Tíminn - 15.09.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 15.09.1982, Qupperneq 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ — “ ‘ " Miðvikudagur 15. september 1982 209. tbl. - 66. árgangur. Aðstoðar- maöur Bunuels: — bls. 23 Kosid í Svíþjóð — bls. 7 DR. KRISTJÁN ELDJÁRN LÉST SÍDDEGIS í GÆR — eftir að hafa gengid undir uppskurð f Bandaríkjunum ■ Dr. Kristján Eldjárn, fyrrum forseti íslands, lést á sjúkrahúsi í Cleveland í Ohio í Bandaríkjunum síðdegis í gær eftir að hafa daginn áður gengið undir uppskurð, sem stóð í níu klukkustundir. Hann var 65 ára að aldri. Frú Vigdís Finnbogadóttir, for- seti íslands, sendi frá sér ávarp vegna fráfalls dr. Kristjáns Eld- járns, og segir þar: „Hryggð mín við fráfall dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrverandi for- seta íslands, er dýpri en ég fæ tjáð í orðum. Vér íslendingar, hver og einn, höfum misst mikinn og mætan vin. íslensk þjóð sameinast í söknuði og horfist í augu við örlög, sem kallað hafa „svo vænan vinnu- mann afvelli heim á bæ um miðjan dag“. “ Dr. Kristján var fæddur 6. desember árið 1916 á Tjörn í Svarfaðardals- hreppi í Eyjafirði. Foreldrar hans voru Þórarinn Kristjánsson Eldjárn bóndi og kennari þar og kona hans Sigrún Sigurhjartardóttir. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1936 og hélt þá til náms við Kaupmannahafnarháskóla, þar sem hann stundaði nám fram á árið 1939. Hann tók mag. art. próf í íslenskum fræðum frá Háskóla íslands árið 1944, og varði doktorsritgerð sína, Kuml og haugfé úr heiðnum sið á íslandi, við háskólann árið 1957. Dr. Kristján stundaði kennslu við Menntaskólann á Akureyri 1939-41. Hann var aðstoðarmaður við Þjóð- minjasafn íslands 1945-1947 og skipað- ur þjóðminjavörður i. desember 1947. Því starfi gegndi hann til ársins 1968, er hann var kjörinn þriðji forseti íslenska lýðveldisins í glæsilegri kosn- ingu, þar sem hann fékk 65% greiddra atkvæða. Dr. Kristján gegndi forseta- embættinu í þrjú kjörtímabil; var endurkjörinn án kosninga 1972 og 1976. í nýársávarpi sínu 1. janúar 1980 tilkynnti hann þjóðinni, að hann gæfi ekki kost á sér á ný, og lét af forsetaembættinu um mánaðamótin júlí/ágúst það ár. Hann ritaði margar bækur og ritgerðiium fræðileg efni og sat í stjórnum ýmissa félaga og stofnana. Dr. Kristján kvæntist 6. febrúarárið 1947Halldórulngólfsdóttur Eldjárn og varð þeim fjögurra barna auðið. Dr. Kristján Eldjárn var ástsæll með þjóð sinni og er fráfall hans lands- mönnum öllum harmafregn. Tíminn sendir frú Halldóru Eldjárn og börnum þeirra hjóna innilegustu samúðarkveðjur. -ESJ. Dr. Kristján Eldjárn, fyrruni forseti íslands Getrauna leikurinn — bls. 15 Hrossa- eignin - bls. 8-9 Sjómenn og útgerðarmenn á Höfn: NEITA AÐ RÓA FYRR EN SÍLDARVERD ER AKVEDK) ■ Sjómenn og útgerðar- menn á Höfn í Hornafirði hafa samþykkt að hefja ekki síldveiðar í reknet fyrr en sfldarverð liggur fyrir. Sfldveiðarnar máttu hefjast á miðnætti sl., en sökum stöðvunar fískveiðiflotans var óvíst um framhald veiðanna eftir miðnætti nk. föstu- dags. Ólafur Þorbjörnsson, skipstjóri á Höfn sagði í samtali við blaðið að algjör samstaða hefði verið meðal þeirra 50-60 útgerðarmanna sem sóttu fundinn og hefði verið ákveðið að róa ekki fyrr en síldarverðið lægi fyrir. Væri þetta í samræmi við samþykkt sem gerð hefði verið á Neskupstað í fyrra. - ESE

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.