Tíminn - 07.09.1982, Síða 6

Tíminn - 07.09.1982, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982. Lögtaksúrskurður Að beiðni bæjarsjóðs Kópavogs, úrskurðast hér með lögtak fyrir útsvörum og aðstöðugjaldi til Kópavogskaupstaðar, álögðum 1982 sem falla í gjalddaga skv. 29. gr. laga nr. 73/1980,- Fari lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa, til tryggingar ofangreindum gjöldum, á kostnað gjaldanda, en á ábyrgð bæjarsjóðs Kópavogs, nema full skil hafi verið gerð. Bæjarfógetinn í Kópavogi, 17. ágúst 1982. Bíll til sölu Ford Pickup (F 150 Ranger XLT) Diesel m/húsi til sölu árgerð 1979. Drif á öllum hjólum, veltistýri, breið dekk (10x15). Litur: rauðbrúnn og gulur. Upplýsingar í síma 91-66097. Ahugafólk um matargerð. Markaðsnefnd landbúnaðarins efnir til sam- keppni á meðal sælkera um rétti úr innmat, lamba- og kindakjöti. Þrenn verðlaun verða veitt, sem er lambsskrokkur tilbúinn í frysti- kistuna. Uppskriftirnar þurfa að hafa borist fyrir 14. nóv. 1982 Markaðsnefnd landbúnaðarins, Snorrabraut 54, Reykjavík. Námskeið veturinn 1982 - ‘83 I. Saumanámskeið6vikur. 1.1 Kennt Þriðjud.ogföstud. kl. 14-17 1.2 mánud. og fimmtud. “ 19-22 1.3 þriðjudaga “ 19-22 1.4 miðvikudaga “ 19-22 II. Vefnaðamámskeið7vikur. Kenntverðurmánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 14.15 -17.15. III. Jurtalitun4vikur. Kennt verður mánudaga og fimmtudaga kl. 19.30-22.30. IV. Matreiðslunámskeið 5 vikur. Kennt verður mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 18.30 - 22. V. Matreiðslunámskeið5vikur. Kennt verður fimmtudaga og föstudaga kl. 18.30 - 22. Ætlað karlmönnum sérstaklega. Stutt matreiðslunámskeið Kennslutími kl. 13.30 -16.30. Gerbakstur 2dagar Smurtbrauð 3dagar Sláturgerð og frágangur í frystigeymslu 3dagar Glóðarsteiking 2dagar Fiski- og síldarréttir 3dagar Grænmetis- og baunaréttir 3dagar Jólavika 6.-10.des. 4. janúar 1982 hefst 5 mán. hússtjórnarskóli með heimavist fyrir þá, sem þess óska. Upplýsingar og innritun í sima 11578 kl. 10-14. mánud.-fimmtud. SK0LASTJÓRI. fréttir Réttir fyrr á ferð inni norðanlands ■ Göngur cru hafnar víða norðan- lands og verður réttað á mörgum stöðum í þessum landsfjórðungi næstu tvær helgar. í öðrum landsfjórðungum verður réttað á svipuðum tíma og undanfarin ár, eða um og uppúr 20. september. Ólafur R. Dýrmundsson, landnýt- ingarráðunautur hjá Búnaðarsambandi íslands, sagði í samtali við Tímann að réttir norðanlands væru víðast hvar nokkuð fyrr í ár en undanfarin ár. Ástæðan fyrir þessu væri trúlega sú, að bændur í þessum landsfjórðungi hefðu yfirleitt lokið heyskap snemma og eins hefði kuldakastið á dögunum sett strik í reikninginn. Fé hefði þá leitaö niður í byggð og væri nú víðast hvar búið að smala frá girðingum. Góð aðstaða væri heima fyrir til að taka á móti fénu og frá beitarsjónarmiðum væri hyggilegt að rétta scm fyrst. Réttað verður í Víðidalstunguréttum í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu og Auðkúluréttum í Svínadal og Undir- fellsréttum í Vatnsdal, Austur-Húna- vatnssýslu 10.-II. september næst kom- andi og síðan rekur hver réttin aðra norðanlands. í nágrenni Revkjavíkur verður fyrst réttað í Kaldárréttum við Hafnarfjörð, sunnudaginn 19. septem- ber fyrir hádegi og í Fossvallaréttum við Lækjarbotna eftir hádegi. Hafra- vatnsréttir í Mosfellssveit verða mánu- daginn 20. september fyrir hádegi. Hér á eftir fer listi yfir nokkrar réttir landsins í haust. -ESE ■ Fáir skemmta sér jafnvel í réttum og börnin. Nokkrar réttir haustið 1982 Fjárréttir Dagsetningar Auðkúluréttir í Svínadal, A.