Tíminn - 07.09.1982, Blaðsíða 16

Tíminn - 07.09.1982, Blaðsíða 16
16______ íþróttir ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982. ■ Helga Halldórsdóttir KR setti nýtt íslandsmet í sjöþraut um helgina. Hér á myndinni er hún ásamt Valbimi Þorlákssyni þjálfara. Islandsmet í sjöþraut ■ Bikarkcppni FRÍ í fjölþrautum var haldin nú um helgina. Keppt var í tugþraut karla og sjöþraut kvenna og urðu KR-ingar hlutskarpastir bæði í kvenna og karlaflokkum. Fyrirkomu-i lagið var þannig að besti árangur tveggja keppenda frá hverju félagi var talinn. t fjöþrautinni sigraði Helga Halldórsdótt- ir KR og hlaut hún 4924 stig og er það nýtt íslandsmet og 300 stigum betra en fyrra met. í öðru sæti varð Kolbrún Rut Stephens og hlaut hún 4174 stig og í þriðja sæti varð Linda B. Loftsdóttir FH og hlaut hún 4118 stig, sem er nýtt Íslandsmet í telpnaflokki. í tugþrautinni sigraði Gísli Sigurðsson UMSS og hlaut hann 6918 stig. í öðru sæti var Sigurður T. Sigurðsson KR og náði hann 6612 stigum og þriðji varð Elías Sveinsson KR með 6576 stig. Á þessu móti setti Sigurður Magnús- son ÍR nýtt unglingamet í stangarstökki, hann stökk 4,30 metra og Kristján Gissurarson náði sínum besta árangri í stangarstökki og stökk 5,05 metra. F ramarar steinlágu ■ Á Laugardalsvelli léku á laugar- daginn Fram og ÍBÍ í keppni 1. deildar og var leikurinn mjög mikilvægur fyrir bæði liðin og þeim nægði ekkert annað en sigur ef vel hefði átt að vera. En það var aðeins annað liðið sem gat staðið uppi sem sigurvegari í leikslok og að þessu sinni varð það hlutskipti ísfirð- inga, en þeir sigruðu Fram stórt, eða með fjórum mörkum gegn engu. Fyrri hálfleikurinn var fremur tíðinda- lítill og hið eina sem athygli vakti öðru fremur var mark Gústafs Baldvinssonar, sem Gísli Guðmundsson dómari dæmdi af. Staðan í hálfleik var því 0-0 og talsverð barátta hjá báðum liðum. En í síðari hálfleik varð Einar Jónsson fyrstur til að skora mark, á 10 mínútu. Þá tóku ísfirðingar innkast og knettinum var nikkað til Einars, sem sendi hann af öryggi í netið framhjá Guðmundi Baldurssyni markverði. Annað markið skoraði svo Jón Oddsson og sendi hann knöttinn í boga yftr Guðmund markvörð og staðan var orðin 2-0. Þriðja mark leiksins skoraði svo Gústaf Baldvinsson, en Guðmundur hafði hálfvarið skot og knötturinn hrökk til Gústafs sem afgreiddi hann af öryggi í netið. 3-0 og sigur ÍBÍ var alveg öruggur, en þeir voru ekki alveg ánægðir, hcldur bætti Gunnar Pétur Pétursson um betur og skoraði fjórða markið og það var síðasta mark leiksins. Þetta stórt tap hefur án efa verið mikil vonbrigði fyrir Framliðið. Staða þeirra hafði batnað verulega er þeir sigruðu Víking á dögunum og töldu margir að falldraugurinn væri úr sögunni hjá þeim að sinni. En það er svo sannarlega ekki raunin. Liðið er í bullandi fallhættu og þeim dugir ekkert annað en sigur í síðasta leiknum í 1. deildinni í Vestmannaeyjum um næstu helgi. ís- firðingar standa hins vegar mun betur, enda þótt þeir eigi fyrir höndum erfiðan leik gegn ÍBK um næstu helgi. Þeir hafa hlotið 16 stig í 1. deildinni, sem er mun meira en flestir reiknuðu með og þurfa aðeins 1 stig til að komast hjá fallhættu. En það verður að segjast eins og er, að gangur íslandsmótsins að þessu sinni hefur verið vægast sagt einkennilegur og segir stigataflan meira um það en mörg orð. Það munar til að mynda ekki nema 8 stigum á efsta og neðsta liði og hefur íslandsmótið aldrei verið eins jafnt eins og núna. En um næstu helgi fæst úr