Tíminn - 01.10.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 01.10.1982, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1982 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gfsli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gfslason. Skrffstofustjórl: Jóhanna B. Jóhannsdóttlr. Afgreióslustjórl: Slgurður Ðrynjólfsson Rltstjórar: Þórarinn Þórarlnsson, Eifas Snæland Jónsson. Rltstjórnarfulltrúl: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristlnn Hallgrfmsson. Umsjónarmaður Helgar-Tfmans: Atll Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttlr, Bjarghlldur Stefánsdóttlr, Eirlkur St. Eirfksson, Friðrlk Indrlðason, Helður Helgadóttir, Sigurður Helgason (fþróttlr), Jónas Guðmundsson, Krlstfn Lelfsdóttlr, Skafti Jónsson. Útlltsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndlr: Guðjón Elnarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Elfn Ellertsdóttlr. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarklr: Flosl Krlstjánsson, Krlstln Þorbjarnardóttlr, Marfa Anna Þorstelnsdóttir. Rltstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Sfðumúla 15, Reykjavfk. Sfmi: 86300. Auglýslngasfmi: 18300. Kvöldsfmar: 86387 og 86392. Verð f lausasölu 9.00, en 12.00 um helgar. Áskrlft á mánuði: kr. 130.00. Setnlng: Tæknldelld Tfmans. Prentun: Blaðaprent hf. Sjálfsákvörð- unarréttur og mannréttindi ■ Ólafur Jóhannesson utanríkisráöherra flutti ræðu á allsherjarþingi SÞ s.l. þriöjudag. Þar fjallaöi hann um þær miklu viðsjár sem nú eru í heiminum og þann yfirgang og skeytingarleysi sem þjóðum og einstaklingum eru sýnd og hve máttvana samtök SÞ eru. Hann sagði m.a.: „Er við komum til þessa allsherjarþings er ástand alþjóðamála að ýmsu leyti dekkra en það hefur nokkru sinni verið frá lokum síðari heimsstyraldar og stofnun þessara samtaka. Vígbúnaðurinn er tröllslegri, vopnin djöfullegri, hungrið sárara, allsleysið útbreiddara og böl atvinuleysis víðtækara en þekkst hefur á starfstíma þessara samtaka. Vissulega hefur ýmislegt áunnist og við skulum ekki gleyma því. En hitt gtingur í augu, þar sem illa hefur til tekist eða alls enginn árangur náðst. Þegar ég ávarpaði allsherjarþingið 10. sept. á s.l. ári dvaldi ég nokkuð við ýmis ákvæði og stofnskrár mannréttindayfirlýsingar SÞ og bar saman orð og efndir. Á því ári sem síðan er liðið hefur víða haldið áfram að síga á ógæfuhlið í þesum efnum. Einna alvarlegustu atburðirnir hafa átt sér stað í Austurlöndum nær og Póllandi, þótt sitt með hvorum hætti sé, en því miður mætti bæta við ýmsum fleiri dæmum.“ Utanríkisráðherra lagði áherslu á þann vilja utanríkis- ráðherra Norðurlandanna að styðja SÞ og aðgerðir sem miða að því að leysa milliríkjadeilur á friðsamlegan hátt samkvæmt grundvallarreglum stofnskrárinnar um virð- ingu fyrir fullveldi og stjórnmálalegu sjálfstæði allra ríkja. Hann rakti mörg dæmi um misbresti í þessum efnum og sagði að lokum: „Ég hef hér að framan einkum fjallað um ríki, samskipti þeirra við önnur ríki og það virðingarleysi, sem alltof oft lýsir sér í þeim samskiptum. Að sönnu eru það venjulegast einstaklingurinn, maðurinn, sem verður fórnarlambið í slíkum tilvikum, en yfirskynið er trygging hagsmuna eins ríkis gagnvart öðru. Hins vegar er það svo á ábyrgð hvers ríkis, og raunar skuldbinding sem öll ríki þessara samtaka hafa tekið á sig, að tryggja virðinguna fyrir manninum og réttindum hans. Þessi skuldbinding er því miður ekki virt af fjölmörgum þeirra ríkisstjórna, sem hér koma fram fyrir hönd þess fólks sem lönd þeirra byggir, og raunar miklu fleiri ríkisstjórnum en þeim sem þó fylgja að öðru leyti skuldbindingum sínum um samskipti milli ríkja. Er ég ræði um grundvallarmannréttindi hlýt ég að flokka þau undir rétt hvers mannsbarns til réttlátrar hlutdeildar í auðlegð heimsins. Önnur mannréttindi eru lítils virði þeim sem ekki horfir fram á annað en hungurdauðann. Það verður því að vera eitt af meginmarkmiðum samtaka okkar að stuðla að því að hvert það barn sem fæðist í þennan heim fái nægan mat, heilbrigðisþjónustu og menntun við sitt hæfi. Þverrandi sultur, minnkandi hernaðarútgjöld og vaxandi virðing fyrir alþjóðlegum skuldbindingum mættu gjarna verða einkunnarorð þessa allsherjarþings.