Tíminn - 07.09.1982, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982.
3
fréttir!
ATKVÆÐAGREIÐSUV
UM BSRB SAMNING
allsherjaratkvædagreidslunni lýkur
17. sept. nk
■ Yfirkjörstjóm Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja undirbýr nú
framkvæmd á allsherjaratkvæöa-
greiöslu um nýgerðan aðalkjarasamning
BSRB og ríkisins og mun hún standa 15.
til 17. september næstkomandi.
Kjörgögn verða send í pósti á
vinnustað utan höfuðborgarsvæðisins en
á höfuðborgarsvæðinu sjá aðildarfélög
ríkisstarfsmanna um framkvæmd kosn-
inganna, og sennilega munu trúnaðar-
menn félaganna annast um kosninguna
sem á að vera skrifleg og leynileg.
Félagsmenn utan höfuðborgarsvæðis-
ins, sem fá kjörgögn sín send í pósti,
verða að hafa póstað atkvæði sín í
síðasta lagi 17. september, ella teljast
atkvæði þeirra ógild.
Ef sú staða kemur upp að félagsmaður
hefur ekki fengið kjörgögn sín að kvöldi
15. september, getur hann fengið
kjörgögn og kosið á næstu póststöð 16.
eða 17. september. Utankjörstaðaat-
kvæðagreiðsla fer fram í húsakynnum
BSRB frá 8. til 17. september.
- AB
■ Skólastjóri Fellaskóla, Amfinnur U. Jónsson heilsar nemendum sínum.
Grunnskólarnir
byrjuðu í gær
Um 12500 nemendur á
grunnskólaaldri í Reykjavík
Um 1,5 milljón
safnaðist í
landssöfnun
Hjálparstofn-
unar kirkjunrt-
ar og björgun-
arsveitanna
■ „Þetta hefur gengið mjög vel það
bendir allt til þess að það verði í kring um
1.5 milljón króna sem safnast hefur í
þessari landssöfnun," en endanlegar tölur
liggja enn ekki fyrir,“ sagði Gunnlaugur
Stefánsson, erindreki Hjálparstofnunar
kirkjunnar f viðtali viðTímann í gær, þegar
hann var spurður að því hvernig söfnunin
sem Hjálparstofnunin og björgunarsveitir
landsins gengust fyrir, hefði gengið.
Scm kunnugt er, þá var markmið
þessarar söfunar að safna fé til þess að gera
hinum ýmsu björgunarsveitum landsins
klcift að endumýja fjarskiptabúnað sinn, í
samræmi við nýja, alþjóðlega reglugerð
um slíkan búnað björgunarsveita.
Hannes Hafstein, framkvæmdarstjóri
Slysavarnafélags íslands sagðist í gær vera
ákaflega ánægðir með undirtektir lands-
manna. auk þess sem hann sagði þá sem
störfuðu að björgunar - og slysavarnar-
málum hér á landi vera Hjálparstofun
kirkjunnar afar þakkláta.
- AB
Úrskurðuð í
vikuvarðhald
vegna
hasssmygls
■ Stúlka sú scm handtekin var á
Keflavíkurflugvelli á föstudagskvöldið
og reyndist vera með tæpt kíló af hassi
í farangri st'num hefur verið úrskurðuð
í viku gæsluvarðhald.
HassiCT fannst í fórum stúlkunnar við
venjulegt tolleftirlit en hún mun ekki
hafa komið við sögu fíkiefnalögregl-
unnar áður.
- FRI
■ Um 1300 sex ára börn hófu
skólagöngu sína í Reykjavík í
gær, en þá hófu grunnskólar
höfuðborgarinnar einmitt starf-
semi sína. Fjöldi barna á
grunnskólaaldri í Reykjavík er
því orðinn um 12500, því ef sex
ára börnin eru undanskilin, þá er
fjöldi nemenda á grunnskóla-
aldri um 11.200.
Eins og að líkum lætur er
mestur fjöldi nemenda í Breið-
holtinu. í stærsta skólanum,
Fellaskóla eru um 1150 nem-
endur, en það er aðeins færra en
verið hefur á undanförnum
árum. Samkvæmt upplýsingum
Kristjáns J. Gunnarssonar,
fræðslustjóra, þá er mesta aukn-
ingin nú í Seljaskóla og Öldusels-
skóla, en í Breiðholtsskóla, sem
er elsti skólinn í Breiðholti er
orðin veruleg fækkun á nemend-
um.
- AB
■ Eftirvæntingin skín úr hverju andliti, svona í upphafi skólaárs, en hversu lengi
skyldi hún vara?
Tímamyndir - Róbert
Vogar á Vatnsleysuströnd:
Fimm ára dreng-
ur drukknaði
■ Fimm ára gamall drcngur, Olafur -
Helgi Adojfsson til heimilis að Hafnar-
götu 3 Vogum á Vatnsleysuströnd
drukknaði í höfninni þar s.l. föstu-
dagskvöid.
Lögreglunni í Keflavík barst til-
kynning um þennan atburð um 10
leytið á föstudagskvöld og er hún kom
á staðinn var bútð að ná drengnum upp
úr höfninni. Ekið var mcð hann á
sjúkrahúsið í Keflavík og lífgunartil-
raunir reyndat á leiðinni en án
árangurs.
Er leit hófst að drengnum á
föstudagskvöldið fannst reiðhjól hans
strax á hafnarbakkanum en talið er að
hann haft fallið þar framaf með
fyrrgrcindum afleiðingum. Engin hald-
bær vitni voru að þessum atburði.
I - FRl
’ í /
Brotist inn í Blómaval í Sigtúni:
Þjófurinn grip-
inn á staðnum
■ Lögreglan -í Rcykjavík hand-
samaði tvítugan pilt skömmu eftir að
honum hafði tckist að brjótast inn í
Blómaval í Sigtúni aðfaranótt sunnu-
dagsins.
Kom lögreglan að manninum í
miðju innbrotinu. Ekki hafði honum
tekist að ná í mikið er lögreglan kom
að en var með eitthvað af skiptimynt
í vasanum. - FRI
Vantar þig?
vetraríbúð
og/eða sumarhús ?
Viö kynnum hér stór v-þýsk hjólhýsl sem eru þannig frágengin
aö hœgt er að búa í þeim bœöi sumar og vetur.
Húsin eru byggö úr svokölluöum „Sandwlch“-einingum, sem
þýölr afar góö einangrun, þau eru með tvöföldu gleri og mjög
góöum ofni sem blæs heitu lofti eftir sórstökum hitakanölum
um allt húsið. Húsin eru yfir 6 metra löng og 2,30 á breidd, meö
svefnplássi fyrir 6 manns í þrem aöskildum hlutum. Klósettklefi,
fullkomiö eldhús meö ískáp, gufugleypi, innbyggöu útvarpi og
fleiru.
Húsin eru útbúin þannig aö bæði er hægt aö nota 12 volt (t.d.
bilgeymi) og 220 volt. Húsin eru byggö á galvaniseraöa grind
og tvöfaldan öxul (4 hjól).
Hugmyndin er aö húsin sóu notuö aö sumarlagi sem sumarhús
en aö vetrarlagi sem íbúð t.d. fyrir skólafólk.
Gísli Jónsson & Co. hf.,
Sundaborg 41, simi 86644.