því skorið hverjir verða fslandsmeistarar og eins hverjir falla niður í 2. deild. sh Víkingar eru nær öruggir - sigrudu KA á Akureyri 2-0 ■ Útlitið dökknaði heldur betur hjá KA í 1. deildinni í knattspyrnu um helgina, en þá tapaði liðið í hinum þýðingamikla leik sínum gegn meistur- um Víkings sem leikinn var á Akureyri. Úrslitin 2:0 fyrir Víking og virðist nú fátt geta stöðvað Víking í því að endur- heimta titil sinn frá í fyrra. Staða KA er hinsvegar orðin mjög erfið, og dugir ekkert nema sigur gegn Breiðabliki á útivelli í síðasta leiknum til að forða fallinu í 2. deild. Víkingar voru áberandi betri aðilinn í leiknum á laugardag. Þeir fengu fljótlega ágæt tækifæri en fyrra markið kom þó ekki fyrr en á 27. mínútu. Ragnar Gíslason lék þá laglega á KA-mann við endamörk, kom bolt- anum síðan fyrir markið og Sverrir Herbertsson var á réttum stað og skoraði örugglega. Rétt fyrir leikhlé átti svo Stefán Halldórsson gott skot úr aukaspymu sem small í þverslá KA-marksins en á síðustu mínútu hálfleiksins fengu KA- menn sitt eina tækifæri í hálfleiknum er Ásbjörn skaut fyrir úr ágætu færi. KA-liðið var mun hressara í síðari hálfleiknum og Ögmundur mátti nokkr- um sinnum beita sér af alefli í markinu. KA-mönnum tókst að skora upp úr miðjum hálfleiknum en það var dæmt af vegna brots á markvörð Víkings. Á 79. mínútu leiksins fékk KA svo sannkallað dauðafæri til að jafna. Elmar gaflaglega á Hinrik Þórhallsson sem var aleinn á markteig fyrir opnu marki, er þrumu- skot Hinriks small í þverslánni og út á völlinn. Þar sluppu Víkingar fyrir horn og er ekki gott að segja til um úrslit leiksins ef Hinrik hefði skorað þarna. Rétt fyrir lokin skoraði svo Jóhann Þorvarðarson annað mark Víkings, Þorvaldur markvörður KA varði skot frá Heimi Karlssyni en hélt ekki boltanum og Jóhann náði til hans. Þessi leikur geymist ekki í minn- ingunni sem einn af bestu leikjum sumarsins, enda bar hann öll merki þess hversu mikilvæg úrslit hans voru fyrir liðin. Seggja má að Víkingar hafi sloppið með skrekkinn, en heilt á litið voru þeir samt betri aðilinn í leiknum þótt jafntefli hefði gefið réttari mynd eftir marktækifærum að dæma. Dómarinn varð fyrir aðkasti Vítadómur, sem var að margra mati mjög vafasamur tryggði Vestmannaey- ingum sigur í leik þeirra gegn ÍA á Akranesi á laugardag. Vilhjálmur Þór dómari taldi Jón Gunnlaugsson vera brotlegan gagnvart sóknarmanni ÍBV og úr vítaspyrnunni skoraði Sigurlás Þorleifsson af miklu öryggi. Annars voru það Akurnesingar sem náðu forystu í leiknum og skoraði Jón Landsliðið valið ■ Á miðvikudagskvöld leika Islendingar landsleik gegn Austur- Þjóðverjum á Laugardalsvellinum. Lið Austur-Þjóðverja er mjög sterkt og til vitnis um það, má nefna að rétt fyrir lokakeppni HM á Spáni léku þeir gegn heimsmeisturum Itala og sigruðu 1-0 ■' leik sem háður var í Leipzig. Leikið verður sem fyrr segir á miðvikudag og er landsliðshópur íslands skipaður eftirtöldum leik- mönnum: Þorsteinn Bjarnason ..........ÍBK Guðmundur Baldursson . . . Fram Örn Óskarsson.................ÍBV Trausti Haraldsson ..........Fram Viðar Halldórsson............. FH Sigurður Lárusson..............IA Marteinn Geirsson............Fram Ólafur Björnsson .... Breiðablik Ómar Torfason.......... Víking Gunnar Gíslason................KA Árni Sveinsson.................IA Ragnar Margeirsson............