Tíminn - 24.09.1982, Page 16
dropar
Að hafa tvö
fullkomin eyru
■ ' Rorgarstjórnarfundir eiga
það til að vera langdregnir og
leiðinlegir, eins og aðrir
opinberir fundir hvort sem eru
á vegum sveitarfélaga, Al-
þingis, eða nefnda tengdum
þessum aðilum. Það sem
bjargar þeim ern þá hn ýttin
tilsvör og spaugileg atvik sem
alltaf koma reglulega upp.
Á síðasta borgarstjórnar-
fundi kastaðist örlítið í kekki
milli þeirra Alberts Guð-
mundssonar og Kristjáns Bene
diktssonar borgarfulltrúa. Al-
bert kom í rxðustól til að segja
Kristjáni lítillega til syndanna,
og óskaði jafnframt eftir því að
sökudólgurinn fylgdist með
ræðu sinni. Gekk svo vel
framanaf, nema í miðri ræðu
þá sest einn borgarfulltrúi á
hækjur sínar við stól Kristjáns
og tekur að rxða við hann.
Kunni Albert þessu illa og
biður fundarstjóra að gera hlé
á fundi meðan þessi orðaskipti
eiga sér stað svo athygli
borgarfulltrúans geti heil og
óskipt vcrið við rxðu hans. ,
Kristján bjargaði málunum
þegar í stað og fullyrti að hann
liafi verið að hlusta á Albert og
því þurfi ekkert hlé að gera á
fundinum. Albert heldur því
áfram ræðu sinni og svarar að
bragði að hann hafi vitað að
Kristján hefði tvö eyru, en að'
þau væru svo fullkomin að
hann gæti hlustað á tvo í einu
hvom með sínu eyra: „Það
vissi ég ekki,“ sagði Albert.
Fáklæddur þjálfari
■ Það hefur lengi verið til
siðs að menn stappi stálinu í
sjálfa sig og aðra með
ýmisskonar heitingum. Hvort
sem slíkt tiltæki hefur orðið til
þess að Isfirðingar héldu sæti
sínu í 1. deildarkeppninni í
knattspymu í sumar, eða ekki,
er ekki hægt að fullyrða. Hitt
er hins vegar rétt að Magnús
Jónatasson, þjálfari ísfirðinga,
hét liðsmönnum sínum fyrr í
sumar, að ef liðið héldi sæti
sínu í fyrstu deild, skyldi hann
hlaupa hring á knattspyrnu-
vellinum, fáklxddur, eftir
úrslitaleikinn, að áhorfendum
ásjáandi.
Þetta er skýringin á því að
hálfnakinn maður sást hlaupa
af varamannabekknum í lok
leiks ísfirðinga og Keflvíkinga
á dögunum, og náttúrlega
fylgdu liðsmenn á eftir.
Krummi ...
...sá auglýst í Mogganum í gær
eftir misdjúpum karlröddum.
Þvi er ekki auglýst eftir
strákum í mútum? Eru karl-
raddir ekki misdýpstar á þvi
skeiði?
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
HEDD”
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Stmar (91)7-75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
a. ——labriel ,B,
n HÖGGDEYFAR
y GJvarahlutir sSesío
„ÍSLENSKUR JflZZ
FER NÚ VAXANDI
— rætt vid Sigurd Flosason saxófónleikara í Nýja
kompaníinu sem nýlega kom frá námi í Bandaríkjunum
■ „íslenskt jazzlíf fer nú
vaxandi hérlendis, þetta er
bylgja sem aö miklu leyti
er að þakka Jazzvakningu
og frumkvöðlum á borö
við Guðmund Ingólfsson
og vonandi er þriðja
biómaskeið jazzins í upp-
siglingu“ segir Sigurður
Flosason saxófónleikari í
samtali við Tímann en
hann dvaldi við nám í
Bandaríkjunum í sumar og
lék inn á plötu með Nýja
kompaníinu sem nýlega er
komin út.
„Jazzlífið hér var í mikilli lægð
hérlendis allt framundir 1977-78 er
hlutirnir fóru að gerast og nú er kominn
skóli, Tónlistarskóli FÍH, sem miklar
\onir eru bundnar við og á örugglega
eftir að leiða margt gott af sér en skilyrði
fyrir því að gott jazzlíf fái þrifist hér er
að sjálfsögðu klúbbur þar sem menn
geta haft atvinnu af því að leika jazz.
