Tíminn - 07.09.1982, Page 14
14____________
heimilistfminn
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982.
Anna Jónacf
Alfh. 96
Umsjón: B.St. og K.L.
Skólann
heim!
Kynningarrit um
Bréfaskólann 40 ára
■ Bréfaskólinn (em stofnaður
var sem Bréfaskóli SÍS) átti nýlega
40 ára afmæli. Nú heitir hann
Bréfaskólinn, Suðurlandsbraut
32, og er sameignarstofnun stærstu
fjöldasamtaka landsins:
ASÍ Alþýðusambands íslands,
BSRB Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, FFS Farmanna- og
fiskimannasambands ísl., KI
Kvenfélagasambands íslands, SÍS
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga, SB Stéttarsambands bænda
og UMFÍ Ungmennafélags
íslands.
Þegar Bréfaskólinn var stofn-
aður innrituðust 280 nemendur í 4
námsgreinar, en nú eru námsgrein-
ar yfir 40 talsins, svo úrvalið er
margvíslegt: Tungumálanám,
reikningur, eðlisfræði og sauð-
fjárræktun eru meðal þessara 40
námsgreina.
Námsefnið greinist í eftirfarandi
flokka: Almenn fræði, Atvinnulíf-
ið, Bókmenntir og listir, Erlend
tungumál, félagssvið, heilsufræði
og Tómstundastörf.
Námsefni Bréfaskólans í stafrófs-
röð:
Áfengismál
Algebra
Arabíska
Betri verslunarstjórn
Bókfærsla
Bókhald verkalýðsfélaga
Búreikningar
Danska
Eðlisfræði
Ensk verslunarbréf
Enska
Esperanto
Franska
Fundarstjórn og fundarreglur
Gísla saga Súrssonar
Gríska
Flagræðing og vinnurannsóknir
Fiandbók í félagsstörfum
Heyverkun
Hjálp í viðlögum
Hollenska
íslandsklukkan
fslensk bragfræði
íslensk málfræði
íslensk stafsetning
ítalska
Kínverska
Latína
Mótorfræði
Norrænar bókmenntir og listir
Reikningur '
Rússneska
Sauðfjárræktun
Serbó króatíska
Siðvenjur og háttprýði
Siglingafræði
Skák
Spænska
Staða kvenna í heimili og þjóð-
félagi
Stærðfræði
Sænska
Um manneldismál
Vélritun
Við bætum þjónustuna
Þýska
Námstækni - leiðbeiningar við
nám sem fylgir öllu námsefni.
Bréfaskólanám hefur þann kost
helstan, að fólk getur notað
frístundir sínar, hvenær og hvar
sem er til lesturs og náms með
bréfum og svarað þeim. Nemand-
inn getur stundað bréfanámið
samhliða vinnu vegna hins frjáls-
lega kennslukerfis. Heimanámið
er því sérlega hentugt fyrir
vinnandi fólk, og þá ekki síður
fyrir það fólk, sem á örðugt með
að komast heiman að. Með
heimanámi í Bréfaskólanum er
hægt að auka við menntun sína og
leggja þannig grundvöll að nýju
námi og nýjum störfum.
Einfaldasta leiðin til innritunar
er að hringja til Brefaskólans í
síma (91) 81255 og fá námsefnið
sent í póstkröfu.
Einnig má senda skriflega
beiðni til skólans, en gæta verður
þess að senda ekki peningagreiðsl-
ur í almennum bréfum og skrifa
skýrt og nákvæmlega nafn, heim-
ilisfang, póstnúmer og póststöð.
■ Hún hefur aUt til aö bera svo kjóllinn
njóti sín vel.
Fljót-
saumaður
kvöld-
kjóll
■ Nú þegar fer að hausta er tilvalið að
skoða í klæðaskápinn, og athuga hvað
þarf helst að endurnýja - eða kaupa fyrir
veturinn.
Alltaf kemur sér vel að eiga nýjan
kvöldkjól til að grípa til ef eitthvað
óvænt boð berst - háðtíðlegt afmæli, eða
árshátið. „Ég á bara ekkert til að fara
í“; verður margri konunni að orði, þegar
hún skoðar í fataskápinn sinn. Þær sem
eru vanar saumakonur snara sér þá bara
í það að suma sér nýjan kjól, og fara létt
með það. Þær sem eru ekki vanar ættu
þó að geta saumað sér kjól líkan því,
sem við sjáum hér á myndinni ef þær
hitta á að fá efni sem hæfir þessu sniði.
