Tíminn - 24.09.1982, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1982
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdast]óri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stelngrfmur Gfslason.
Skrlfstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttlr. Afgrel&slustjóri: Sigur&ur Brynjólfsson
Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elfas Snæland Jónsson. Rltstjórnarfulltrúl: Oddur
V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Haligrfmsson. Umsjónarmaður Helgar-Tfmans: Atll
Magnússon. Bla&amenn: Agnes Bragadóttlr, Bjarghlldur Stefánsdóttir, Elrfkur St.
Elrfksson, Fri&rik Indrl&ason, Hel&ur Helgadóttir, Sigur&ur Helgason (fþróttlr), Jónas
Gu&mundsson, Kristfn Lelfsdóttlr, Skafti Jónsson. Útlltstelknun: Gunnar Traustl
Gu&björnsson. Ljósmyndir: Gu&jón Elnarsson, Gu&jón Róbert Ágústsson, Elfn
Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttlr. Prótarklr: Flosl Krlstjánsson, Kristfn
Þorbjarnardóttir, Marfa Anna Þorstelnsdóttir. Rltstjórn, skrifstofur og auglýslngar:
Sfðumúla 15, Reykjavfk. Sfml: 86300. Auglýslngasfml: 18300. Kvöldsfmar: 86387 og
86392.
Ver& f lausasölu 9.00, en 12.00 um helgar. Áskrlft á mánu&l: kr. 130.00.
Setnlng: Tækntdelld Tfmans. Prentun: Bla&aprent hf.
Atvinnuleysi
bægt frá
■ Fiskveiðiflotinn er nú allur á sjó eftir að samkomulag
náðist um viðunandi aðgerðir til að losa útgerð úr þeirri
úlfakreppu sem hún var komin í. Minnkandi afli og aukinn
fjármagnskostnaður að ógleymdum olíukostnaði, sem var að
bera útgerðina ofurliði, lögðust á eitt um að veikja svo
fjárhagsgrundvöll mikilvægustu atvinnugreinar íslendinga að
við stöðnun lá.
Veiðibann útgerðarmanna voru harkalegar aðgerðir, því
það vita allir að hvernig sem veltist í þjóðfélaginu fær
efnahagslífið ekki staðist ef ekki er dreginn fiskur úr sjó.
Það var því einsýnt að leysa þurfti ágreiningsefnin, og það
var gert. Stjórnarandstaðan hefur gert mikið úr því að öll
vandræði útgerðar væru sök sjávarútvegsráðherra og ekki
var laust við að sami tónn kæmi fram hjá talsmönnum
útgerðar. Um skeið leit helst út fyrir að allt þetta viðamikla
mál væri nokkurs konar einvígi milji Steingríms Hermanns-
sonar og Kristjáns Ragnarssonar. En svo er ekki, vandamál
og afkoma útgerðar koma allri þjóðinni við.
Fær raddir hafa heyrst, að sjávarútvegsráðherra hafi verið
fullfljótur á sér að höggva á hnútinn og leysa málin á þann
veg að flotinn gat leyst festar og farið á sjó. Brestur hafi
verið kominn í samstöðu útgerðarmanna, togarar og bátar
farnir á sjó í trássi við veiðibannið og mörg útgerðarfélög
komin á fremsta hlunn með að gefast upp og Iáta skip sín
róa, þegar samkomulag náðist um viðunandi lausn.
Það má vel vera að veiðibannið hefði verið brotið á bak
aftur, en það cr ekki aðalatriðið - heldur að skipin fiski og
skili afla á land, eftir að fjárhagsgrundvöllur útgerðar var
treystur nokkuð.
Steingrímur Hermannsson leit ekki á þessa deilu sem
einvígi við Kristján Ragnarsson eða samtök útgerðarmanna,
og vann ekki að lausn málsins með því hugarfari að koma
ímynduðum andstæðingi á kné.
Sjávarútvegsráðherra marglýsti því yfir meðan á deilunni
stóð, að skipin yrðu að láta úr höfn hvað sem tautaði og
raulaði, þótt sér væri skapi næst að hætta viðræðum og leyfa
útgerðarmönnum að binda skip sín, þegar öldurnar risu hvað
hæst í deilunni. En það hefði sýnt ábyrgðarleysi að reyna
ekki til hlítar að leysa málið, enda tókst það og landsmenn
geta varpað öndinni léttara.
Þær ráðstafanir, sem gerðar voru til að styrkja
fjárhagsstöðu fiskiskipaflotans og tryggja áframhaldandi
veiðar, eru ekki allra meina bót og það fer eftir aflabrögðum
og mörkuðum hve lengi þær duga, en sjávarútvegur er háður
miklum sveiflum og oft ófyrirsjáanlegum og verður ávallt
áhættusamur. Það er því tómt mál að tala um að vandi
útgerðar verði leystur í eitt skipti fyrir öll.
Afkoma útgerðarfélaga er mjög misjöfn, og ógerlegt er að
setja alla útgerð undir einn hatt þegar rætt er um
rekstrarvanda útgerðar. Afkoma nýrri skipa er mun lakari
en hinna eldri vegna fjármagnskostnaðar. Skuldbreytingar
eiga að bæta þennan mismun að nokkru. Olíusjóðurinn sem
stofnað var til með bráðabirgðalögum kemur allri útgerð til
góða svo og hækkað fiskverð. Kjör sjómanna munu batna í
samræmi við það.
Forsvarsmenn iðnaðarins hafa látið í ljósi áhyggjur vegna
ráðstafananna og talið þær skekkja efnahagsgrundvölf
otvinnuveganna. En iðnaðurinn mun að hluta njóta góðs af
þeim ráðstöfunum sem fiskvinnslunni hefur verið heitið
vegna hækkaðs fiskverðs. Og hafa verður í huga, að ef ekki
þrífst útgerð á íslandi munu aðrar atvinnugreinar ekki þrífast
heldur.
Aðalatriðið er að flotinn er kominn á sjó og því
atvinnuleysi bægt frá dyrum, sem fyrirsjáanlegt var að yrði,
ef veiðibannið hefði dregist á langinn.
OÓ
fréttir
■ Herra Pétur Sigurgeirsson, biskupinn yfir íslandi blessar kistu dr. Krístjáns Eldjám við upphaf útfarar hans í gær.
Fyrir aftan biskupinn eru frá vinstrí, herra Sigurbjörn Einarsson, fyrrverandi biskup, séra Bragi Friðriksson, séra Olafur
Skúlason og séra Þórir Stephensen. Mynd: Gunnar G. Vigsússon
■ Útförinni lokið, og kista dr. Kristjáns Kldjárn borin út úr Dómkirkjunni.
Mynd Gunnar G. Vigfússon
■ Frú Halldóra Eldjám og sonur hennar Ingólfur Ámi Eldjára fylgja dr. Kristjáni, eiginmanni og föður hinstu fylgdina.
Tímamynd Róbert