Það eru margir góðir jazzleikarar við
nám erlendis nú og eftir 5-6 ár koma þeir
inn í þetta líf á fullu þannig að búast má
við að jákvæð þróun á þessu sviði verði
hérlendis á næstu árum“.
Lærði í Boston
„Úti í Bandaríkjunum var ég í
Berklee collage í Boston í eina þrjá
mánuði, það er eina önn, en ég ætla mér
að taka BA gráðu þar í tónlistinni. Það
tekur átta annir þannig að maður fer
þarna aftur um leið og ég hef lokið námi
mínu hér en sem stendur er ég að taka
stúdentspróf og er þar að auki í
Tónlistarskóla Reykjavíkur“ segir
Sigurður.
„Platan sem Nýja kompaníið gaf út
fyrir skömmu var tekin upp seint í vetur,
útkoman tafðist svo af ýmsum ástæðum
en upphaflega átti þessi plata að koma
út í vor“
■ „Þriðja blómaskeið jazzins er vonandi á lciðinni“, sagði Sigurður Flosason
saxófónleikari. Tímamynd: Róbert.
Stór skóli
„Berklee skólinn er mjög stór, tekur
. um 2700 nemendur og kannski má segja
að það sé galli í sjálfu sér. Hinsvegar er
boðið upp á gífurlega marga hluti í
þessum skóla og margir þekktir
jazzleikarar bandarískir hafa lært þar“
Sem dæmi um jazzleikara sem lært
hafa í Berklee nefnir Sigurður þá Chick
Corea, Gary Burton, Quincy Jones og
japanann Thosiho Ariose... „Corea var
raunar rekinn úr þessum skóla fyrir að
vera „síónd“ inn í æfingaherbergi" segir
Sigurður.
Aðspurður um hverjir séu hans
uppáhalds jazzleikarar segir Sigurður að
af saxófónleikurum komi fyrst Charley
Parker en einnig megi nefna þá Ben
Webster, Johnny Hodeges, og Arthur
Blythe en af öðrum megi nefna
píanóleikarann Bill Evans.
Tónleikar
Hvað nánustu framtíð varðar segir
Sigurður að Nýja Kompaníið ætli að
halda nokkra tónleika til að fylgja eftir
nýju plötunni. Verða þeirfyrstu íbyrjun
október og síðan er ætlunin að leika í
skólum og víðar en crfiðlega hefur
gengið að afla húsnæðis til tónleikahalds.
-Fri
FÖSTUDAGUR 24. SEPT.1982
fréttir
Tungnaárdeilan:
Sáttafundur
fram á nótt
■ Sáttafundur í deilu
starfsmanna á Tungnaár-
svæðinu, sem hófst hjá
sáttasemjara klukkan 16 í
gær stóð enn þegar Tíminn
fór í prentun í gærkvöldi.'
Búist var við að fundar
yrði fram eftir nóttu.
Nú hefur verkfall starfs-
manna á Tungnaársvæðinu
staðið í hálfan mánuð.
Eins og staðan var í
gærkvöldi þótti heldur
ólíklegt að samkomulag
næðist.
- Sjó.
Tvö prestaköll laus
■ Biskup íslands hefur
auglýst tvö prestaköll laus
til umsóknar, en það eru
Hólmavíkurprestakall og
Dj úpavogsprestakall.
Séra Andrés Ólafsson
hefur þjónað í Hólmavík-
urprestakalli í nær 35 ár,
en hefur nú hlotið lausn
frá starfi. Prestakallið var
auglýst laust fyrir nokkru,
og rennur umsóknarfrest-
ur út 25. september n.k.
Séra Trausti Pétursson
hefur þjónað í Djúpa-
vogsprestakalli í rúm 33 ár
og hefur hann nú fengið
lausn frá embætti vegna
aldurs.
Prestakallið var auglýst
laust til umsóknar nú í
sumar og var einn umsækj-
andi, séra Bjarni Guðjóns-
son á Valþjófsstað, en
hann hefur nú vegna ein-
dreginna áskorana sóknar-
barna sinna, dregið um-
sókn sína til baka. Presta-
kallið hefur nú verið aug-
lýst að nýju og er um-
sóknarfrestur til 31. okt.
n.k. Séra Kristinn Hóseas-
son í Heiðdölum gegnir nú
bráðabirgðaþjónustu á
Djúpavogi.