í kjólinn sjálfan er notað teygjuefni
með glitþræði, sem oft hefur sést í
svokölluðum „toppum", sem notaðir
eru við stutt eða síð pils. Hér þarf
teyjuefnið að vera a.m.k. 60 sm breitt
og er það einfaldlega saumað saman á
hliðinni, eins og passar utan um
stúlkuna. Síðan er sítt kögur saumað
utan um í mittinu, eða niður á
mjöðmum, eftir því hvað hver vill hafa
kjólinn síðan.
Til þess að þessi einfaldi kjóll sé
fallegur, þarf sú sem ber hann að vera
sérlega vel vaxin og hafa fallega fætur.
„Skóhlífar“
á barnavagninn
■ Þegar blautt er um vilja hjólin á bamavagninum safna á sig óhreinindum,
og leiöinlegt er að bera þau inn í húsið. Tilvaiið er að hafa fjórar plasthettur
tilhúnar í anddyrinu og smokka þcim yfir á hjólin á vagninum. I.áta hettumar
svo vera á hjólunum þar til aftur er farið út mcð vagninn. Þá er fyrirhafnarlítið
að skola úr plasthettunum og hafa þser svo aftur tilbúnar þegar á þarf að halda.
Að geyma
þurrkaða ávexti
■ Kúsínur og aðrir þurrkaöir ávextir gcymast vel í þéttum niðursuðuglösum,
cða glerkrúsum mcð skrúfuðu loki. Þannig varðveittir geymast ávcxtirnir
lengur mjúkir en í rifnum plastpokum í matarskápnum.
■ Það er líklega fátt, sem fólki hættir eins til að gleyma og regnhlífum. -
Lagt er af stað að heiman í dynjandi rigningu, og þá er gott að hafa regnhlíf
til að bregða yfir sig, meðan beðið cr eftir strætó, eða farið í búðir. Svo
styttir upp, og hver getur þá munað eftir regnhlífinni, þcgar sólin er farin að
skína - og hún vill verða eftir.
Heiðarlegir finnendur regnhlífa hafa lítinn möguleika á að koma þeim til
skila, en úr því mætti bæta með þvi að merkja regnhlífina vel og velja svo
gagnsæju límbandi yfir, cins og sjá má á myndinni. Á merkispjaldinu þarf
helst að vera bæði nafn, og heimisfang og simanúmer.
Nuddið Kársvörðinn
— það örvar blóðrásina og bætir hárið
Regnhlífin „ratar“
heim aftur
jafnt og þétt - það er hársvörðurinn sem
á að nudda en ekki hárið sjálft.
Nuddaðu með smá hring-hreyfingum
frá gagnaugum og upp á hvirfil - og svo
aftur niður. Fimm sinnum í röð ætti að
vera nóg.
2. Nuddið nú frá hnakka, upp á bak
við eyrun, og svo aftur til baka sömu
leið - fimm sinnum.
3. Þá byrjar nuddið við kollvikin upp
að hvirfli og aftur til baka - fimm
sinnum.
4. Að síðustu nuddar þú hnakkagróf-
ina og hnakkann upp á hvirfil og niður
aftur - fimm sinnum.
Þegar nuddinu lýkur er ágætt að hvíla
hársvörðinn í eins og tíu mínútur, en
þvo svo hárið með venjulegu sjampói,
sem hæfir hárinu, og skola síðan vel. Ef
hárið er mjög slitið má bera hárnæringu
í hárbroddana og skola síðan eftir
smástund upp úr volgu vatni.
■ Eftir sumarið vill hárið oft vera
heldur þurrt og tjásulegt, en þá er gott
að nudda vel hársvörðinn, og örva þar
með blóðrásina. Ef hárið er þurrt, er
hægt að fá í snyrtivörubúðum eða á
hárgreiðslustofum hár - „lotion" (hár-
vatn) eða næringu til að bera í
hársvörðinn eða hárið sjálft eftir
notkunarreglum, sem eru á umbúðum.
■ Hárnudd - gott fyrir hár og húð -
(En ef hárið er feitt, þá getur nudd á
hársverðinum orðið til þess að örva
hárfitlukirtlana, svo þá hæfir þessi
aðferð ekki)
Á meðfylgjandi myndum er sýnt
hvemi g best er að bera sig að við nuddið;
1. Notaðu baugfingur og löngutöng á
báðum höndum. Settu íinguma fast
niður í hársvörðinn og nuddaðu hann