB-menn vilja ræða hlutina í víðara samhengi, hin og þessi atriði sem þeir vilja fá breytt, áður en sjálfur kaupliðurinn er negldur niður. Samn- ingamenn ríkisins eru hins vegar gallharðir á þeirri afstöðu sinni að vilja ræða hann einan sér og ganga frá honum. „Mjög óvenjuleg aðferð, sem setur allt fast“, sagði annar samninga- nefndarmaður BSRB. Óformlegt samkomulag hefur nú náðst um gerð flestra sérkjarasamn- inga félaga innan BSRB, en beðið verður með undirritun þeirra þar til aðalkjarasamningurinn er að mestu frágenginn. Einnig hangir á sömu spýtu samningaviðræður við meina- tækna og röntgentækna sem sagt hafa upp störfum sínum frá og með miðnætti í kvöjd, og því er lagt allt kapp áað heildarsamkomulag náist fyrir þann tíma, þótt menn væru ekki mjög bjartsýnir á að það tækist seint í gærkvöldi. „Það er hreint ómögulegt að segja fyrir um hvað gerist í nótt,“ sagði enn einn samningamefndarmaður BSRB í samtali við Tímann. —Sjo/FRI. Heimilis- tfminn: Hættid að reykja — bls. 13 ■ Nokkrír af samninganefndarmönnum BSRB slá hér á létta strengi í hléi frá samningsþófinusemstóðmestanhlutadagsinsígær,ogennsérekkilyrirendanná. Tímamynd: Ella. Taldi sig finna fosfórsprengju í fjörunni á Seltjarnarnesi: ÓKMEDHANAÍ GEGNUM BORGINAINN A DAGBLAÐ T,Ámælisvert að draga hluti sem menn álíta hættulega ígegnum þétta byggð” segir sprengjusérfræðingur lögreglunnar ■ „Varúð! Skilist á næstu herstöð eða lögreglustöð". Eitthvað á þessa leið stóð skrifað utan á torkennilegt hylki, sem maður nokkur fann í fjör- unni vestur á Seltjamamesi og bar inn á ritstjórnarskrifstofur Þjóðviljans laust eftir hádegið í gær.Taldi maður- inn sig hafa fosfórsprengju í höndunum. „Þetta er ekki sprengja heldur hylki og á því ereðlismunur," sagði Rudolph Axelsson, sprengjusérfræð- ingur lögreglunnar í Reykjavík í samtali við blaðið. „Þáð er ekki enn ljóst hvort hylkið er hættulegt. Hins vegar tel ég það ámælisvert að draga hluti sem menn sjálfir álíta hættulega langar leiðir í gegn um þétta byggð. Ef fólk finnur svona hlut á fjömm eða annars staðar, á það skilyrðislaust að snúa sér til lögreglunnar og hreyfa ekki við hlut- num.“ Rudolph vildi ekki tjá sig nánar um þennan torkennilega fund fyrr en rannsókn á honum væri lokið." -Sjó. Útstæð eyru — bls. 2 „Bruin ónýt” - bls. 6 Heit mynd — bls. 19

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.