“ Utanríkisráðherra leggur í ræðu sinni mikla áherslu á það virðingarleysi sem sjálfsákvörðunarrétti þjóða og einstaklinga er sýnt, og að ríkisstjórnir standa ekki við þær skuldbindingar sem þær hafa undirritað og heitið að virða með þátttöku sinni í samtökum Sameinuðu þjóðanna. Þetta á bæði við samskipti við önnur ríki og einstaklinga sem þegnrétt eiga í viðkomndi ríkjum. Það er ekki nóg að fara fögrum orðum um mannréttindi, það verður einnig að sýna virðingu fyrir þeim í verki. Og mannréttindi eru ekki einvörðungu stjórnmálalegs eðlis. Hver einstaklingur sem þessa jörð byggir hefur rétt til að lifa, því pólitísk réttindi eru þeim lítils virði sem hugnurvofan vofir yfir. OÓ á vettvangi dagsins Erum komin hættu- lega nærri hengi- flugi stjórnleysis í alþjódasamskiptum Ræða Ólafs Jóhannessonar utanríkisrádherra á allsherjarþingi SÞ 28. sept. Herra forseti, Leyfið mér að taka undir orð starfsbræðra minna og óska yður til hamingju með kjör yðar í forsæti á 37. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Ég er þess fullviss að reynsla yðar og þekking kemur yður að góðu haldi við leit að lausn á þeim mörgu viðfangs- efnum sem liggja fyrir þessu þingi. Hinn nýi framkvæmdastjóri sam- takanna og starfslið hans hafa haldið áfram fórnfúsu og markvissu starfi að þeim verkefnum, sem Sameinuðu þjóð- irnar hafa falið þeim. Leyfið mér, herra. forseti, að færa þeim þakklæti fyrir störf þeirra og votta framkvæmdastjóranum fullan stuðning minn við tilraunir hans til að leysa mörg og flókin vandamál, sem nú krefjast skynsamlegrar og friðsamlegrar lausnar. Samtök okkar hafa á starfsævi sinni staðið andspænis alvarlegum deilum, sem ógnað hafa friði á stórum svæðum eða jafnvel heimsbyggð allri. Oft hefur tekist að finna friðsamlega lausn, sem þakka má góðum vilja deiluaðila og samtakamætti hinna Sameinuðu þjóða. Önnur deilumál hafa, enn sem komið er, reynst samtökum okkar ofviða. Er við komum til þessa allsherjarþings er ástand alþjóðamála að ýmsu leyti dekkra en það hefur nokkru sinni verið frá lokum síðari heimsstyrjaldar og stofnun þessara samtaka. Vígbúnaður- inn er tröllslegri, vopnin djöfullegri, hungrið sárara, allsleysið útbreiddara og böl atvinnuleysis víðtækara en þekkst hefur á starfstíma þessara samtaka. Vissulega hefur ýmislegt áunnist og við skulum ekki gleyma því. En hitt stingur í augu, þar sem illa hefur til tekist eða alls enginn árangur hefur náðst. Það eru einkum nokkur þeirra atriða, sem ég hef hugsað mér að gera hér að umræðuefni. Þegar ég ávarpaði allsherjarþingið í september á s.l. ári dvaldi ég nokkuð við ýmis ákvæði stofnskrár og mann- réttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóð- anna og bar saman orð og efndir. Á því ári sem síðan er liðið hefur víða haldið áfram að síga á ógæfuhlið í þessum efnum. Einna alvarlegustu atburðirnir hafa átt sér stað í austurlöndum nær og Póllandi, þótt sitt með hvorum hætti sé, en því miður mætti bæta við ýmsum fleiri dæmum. í ársskýrslu sinni til samtakanna vekur framkvæmdasjtórinn máls á miklu á- hyggjuefni, sem er vaxandi virðingar- leysi fyrir ályktunum öryggisráðsins. Ég tek heils hugar undir vamarorð hans um að við séum komin hættulega nærri hengiflugi stjórnleysis í alþjóða- samskiptum. Skipulag samtaka okkar og þá sér í lagi neitunarvaldið hefur í senn verið styrkur þeirra og veikleiki. Breytingar á þessari grundvallar til- högun gætu valdið hruni samtakanna og því tel ég slíkt ekki vera til umræðu. Á hinn bóginn er öllum ljóst að máttur Sameinuðu þjóðanna til að stuðla að friðsamlegri lausn deilumála er lítill sem enginn þegar eitthvert þeirra ríkja, sem neitunarvald hafa, telur beinum eða óbeinum hagsmunum sínum stefnt í hættu með aðgerðum af hálfu sam- takanna og slík staða