Tíminn - 07.09.1982, Side 5

Tíminn - 07.09.1982, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982. fréttir Grípa íslensk stjórnvöld til einhliða aðgerða gegn Alusuisse? „ER EKKIJAFN EINFALT OG ÞAÐ HUÓMAR” — segir Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins Svavar Gestsson, formadur Alþýdubandalagsins: ,-Skoða verður allar leiðir - lika einhliða” ■ „Ég tel að í lengstu lög sé nauðsynlegt að leita eftir samkomulagi og held raunar að slíkt sé hægt,“ sagði Steingrímur Hermannsson, samgöngu- ráðherra þcgar blaðamaður Tímans spurði hann í gær, hvort hann teldi það tímabært að íslensk stjórnvöld gripu til einhliða aðgerða gagnvart Alusuisse og ákvæðu einhliða hækkun raforkuverðs. „Ég vek athygli á því að það er ekki jafn einfalt og það hljómar að grípa til einhliða aðgerða, því það eru fleiri atriði í samningnum scm þarf að athuga nánar, eins og t.d. það að Alusuisse er skuldbundið til þess að kaupa orkuna hvort sem hún er notuð eða ekki. Okkur yrði varla stætt á því að halda slíkum ákvæðum inni ef við gripum til einhliða aðgerða, sagði Steingrímur, „og því vakna spurningar eins og hver verður okkar staða ef þeir svo draga saman reksturinn, ef til vill niður í 40 eða 50%, eins og þeir hafa gert víðast hvar annars staðar. Ég tel hins vegar alveg ljóst að við eigum skýlausan rétt á því að fá fram ■ „Það er alveg ljóst að ef Alusuisse ætlar sér ekki að koma til móts við sanngjarnar óskir Islendinga með venju- legum hætti, og það virðist það ekki ætla að gera með samningum, þá verður að skoða allar leiðir - líka einhliða aðgerðir. Það er óhjákvæmilegt,“ sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, þegar blaðamaður Tím- ans spurði hann hvort orð iðnaðarráð- herra, þess efnis að Islendingar myndu grípa til eigin úrræða gegn Alusuisse í Ijósi fullveldisréttarins, endurspegluðu vilja Alþýðubandalagsmanna. „Þetta hefur nú ekki verið borið undir ríkisstjórnina, þannig að ég hef ekkert um þetta mál að segja á þessu stigi,“ sagði Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð- herra þegar Tíminn innti hann eftir því hvort einhliða aðgerðir af hálfu ís- lenskra stjórnvalda kæmu að hans áliti til greina gegn Alusuisse eins og málum er háttað í dag. „Ég ætla að geyma mér að tjá mig um þetta mál, þar til iðnaðarráðherra hefur lagt þetta mál fyrir,“ sagði landbúnaðarráðherra jafn- framt. - AB ■ Steingrímur Hermannsson. hækkun á raforkuverðinu, en legg áherslu á að ekki má rasa um ráð fram.“ - AB Kaupstefnunni ’82 lokið: „Greinileg kreppa í þjóðfélaginu” — segir Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri sýningarinnar ■ Sýningunni Kaupstefnan ’82 í Laugar- dalshöll er lokið. Alls skoðuðu rúmlega 74 þúsund manns sýninguna og er það svipað og er kaupstefnan var haldin síðast týrir tveim árum. Þá voru gestir um 75 þúsund talsins. - Það er greinilegt að það er kreppa í þjóðfélaginu og ráðstöfunarfé fólks mun minna en oft áður, sagði Guðmundur Einarsson, framkvæmdarstjóri í Kaupstefn- unnar '82 í samtali við Tímann að sýningunni lokinni. Guðmundur sagði að fólk hefði keypt mun minna á sýningunni að þessu sinni en á undanförnum sýningum og eins hefði aðsóknin að tívolíinu verið mun minni en t.a.m. fyrir tveim árum. - Okkur þótti þó sýningin takast vel að þessu sinni og ég held að bæði sýnendur og gestir hafi verið ánægðir með framkvæmd- ina, sagði Guðmundur Einarsson. -ESE ■ Það er enginn kreppusvipur á þessu unga fólki sem brá sér í flugferö í hringekjunni L tivolíinu á sýningunni í Laugardal. En aðrir héldu fastar um budduna og þegar á heildina er litið var aðsóknin að tívolíinu frekar dræm. Tímamynd Ari LANfrá HVAÐ KOSTAR HUSNÆÐI MIÐAÐ VIÐ NÚGILDANDI VAXTAKJÖR? SVAR: Verötrygging inn- og útlána hefur aukið veru- ' lega kostnaö viö íbúöarhúsnæði sem og viö aöra fjárfestingu. Hvernig má þaö vera? Allir þeir, sem skulda lán vegna íbúðarkaupa, vita ofurvel hvaöa kostnaö þeir bera vegna vaxta og verðtryggingar. Nýju verötryggöu lánin hækka því raunverulegan kostnað þeirra íbúöareigenda. Sá sem býr í skuldlausri íbúð kann aö spyrja: „Hvaö koma vaxtakjör mér viö? Ég borga enga vexti". í íbúðar- húsnæði er bundið mjög mikiö fjármagn, sem unnt væri aö ávaxta með verðtryggðum kjörum og menn veröa því aö reikna sér vexti af því. Vextir af lífeyrissjóðslánum eru nú almennt 3% og vextir af spariskírteinum eru 3,5% Ef tekið er dæmi af fjögurra herbergja íbúð, sem kostar staðgreidd 750 þús. kr., eru 3% vextir af henni kr. 22.500 á ári eöa kr. 1.875 á mánuði! Þetta er vaxtakostnaðurinn einn sér miöaö viö 3% vexti. Svo koma fasteignagjöld (0,5%), afskriftir (1%), viöhald (0,5%) og hugsanlega eignarskattur (1,2%) eöa lauslega samanlagt 3,2% eöa kr. 2.000 á mánuöi. Samtals er því kostnaðurinn tæpar 4.000 á mánuði. Þetta er kostnaðurinn viö fjögurra herbergja íbúð. Eign upp á 1,5 millj. kostar tvöfalt meira eöa tæpar 8.000 á mánuöi! Og svo eru menn aö selja meö afföllum verðtryggö skuldabréf, sem gefa allt aö 8% ávöxtun yfir verðtryggingu. Miöað viö slíka vexti kostar fjögurra herbergja íbúö 7.000 krónur á mánuði! Flestir standa frammi fyrir þeirri ákvörðun, hversu stórt þeir skuli búa og hvort þeir stækki viö sig. Margur mundi kannski veita sér önnur gæði, ferðalög, minni vinnu o.s.frv., ef hann hugleiddi hversu dýrt húsnæöi er orðið. 4 LANDSSAMBAND SAMBAND ALMENNRA LlFEYRISSJÖÐA LÍFEYRISSJÓÐA BÚNAÐARBANKINN undirbýr gjaldeyris viðskipti

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.