Tíminn - 07.09.1982, Síða 3

Tíminn - 07.09.1982, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982. 3 fréttir! ATKVÆÐAGREIÐSUV UM BSRB SAMNING allsherjaratkvædagreidslunni lýkur 17. sept. nk ■ Yfirkjörstjóm Bandalags starfsmanna ríkis og bæja undirbýr nú framkvæmd á allsherjaratkvæöa- greiöslu um nýgerðan aðalkjarasamning BSRB og ríkisins og mun hún standa 15. til 17. september næstkomandi. Kjörgögn verða send í pósti á vinnustað utan höfuðborgarsvæðisins en á höfuðborgarsvæðinu sjá aðildarfélög ríkisstarfsmanna um framkvæmd kosn- inganna, og sennilega munu trúnaðar- menn félaganna annast um kosninguna sem á að vera skrifleg og leynileg. Félagsmenn utan höfuðborgarsvæðis- ins, sem fá kjörgögn sín send í pósti, verða að hafa póstað atkvæði sín í síðasta lagi 17. september, ella teljast atkvæði þeirra ógild. Ef sú staða kemur upp að félagsmaður hefur ekki fengið kjörgögn sín að kvöldi 15. september, getur hann fengið kjörgögn og kosið á næstu póststöð 16. eða 17. september. Utankjörstaðaat- kvæðagreiðsla fer fram í húsakynnum BSRB frá 8. til 17. september. - AB ■ Skólastjóri Fellaskóla, Amfinnur U. Jónsson heilsar nemendum sínum. Grunnskólarnir byrjuðu í gær Um 12500 nemendur á grunnskólaaldri í Reykjavík Um 1,5 milljón safnaðist í landssöfnun Hjálparstofn- unar kirkjunrt- ar og björgun- arsveitanna ■ „Þetta hefur gengið mjög vel það bendir allt til þess að það verði í kring um 1.5 milljón króna sem safnast hefur í þessari landssöfnun," en endanlegar tölur liggja enn ekki fyrir,“ sagði Gunnlaugur Stefánsson, erindreki Hjálparstofnunar kirkjunnar f viðtali viðTímann í gær, þegar hann var spurður að því hvernig söfnunin sem Hjálparstofnunin og björgunarsveitir landsins gengust fyrir, hefði gengið. Scm kunnugt er, þá var markmið þessarar söfunar að safna fé til þess að gera hinum ýmsu björgunarsveitum landsins klcift að endumýja fjarskiptabúnað sinn, í samræmi við nýja, alþjóðlega reglugerð um slíkan búnað björgunarsveita. Hannes Hafstein, framkvæmdarstjóri Slysavarnafélags íslands sagðist í gær vera ákaflega ánægðir með undirtektir lands- manna. auk þess sem hann sagði þá sem störfuðu að björgunar - og slysavarnar- málum hér á landi vera Hjálparstofun kirkjunnar afar þakkláta. - AB Úrskurðuð í vikuvarðhald vegna hasssmygls ■ Stúlka sú scm handtekin var á Keflavíkurflugvelli á föstudagskvöldið og reyndist vera með tæpt kíló af hassi í farangri st'num hefur verið úrskurðuð í viku gæsluvarðhald. HassiCT fannst í fórum stúlkunnar við venjulegt tolleftirlit en hún mun ekki hafa komið við sögu fíkiefnalögregl- unnar áður. - FRI ■ Um 1300 sex ára börn hófu skólagöngu sína í Reykjavík í gær, en þá hófu grunnskólar höfuðborgarinnar einmitt starf- semi sína. Fjöldi barna á grunnskólaaldri í Reykjavík er því orðinn um 12500, því ef sex ára börnin eru undanskilin, þá er fjöldi nemenda á grunnskóla- aldri um 11.200. Eins og að líkum lætur er mestur fjöldi nemenda í Breið- holtinu. í stærsta skólanum, Fellaskóla eru um 1150 nem- endur, en það er aðeins færra en verið hefur á undanförnum árum. Samkvæmt upplýsingum Kristjáns J. Gunnarssonar, fræðslustjóra, þá er mesta aukn- ingin nú í Seljaskóla og Öldusels- skóla, en í Breiðholtsskóla, sem er elsti skólinn í Breiðholti er orðin veruleg fækkun á nemend- um. - AB ■ Eftirvæntingin skín úr hverju andliti, svona í upphafi skólaárs, en hversu lengi skyldi hún vara? Tímamyndir - Róbert Vogar á Vatnsleysuströnd: Fimm ára dreng- ur drukknaði ■ Fimm ára gamall drcngur, Olafur - Helgi Adojfsson til heimilis að Hafnar- götu 3 Vogum á Vatnsleysuströnd drukknaði í höfninni þar s.l. föstu- dagskvöid. Lögreglunni í Keflavík barst til- kynning um þennan atburð um 10 leytið á föstudagskvöld og er hún kom á staðinn var bútð að ná drengnum upp úr höfninni. Ekið var mcð hann á sjúkrahúsið í Keflavík og lífgunartil- raunir reyndat á leiðinni en án árangurs. Er leit hófst að drengnum á föstudagskvöldið fannst reiðhjól hans strax á hafnarbakkanum en talið er að hann haft fallið þar framaf með fyrrgrcindum afleiðingum. Engin hald- bær vitni voru að þessum atburði. I - FRl ’ í / Brotist inn í Blómaval í Sigtúni: Þjófurinn grip- inn á staðnum ■ Lögreglan -í Rcykjavík hand- samaði tvítugan pilt skömmu eftir að honum hafði tckist að brjótast inn í Blómaval í Sigtúni aðfaranótt sunnu- dagsins. Kom lögreglan að manninum í miðju innbrotinu. Ekki hafði honum tekist að ná í mikið er lögreglan kom að en var með eitthvað af skiptimynt í vasanum. - FRI Vantar þig? vetraríbúð og/eða sumarhús ? Viö kynnum hér stór v-þýsk hjólhýsl sem eru þannig frágengin aö hœgt er að búa í þeim bœöi sumar og vetur. Húsin eru byggö úr svokölluöum „Sandwlch“-einingum, sem þýölr afar góö einangrun, þau eru með tvöföldu gleri og mjög góöum ofni sem blæs heitu lofti eftir sórstökum hitakanölum um allt húsið. Húsin eru yfir 6 metra löng og 2,30 á breidd, meö svefnplássi fyrir 6 manns í þrem aöskildum hlutum. Klósettklefi, fullkomiö eldhús meö ískáp, gufugleypi, innbyggöu útvarpi og fleiru. Húsin eru útbúin þannig aö bæði er hægt aö nota 12 volt (t.d. bilgeymi) og 220 volt. Húsin eru byggö á galvaniseraöa grind og tvöfaldan öxul (4 hjól). Hugmyndin er aö húsin sóu notuö aö sumarlagi sem sumarhús en aö vetrarlagi sem íbúð t.d. fyrir skólafólk. Gísli Jónsson & Co. hf., Sundaborg 41, simi 86644.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.