Tíminn - 24.09.1982, Side 4

Tíminn - 24.09.1982, Side 4
4_________________________ Forsætisnefnd Norðurlandaráðs auglýsir stöðu upplýsingastjóra í skrifstofu hennar í Stokkhólmi Verkefni upplýsingastjórans er m.a.: 1) að sjá í samvinnu við innlenda skrifstofustjóra ráðsins um upplýsingar á þingum Norðurlandaráðs og öðrum fundum; 2) að miðla innan Norðurlanda og utan fræðslu um Norðurlandaráð og norrænt samstarf á öðrum sviðum; 3) að stjórna upplýsingadeildinni; 4) að vera ritari upplýsinganefndar Norðurlandaráðs. Umsækjandi þarf að þekkja vel til norrænnar samvinnu, þjóðfélagsmála og stjórnskipunar. Laun og starfskjör fara að nokkru eftir reglum um sænska ríkisstarfsmenn, að nokkru eftir sérstökum norrænum reglum. Laun eru samkvæmt 23.-25. flokki í sænskum launastiga (10.753-12.910 sænskar krónur á mánuði), auk uppbótar vegna dvalar erlendis og persónuuppbótar. Starfstími er fjögur ár frá og með 1. nóvember 1982 eða sem fyrst að þeim degi liðnum. Ríkisstarfsmaður á samkvæmt samkomulagi milli Norðurlanda rétt á fjögurra ára leyfi til að starfa í sameiginlegri skrifstofu Norðurlanda. Nánari upplýsingar veita llkka-Cristian Björklund skrifstofustjóri forsætisnefndarinnar, Inger Jágerhorn upplýsingastjóri (sími í Stokkhólmi 14 34 20) eða Friðjón Sigurðsson ritari íslandsdeildar Norðurlandaráðs, skrifstofu Alþingis (sími 1 15 60) Umsóknir skal stíla til forsætisnefndar Norðurlandaráðs, (nordiska Rádets presidium) og senda forsætisskrifstofunni (Nordiska Rádets presidesekretariat, box 19506, A-10432 Stokkholm) í síðasta lagi miðvikudaginn 29. september 1982. Auglýsing um verkamannabústaði á Selfossi Stjórn Verkamannabústaða á Selfossi auglýsir hér með til sölu , eftirtaldar íbúðir að Háengi 12-14. Byggðar skv. lögum n. 51/1980 og reglugerð nr. 527/1980 8 íbúðir 13ja herbergja 57 ferm. 2 íbúðir 5 herbergja 114 ferm. Upplýsingar um rétt til kaupa á íbúð í Verkamannabústöðum liggja frammi hjá bæjarritara á skrifstofu Selfossbæjar Eyrarvegi 8. Einnig veitir hann upplýsingar um áætlað verð og greiðsluskilmála. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 15. okt. n.k. til skrifstofu Selfossbæjar á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi á sama stað. Seifossi 21. sept. 1982 Stjórn Verkamannabústaða á Selfossi ERNIR P „ímar ftAFmm Slm0agr 369S Bflaleíga JEPPAR FÓLKSBÍLAR^^ Undirmenn f verkfall á hádegi f dag: FiÖRUTÍU FAR- SKIP STÖDVAST — hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma ■ Allt bendir til þess að verkfall skelli á hjá undirmönnum á farskipaflotanum á hádegi í dag. Að vísu hefur verið boðaður sáttafundur hjá ríkissáttasemj- ara klukkan níu árdegis með vinnuveit- endum og fulltrúum Sjómannafélags Reykjavíkur, en mikið ber enn á milli og engin hreyfing hefur verið á þessum málum undanfarna daga. Að sögn Guðmunds Hallvarðssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur nær boðað verkfall undirmanna til um 250 manna og um 40 farskip munu stöðvast, ef ekki semst fyrir hádegi. Undanþegin verkfallsboðuninni eru hafrannsóknarskipin, varðskipin og sanddæluskipin. -Ef til verkfalls kemur þá munum við sjá til hvað gerist í sambandi við leiguskipin, sagði Guðmundur Hall- varðsson. -Ef þeim fjölgar frá því sem orðið er þá munum við grípa inn í og fá þau stöðvuð með hjálp frá Alþjóðaflutninga verkamannasambandinu. Guðmundur sagði annars að þróunin í leiguskipamálunum væri uggvænleg. Þeim virtist hafa fjölgað mjög undanfarin ár og til marks um það mætti nefna að árið 1975 komu þau 10 sinnum til hafnar í Reykjavík, en sambærileg tala fyrir árið í fyrra væri 117 skipakomur. - Það hafa verið eitt til tvö norsk leiguskip í stöðugri leigu hjá ríkisskip, eftir að Heklunni var lagt, en um borð í þessum skipum eru norskar áhafnir, sagði Guðmundur. Guðmundur tók fram að þetta skyti nokkuð skökku við á sama tíma og verið væri að tala um að efla íslenskt, en bæði Farmanna-og fiskimannasambandið og Sjómannafélag Reykjavíkur hefðu fært þessi mál í tal við samgönguráðherra. Þar hefði verið lofað að athuga málin, en ekkert hefði verið gert enn sem komið er. - ESE. Yfirnefnd f jallar um verð á síld til frystingar Verðlagsráð sjávarútvegsins fjallaði á fundi sínum í gær um verð á síld til frystingar. Niðurstaða fundarins varð sú að ákveðið var að fela yfirnefnd Verðlags- ráðs sjávarútvegsins að komast að niðurstöðu um verðið. Kemur yfirnefnd fljótlega saman til fundar um þetta mál, en yfirnefnd hefur nýlega ákveðið verð á síld til söltunar og hækkaði það um 37% á milli ára. -ESE Notaðir lyftarar í miklu úrvali 2. t. raf/m. snúningi 2.5 t raf 1.5 t pakkhúslyftarar 2.51 dísil 3.2 t dísil 4.3 t dísil 5.0 t dísil m/húsi 6.01 dísil m/húsi UÁ ■sf K. JÓNSSON & CO. HF. Vitastíg 3 Sími 91-26455 HVAÐ MEÐÞIG m u Snjóruðningstæki: Framleiðum snjóruðnings- tennur fyrir vörubíla og dráttarvélar. Pantanir þurfa að berast sem fyrst svo hægt' verði að afgreiða þær fyrri part vetrar Stáliækni sf. Síðumúla 27, sími 30662 BORNIN LÆRA AÐ DANSA Það er hverju barni hollt að læra að dansa. Það eykur sjálfs- traustið og skap- ar gleði. Kennslustaðir ^ Reykjavík Kópavogur Brautarholti 4, Hamraborg 1, Drafnarfell 4, Seltjarnarnes ' Ársel (Árbæ) Félagsheimilið Bústaðir Hafnarfjöður Tónabær Gúttó INNRITUN OG UPPLÝSINGAR KL. 10—12 OG 13—19 Símar g 20345, 24959, A 1,, 38126,74444. DnnssHOu ■ Veist þú hverju það getur forðað yUJJFEROAR Hvenær byrjaðir þú Jf* -llX IFERÐAR

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.