Tíminn - 24.09.1982, Síða 1
„Helgarpakkinn” er 12 sídur í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Föstudagur 24. september 1982
217. tbl. - 66. árg.
■ Kista dr. Kristjins Eldjára borin úr Dómkirkjunni að útför hans lokinni. Þeir sem bára kistuna, vora handhafar forsetavalds, þeir dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, Jón Helgason, forseti sameinaðs þings
og Logi Einarsson, forseti Hæstaréttar. Auk þeirra báru kistuna þeir Guðmundur Magnússon, háskólarektor, Björa Vilhjálmsson, þjóðskjalarektor, Hannes Pétursson skáld, (hann erfyrir aftan Björa) ÞórMagnús-
son, þjóðminjavörðurog Andrés Björasson, útvarpsstjóri. — Tímamynd: Róbert.
Fylgst var með virðulegri útför dr. Kristjáns Eldjárn um allt land:
ÉG VIL ELSKA MITT LAND
VAR HJARTALAGIÐ HANS”
— sagði biskup íslands í ræðu sinni við útförina í Dómkirkjunni
■ Gjörvöll þjóðin fylgd-
ist með útför dr. Kristjáns
Eldjárn , fyrrum forseta
Islands, í gær, en hún var
gerð frá Dómkirkjunni.
Var athöfninni bæði út-
varpað beint og sjónvarp-
að og fylgdust þeir sem tök
höfðu á með henni, auk
þess sem Dómkirkjan var
að sjálfsögðu þétt setin.
Biskupinn yfir Islandi,
herra Pétur Sigurgeirsson
jarðsöng, séra Þórir Step-
ensen, dómkirkjuprestur
þjónaði fyrir altari og séra
Olafur Skúlason, dómpró-
fastur flutti bæn.
Biskupinn greindi í upphafi ræðu
sinnar frá því er Sálómon konungur bað
Drottin um gaumgæfi hjartans, til að
stjórna þjóð hans og greina gott frá illu
og drottinn varð við bæn hans. Skömmu
síðar sagði biskup: „Við reyndum dr.
Kristján Eldjárn að miklum mannkost-
um og fundum þá í hjarta hans.
Hann fékk sama svar Drottins og
konungurinn í bænsiinni. „Ég gef þér
gaumgæfi og skynugt hjarta. Nú er það
hjarta hætt að slá og því er íslenska
þjóðin hljóð og hnípin."
Síðar í ræðu sinni sagði herra Pétur:
„Dr. Kristján unni landi sínu og þjóð.
Það kom fram við hvert tækifæri í ræðu
og riti. Minnisstæðar verða þær stundir
er hann ávarpaði þjóðina. Hvernig hann
bjó yfir auðugri lifandi þekkingu á
íslenskri þjóðmenningu og flutti ylhýra
málið sitt af virðingu, hógværð og
andagift. Ég vil elska mitt land - var
hjartalagið hans, - ísland, ættjörðin ,
móðurmoldin, föðurlandið.“
Niðurlagsorð biskupsins voru þessi:
„Að síðustu kveð ég þig vinur með þinni
eigin þýðingu á fyrirbænarorðum norska
trúarskáldsins: „Ég fel þig góðum Guði
á vald, þinn genginn veg og áframhald“.
Þjóðin er öll hér í anda með hinstu
kveðju sína. Hvert blóm er bæn og þökk
við kistu þína. Eilífðin mæti þér björt
og fögur, eins og minning þín lifir í
geislaskini. í Jesú nafni, amen.“
Dómkórinn, kirkjukór Dómkirkjunn-
ar söng við útförina. Söng kórinn
sálmana „Á hendur fel þú honum“,
„Hærra, minn Guð til þín“, og „Allt eins
og blómstrið eina“, en þar að auki söng
kórinn „ísland ögrum skorið“.
Þá lék Guðný Guðmundsdóttir, fiðlu-
leikari, „Máríá, mild og há“ eftir Pál
ísólfsson, við undirleik organistans
Martins Hunger Friðrikssonar.
Dr. Kristján Eldjárn var lagður til
hinstu hvíldar í Fossvogskirkjugarði og
er kista hans var borin úr kirkju, stóðu
lögregla og skátar heiðursvörð og
Lúðrasveit Reykjavíkur lék þjóðsöng
íslendinga, „Ó, Guð vors lands“.
Þeir sem báru dr. Kristján Eldjárn úr
kirkju voru handhafar forsetavalds, þeir
Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra,
Jón Helgason, forseti sameinaðs þings,
og Logi Einarsson forseti Hæstaréttar.
Auk þeirra báru kistuna þeir Hannes
Pétursson, skáld, Guðmundur Magnús-
son, háskólarektor, Þór Magnússon,
þjóðminjavörður, Andrés Björnsson,
útvarpsstjóri og Bjarni Vilhjálmsson,
þjóðskjalavörður.
- AB.
Sjá nánar bls. 6 og 7