ÍBK Ragnar Margeirsson............IBK Sigurður Grétarsson . . Breiðablik Pétur Pétursson .... Antwerpen Sigurjón Kristjánsson . Breiðablik F.ins og sjá má af upptalningunni leikur aðeins einn þeirra atvinnu- manna sem leika erlendis gegn Þjóðverjunum, en það er Pétur Pétursson og er orðið alllangt síðan íslenskir knattspyrnuunnendur hafa fengið að sjá hann leika hér á landi. Gunnlaugsson með skalla upp úr hornspyrnu. Fáum mínútum síðar jafnaði Sigurlás, en naut við það góðrar aðstoðar Kára bróður síns. Og fimm mínútum fyrir leikslok kom svo vítaspyrnudómurinn sem fyrr er nefndur. í fyrri hálfleiknum áttu bæði lið góð færi til að skora. Sigþór fékk gott færi við mark Eyjamanna, Kári Þorleifsson átti gott skot að marki IA sem Davíð varði vel og tvívegis fékk Guðbjörn Tryggvason tækifæri til að skora hiá ÍBV. Besti maður hjá IBV var Páll ásamt Sigurlás, en Ámi Sveinsson lék best Skagamanna. Að leik leiknum var gerður aðsúgur að dómara leiksins og í samtali við Tímann taldi hann það valda vissum vandræðum að dæma á Akranesi og að framkoma áhorfenda þar gæti orðið tilefni þess að hann gerði við hana athugasemdir til réttra aðila. Hann sagði, „núna köstuðu áhorfendur bara í mig grasi, en stundum áður hefur það verið grjót og slíkt er ekki hægt að lfða.“ sh Þróttur N. lagði FH. ■ Heil umferð var leikin í 2. deildar- keppninni í knattspyrnu um helgina. Á laugardag léku á Húsavík lið Völsungs og Fylkir. Leiknum lauk auðvitað með jafntefli, hvorugu liðinu tókst að skora. Jafnteflið gegn Völsungi er 11 jafntefli Fylkismanna í 2. deild í sumar, en þeim hefur aðeins tekist að vinna einn leik. Liðið er f alvarlegri fallhættu, eiga aðeins einn leik eftir og það gegn 2. deildarmeisturum Þróttar. Óvæntustu úrslit umferðarinnar urðu í leik Þróttar Neskaupstað og FH, en leikið var á Norðfirði. Þar sigruðu heimamenn mað þremur mörkum gegn einu. Eru Þróttarar nú í neðsta sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Fylkir, en þrjú lið hafa einu stigi meira eða 14. Eru það Einherji, Njarðvík og Skallagrímur. Borgnesingar kræktu sér í 2 dýrmæt stig, er þeir sigruðu Einherja með fjórum mörkum gegn tveimur. Gunnar Jónsson, sem lék á síðasta keppnis- tímabili með ÍA skoraði tvö mörk fyrir Skallagrím, en Gunnar Orrason og Garðar Jónsson skoruðu eitt mark hvor. Fyrir Vopnfirðingana skoruðu Ingólfur Sveinsson og Gísli Davíðsson. Á sunnudag léku svo í Njarðvík heimamenn gegn Reyni úr Sandgerði og sigruðu gestimir með fjórum mörk- um gegn einu. Fyrir Reyni skoruðu Freyr Sverrisson, Ari Arason, Pétur Brynjarsson og BjamiKristjánsson, en Guðmundur Sighvatsson skoraði fýrir Njarðvík. Þróttur Reykjavík heldur sínu striki og á sunnudag léku þeir gegn Þór á Laugardalsvelli. Og Þróttarar sigruðu með tveimur mörkum gegn einu og sáu Sverrir Pétursson og Bjarni Harðarson um mörkin fyrir Þrótt. Þórsarar skoruðu sitt mark úr vítaspyrnu og gekk heldur brösulega að koma knettinum í netið, en tókst þó að lokum. Staðan í 2. deild fyrir lokaumferðina er sem hér segir: Þróttur R....... 17 12 4 1 27:8 28 Þór Ak.......... 17 7 7 3 33:17 21 Reynir.......... 17 8 3 6 24:16 19 FH.............. 17 6 6 5 19:23 18 Völsungur .... 17 5 6 6 20:19 16 Einherji........ 17 6 2 9 23:29 14 Njarðvík........ 17 5 4 8 20:28 14 Fylkir...........17 1 11 5 12:18 13 Þróttur N .... 17 5 3 9 10 .24 13 sh Víðir vann ■ Kvennalið Víðis í Garði varð sigurvegari í 2. deild kvenna í knatt- spyrnu. Stelpumar úr Garðinum sigmðu KA í úrslitaleik um helgina með einu marki gegn engu. Þær munu því leika í 1. deild kvenna á næsta keppnistímabili.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.