Tíminn - 07.09.1982, Page 11

Tíminn - 07.09.1982, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982. 11 fréttafrásögn ■ Atvinnuréttindi bænda og fram- leiðslumál landbúnaðarins voru aðal- málin á aðalfundi Stéttarfélags bænda að þessu sinni. Samþykkt var tillaga um að komið verði á löggjöf um atvinnurétt- indin og hvað varðar framleiðslumálin var ákveðið að beita áfram kvótakerfi og kjamfóðurgjaldi til stjómunar land- búnaðarframleiðslunnar. Einnig var lýst yfir stuðningi við hugmyndir um fækkun sauðfjár um allt að 50 þúsund, þegar á þessu hausti. Alls áttu 44 aðalmenn og tveir varamenn sæti á aðalfundinum sem haldinn var í Borgarnesi að þessu sinni, en auk þess mætti fjöldi gesta á fundinn. Flest þeirra mála sem tekin voru upp á fundinum, voru lögð fyrir af stjórn Stéttarsambandsins eða þau komu frá kjörmannafundum. Miklar umræður urðu um einstakar tillögur, en eins og svo oft áður voru framleiðslumálin í brennipunkti. Breytingartillögur komu fram við tillögu framleiðslunefndar fundarins um kvóta og verðskerðingu og ■ Ingi Tryggvason, formaður Stéttarsambands bænda ásamt Gunnarí Guðbjartssyni, fyrrverandi formanni sambandsins. FÆKKUN SAMÞYKKT Atvinnuréttindi í landbúnaði og framleidslumálin aðalmál fundaríns AðaHundur Stéttarsam bands bænda: STÓRFEILD sauðfjAr- í endanlegri afgreiðslu fundarins á tillögUnni segir m. a.: „Til framleiðslustjómunar verði áfram beitt kvótakerfi og kjarnfóðurgjaldi. Að ekki komi til greina að velta öllum þeim vanda sem felst í kindakjötsbirgð- um nú yfir á næsta verðlagsár. Við niðurjöfnunar verðvöntunar verði að því stefnt að undanskilja verðskerðingu 250 ærgildisafurðaframleiðslu hvers bónda sem hefur meginhluta tekna sinna af búvöruframleiðslu sem háð er kvótakerfinu. Kannaðir verði möguleikar á að undanþiggja frá allri verðskerðingu framleiðendur, sem reka 300 ærgilda fjárbú eða minna og hafa litlar aðrar tekjur. Einnig að beita verðskerðingu á alla framleiðslu sem háð er búmarki og framleidd er á lögbýlum án fastrar búsetu viðkomandi framleiðenda. Lögð verði áhersla á að Ijúka uppgjöri fyrir áramót. Bændum sem gera samning um að framleiða árlega á næstu 5 árum eigi meira en 67% af áunnu eða nýttu búmarki í þeirri búgrein verði tryggt fullt verð fyrir framleiðslu sína á samningstímanum. Fundurinn skorar sérstaklega á þá tilteknu hópa framleiðenda sem leitað verður til að taka þátt í þessari fækkun að þeir sýni skilning á nauðsyn hennar og leggi sitt af mörkum til að styrkja heildarstöðu bændastéttarinnar með því að fækka sauðfé sínu verulega.“ ■ Jón Guðbjörnsson, bóndi á Lindarhvoli í Þverárhlíð ræðir við alþingismennina, Davíð Aðalsteinsson og Stefán Valgeirsson. Fjöldi annarra ályktana var samþykkt- ur á aðalfundinum og verður þeirra getið í blaðinu á morgun. Ályktun aðal- fundarins hvað varðar starfsréttindi í landbúnaði, er birt hér í opnunni. - ESE ■ Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra í ræðustól á aðalfundi Stéttarsambandsins. Lestunar- áætlun GOOLE: Arnarfell ............ 20/9 Arnarfell ............ 4/10 Arnarfell ........... 18/10 Arnarfell ........... 1/11 ROTTERDAM: Arnarfell ............ 22/9 Arnarfell ............ 6/10 Arnarfell ........ 20/10 Arnarfell ............ 3/11 ANTWERPEN: Arnarfell ............ 9/9 Arnarfell ........... 23/9 Arnarfell ........... 7/10 Arnarfell .......... 21/10 Arnarfell ........... 4/11 HAMBORG: Helgafell............ 10/9 Helgafell............ 1/10 Helgafell .......... 22/10 Helgafell........... 12/11 HELSINKI: Dísarfell ........... 13/9 Dísarfell .......... 11/10 Dísarfell ........... 4/11 LARVIK: Hvassafell .......... 13/9 Hvassafell........... 6/10 Hvassafell...........18/10 Hvassafell........... 1/11 GAUTABORG: Hvassafell........... 14/9 Hvassafell........... 5/10 Hvassafell.......... 19/10 Hvassafell........... 2/11 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell........... 15/9 Hvassafell........... 4/10 Hvassafell........ 20/10 Hvassafell........... 3/11 SVENDBORG: Helgafell............ 13/9 Hvassafell........... 27/9 Helgafell............ 5/10 Dísarfell .......... 15/10 Helgafell........... 25/10 ÁRHUS: Helgafell............ 14/9 Helgafell............ 6/10 Helgafell........... 26/10 GLOUCESTER, MASS.: Jökulfell............. 9/9 Skaftafell........... 4/10 Skaftafell........... 2/11 HALIFAX, CANADA: Skaftafell........... 6/10 Skaftafell........... 5/10 M' ■' f SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.