-Hún. Arnarhólsréttir í Helgafellssveit, Snæf. Brekkuréttir í Norðurárdal, Mýrasýslu Fellsendaréttir í Miðdölum, Dalasýslu Fljótstunguréttir í Hvítársíðu, Mýr. Fossréttir í Hörgslandshr., V.-Skaft. Fossvallaréttirv/Lækjarbotna(Rvík/Kóp) Gjábakkaréttir í Þingvallasveit, Árn. Grímsstaðaréttir, Álftaneshr., Mýr. Hafravatnsréttir í Mosfellssveit, Kjós. Hítardalsréttir í Hraunahr., Mýr. Hrunaréttir í Hrunamannahr. Árn. Hrútatunguréttir í Hrútafirði, V-Hún. Húsmúlaréttirv/Kolviðarhól, Árn. Kaldárréttir við Hafnarfjörð Kaldárbakkaréttir í Kolbeinsst.hr. Hnapp. Kirkjufellsréttirhaukadal, Dal. Kjósaréttir í Kjósarsýslu Klausturhólaréttir í Grímsnesi, Árn. Kollafjarðarréttir í Kjalameshr., Kjós. Landréttir í Landmannahreppi, Rang. Landholtsréttir í Miklaholtshreppi, Laufskálaréttir í Hjaltadal, Skag. Laugarvatnsréttir í Laugardal, Arn. Mælifellsréttir í Lýtingsstaðahr., Skag. Nesjavallaréttir í Grafningi, Árn. Oddsstaðaréttir í Lundarreykjadal, Borg. Rauðsgilsréttir í Hálsasveit, Borg. Reyðarvatnsréttir, Rangárvallahr., Rang. Reynistaðaréttir í Staðarhreppi, Skag. Selflatarétt í Grafningi, Árn. Selvogsrétt í Selvogi, Árn. Skaftártunguréttir í Skaftártungu, V-Skaft Skaftholtsréttir í Gnúpv erjahr., Árn. Skarðaréttir í Skarðshreppi, Skag., Skeiðaréttir á Skeiðum, Árn. Skrapatunguréttir í Vindhælishr., A-Hún. Stafnsréttir í Svartárdal A-Hún. Svarthamarsréttirá Hvalfjarðarstr., Borg. Svignaskarðsrétt í Borgarhreppi, Mýr. Tungurétt í Svarfaðardal, F.yjaf. Tungnaréttir í Biskupstungum, Árn. Undirfellsréttir í Vatnsdal, A-Hún. Vatnsleysustrandar., Vatnsleysustr. Gull. Víðidalstunguréttir í Víðidal, V-Hún. Þingvallaréttir í Þingvallasveit. Árn. Þórkötlustaðaréttir v/Grindavík Þverárrétt í Eyjahreppi, Hnapp. Þverárréttir í Þverárhlíð, Mýr. Olfusréttir í Ölfusi, Árn. Ölkelduréttir í Staðarsveit. Snæf. Stóðréttir Undirfellsréttir í Vatnsdal, A.-Hún. Víðidalstunguréttir í Víðidal, V-Hún. Auðkúluréttir í Svínadal, A.-Hún. Laufskálaréttir í Hjaltadal, Skag. Skarðaréttir í Skarðshreppi, Skag. 10.-11. sept. 21. sept. 13. sept. 20. sept. 13.sept. 12. sept. 19. sept. 20. sept. 16. sept. 20. sept. 15. sept. 16. sept. 12. sept. 20. sept. 19. sept. 20. sept. 19. sept. 21. sept. 22. sept. 21. sept. 24. sept. 22. sept. 12. sept. 21. sept. 19. sept. 20. sept. 15. sept. 17. sept. 18. sept. 13. sept. 22. sept. 22. sept. ,22.sept. ló.sept. 12.sept. 17. sept. 19. sept. 16. sept. 22. sept. 15. sept. 12. sept. 15. sept. 10.-11. sept. 22. sept, 10.-11. sept. 20. sept. 20. sept. 20.sept. 14. -15.sept. 23. sept. 23. sept. Dagsetningar sunnudggur26. sept. laugardagur2.okt. sunnudagur 19. sept. laugardagur2.okt. sunnudagur26.sept. -ESE Aldraðir fara f berjaferð og réttarferð ■ Ferðamálaráð aldraðra gcngst fyrir tveimur ferðum fyrir aldraða á næstunni og er lagt uppf þá fyrri kl. 9.00 í fyrramálið. Er það fimm daga berjaferð á Snæfellsnes. Kostar ferðin kr. 2350.00 með fæði gistingu og akstri inniföldu. Farið verður frá B.S.Í. Sfðari ferðin, sem er réttarferð, verður farin frá B.S.Í þriðjudaginn 14. september kl. 9.00 og er það einnig fimm daga ferð. Kostar sú ferð 2450.00. Farið verður í Þverár- rétt. Miðar og nánari upplýsingar um ferðimar má fá hjá B.S.Í.í síma 22300. Bitar frá Helga Péturssyni verða í fyrri ferðinni, en Sæmundur mun annast þá stðari. Ný skó- vinnu- stofa á Akureyri ■ Ný skovinnustofa hefur nú verið sett upp á Akureyri. Er eigandi hcnnar Hörður Hafsteinsson, en með honum á stofunni er Ásgeir Flórentsson. Heitir nýja stofan Skóvinnustofa Akureyrar og er hún við Hafnarstræti 88. Nýja stofan tók til starfa fyrir þremur mánuðum og hafa Akureyr- ingar vel kunnað að meta þjónustu þeirra tvímenninganna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.