Tíminn - 08.09.1982, Qupperneq 1
íslendingaþættir fylgja bladinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Miðvikudagur 8. september 1982
203. tbl. - 66. árgangur.
■ Utanríkisráðherra mun á næstu
dögum skipa tvo menn til að gera
hlutlausa úttekt á svokölluðu „bónus-
máli“ í Fríhöfninni á Keflavikur-
flugvelli, en nokkrar deilur hafa staðið
um bónusgreiðslur til starfsmanna
hennar eftir að ákveðið var að koma
þeim á.
„Það stendur til að skipa tvo menn
til að gera þessa úttekt. Starfsmenn
Fríhafnarinnar voru að einhverju leyti
óánægðir með þessar bónusgreiðslur
og við viljum leita eftir samkomulagi
í málinu“, sagði Ólafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra, í samtali við
Tímann.
Ólafur kvaðst ekki geta sagt til um
hve langan tíma slík úttekt tæki, enda
ekki formlega búið að skipa mennina.
Samkvæmt heimildum Tímans mun
þeim Benedikt Sigurjónssyni, fyrr-
verandi Hæstaréttardómara, og Eiríki
Pálssyni, fyrrverandi skattstjóra,
verða falið að hafa úttektina með
höndum.
Uttektin mun snúa að því að
endurskoða útreikning launa starfs-
manna í verslun og á lager Frí-
hafnarinnar, og hvort vinnuframlag
hvers einstaklings sé í samræmi við
upphaflegan bónussamning. Bónus-
samningurinn sem deilt er um gilti fyrir
árið 1981. Ágreiningur varö um það í
byrjun þessa árs hvernig ágóðanum
yrði skipt innbyrðis á milli starfs-
manna, en honum lauk með því að
forstjóri Fríhafnarinnar kvað endan-
lega upp um það hvernig honum skyldi
ráðstafað. Úttektin á aö leiða í ljós
hvort þar hafi verið rétt að verki staðið.
FRI
T ónlistarmenn:
FELLDU
SAMKOMU-
LAG ASÍ
■ „Við felldum samkomulag ASÍ frá
því í vor, en það átti einnig að ná til
okkar, enda kom það mun lakara út fyrir
okkur en aðra launþega“ sagði Finnur
Torfi Stefánsson lögfræðingur Félags
íslenskra hljómsveitarmanna í samtali
við Tímann en félagið stendur nú í
kjaradeilu við viðsemjendur sína sem
eru Samband veitinga- og gistihúsa.
Pessi deila nær þó aðeins til tónlistar-
manna á veitingahúsum.
„Ástæður þess að ASÍ samkomulagið
var okkur svo óhagstætt eru frekar
„býrókratísks“ eðlis fremur en að
veitingamönnum sé um að kenna. Eftir
því sem ég best veit hafa veitingamenn
ekkert á móti því að tónlistarmenn fái
sömu kauphækkanir og aðrir launþegar.
Hinsvegar hafa þeir afsalað sér samn-
ingsrétti sínum til ýmissa milliliða þar
sem VSÍ er toppurinn á, með þeim
afleiðingum að um langt skeið hefur
okkur ekki tekist að ná neinum
viðræðum við okkar eiginlegu við-
semjendur um eitt eða annað heldur
þurfum við jafnan að horfast í augu við
fulltrúa VSÍ. En fulltrúar VSÍ hafa lítinn
áhuga og takmarkaðan skilning á
aðstæðum hjá veitingamönnum og
hljóðfæraleikurum.
Nú er svo komið að mörg atriði
kjarasamnings okkar eru orðin úrelt og
uppi óskir bæði af hálfu veitingamanna
og tónlistarmanna að breyta þar ýmsu.
Þetta hefur ekki náð fram að ganga þar
sem valdið er í höndum VSÍ og þar líta
menn einungis á prósentur og launa-
flokka".
Hverjar eru kröfur ykkar?
„Við höfum sett fram ítarlegar kröfur
í þessum viðræðum en aðalatriði þeirra
eru að við fáum sambærilega kauphækk-
un á við aðra sem samið hafa. Það
fengum við ekki á sínum tíma.“
Er verkfall yfirvofandi?
„Samningar standa enn og ég vona
fastlega að takist að ná samkomulagi, en
ég get ekki útilokað þann möguleika að
til verkfalls komi“ sagði Finnur Torfi
Stefánsson. - FRI
Þriðji
heimurirm
- bls. 7
Ljósasjó
Russells
— bls. 23
■ Kartöflur, kartöflur og aftur kartöflur. Kartöfluvertíðin er hafln jafnt hjá háum sem lágum og búist við að uppskeran
verði í rúmu meðallagi. Kartöflubændur norðan og sunnan lands byrjuðu að taka upp með stórvirkum vinnuvélum um
helgina en hann Ámi Sigurðsson, níu ára sem blaðamenn Tímans hittu í kartöflugörðunum við Korpúlfsstaði í nágrenni
Reykjavíkur, lét sér nægja guðsgafflana og uppskeran...hún var bara ágæt.
Sjá nánar bls. 5 ESE/Tímamynd Róbert
—____^MMMBWwMaMBaaa
Utanrlkisráðherra grípur inn í bónusmál Fríhafnarinnar
FYRIRSKIPAR HLUTLAUSA
ÚTTEKT TVEGGJA MANNA