kemur æ oftar upp. Þessu til viðbótar færist það og í aukana að önnur ríki telja sig hafa nægan styrk til þess að ganga gegn einróma samþykktum öryggisráðsins í skjóli þess að samstaða samtakanna sé ekki nógu sterk til þess að orðum fylgi athafnir. Þessa öfugþróun verður að istöðva. Slíkt verður ekki gert með einhverjum breytingum á sáttmála Sameinuðu þjóð- anna heldur þarf þar til að koma aukinn skilningur þjóðanna á þeirri hættu, sem heimsfriðnum er stefnt í, verði áfram haldið á sömu braut. Á nýafstöðnum fundi utanríksiráð- herra Norðurlanda var ítrekaður ein- dreginn stuðningur þessara rtkja við Sameinuðu þjóðirnar og aðgerðir sem miða að því að leysa milliríkjadeilur á friðsamlegan hátt samkvæmt grund- vallarreglum stofnskrárinnar um virð- ingu fyrir fullveldi og stjórnmálalegu sjálfstæði allra ríkja. í því sambandi var skorað á öll ríki að virða viðurkenndar alþjóðareglur um samskipti ríkja og því lýst yfir að Norðurlönd myndu áfram vinna að því að styrkja Sameinuðu þjóðirnar sem alheimssamtök til trygg- ingar friði. Jafnframt voru ráðherramir sammála um nauðsyn þess að kanna og ræða við önnur ríki, hvernig auka mætti möguleika samtakanna til að gegna hlutverki sínu þegar átök eða dielur blossa upp. Ég vek athygli á þessari samþykkt utanríkisráðherra Norður- landa og ítreka hér þá áskorun sem þar kemur fram. Hefndir og gagn- * hefndir Ástandið í austurlöndum nær hefur verið á dagskrá hjá þessum samtökum allt frá stofnun þeirra og enn er langt frá því að sjá megi fram á friðsamlega lausn á þeim deilum sem stöðugt eitra andrúmsloftið og valda íbúum þessa heimshluta þjáningum og dauða. Þessi harmleikur hefur nú náð hámarki með fjöldamorðunum í flóttamannabúðun- um í Beirút fyrr í þessum mánuði. Það er krafa allra þeirra sem virða vilja stofnskrá þessara samtaka að hlutlaus rannsókn verði látin fara fram á þessu ódæðisverki hið allra fyrsta. Innrás ísraela í Líbanon er enn einn þáttur í langri sögu hefnda og gagn- hefnda í austurlöndum nær, en jafn- framt er hún sorglegt dæmi um þá lítilsvirðingu fyrir samþykktum öryggis- ráðsins sem ég hef gert hér að umtalsefni. Ég hlýt að lýsa yfir fullum stuðningi mínum við þær ályktanir samtaka okkar sem fordæma innrás og hernám ísraelsmanna á Líbanon og neitun þeirra á að fara eftir samþykktum öryggisráðsins. Þessi framkoma eykur enn á vandann við að ná fram réttlátri og varanlegri lausn á deilumálum í þessum heimshluta. Slík lausn hlýtur að byggja á ályktunum öryggisráðsins nr. 242 og 338 og tryggja öryggi allra ríkja á þessu svæði, þ.á.m. ísraeis, og réttlæti fyrir allarþjóðir, þ.á.m. Palestínumenn. í því sambandi vil ég einig sérstaklega undirstrika nauðsyn þess að lögmæt þjóðarréttindi Palestínumanna verði að veruleika með því að þeir fái rétt til ákvörðunar um eigin mál og þar á meðal rétt til að taka þátt í samningum um eigin framtíð. Ég vil fagna því að nú hafa komið fram tillögur um lausn á stxrstu vandamálum austurlanda nær, bæði frá forseta Bandaríkjanna og ráðstefnu Arabaleið- toga. Of snemmt er að spá um, hvort þessar tillögur geti orðið grundvöllur að samningaviðræðum allra aðila, en ég leyfi mér að lýsa þeirri von minni að svo verði, enda felast í báðum tillögunum ýms atriði sem verð eru nánari athugunar: Virðingar- leysi fyrir fullveldi og sjálfstæði Ég vil aðeins nefna örfá önnur mál, sem eru hvað hróplegust dæmi um virðingarleysi fyrir því jafnrétti, full- veldi og stjórnmálalegu sjálfstæði allra þjóða, sem ber að virða skv. stofnskrá hinna Sameinuðu þjóða, en lítils er virt í raun, ef stærri ríki telja það betur henta eigin hagsmunum. Ástandið í Afghanistan hefur ekki batnað frá því að við komum hér saman fyrir ári. Hernámið hefur nú staðið nærfellt þrjú ár. Áfram er haldið með takmörkuðum árangri að reyna að kúga þjóðina til hlýðni og uppgjafar og ítrekaðar ályktanir Sameinuðu þjóð- anna að engu hafðar. Sömu sögu má reyndar segja af því stríðshrjáða landi Kampútseu. Fyrir röskum tveim árum bárust nýir frelsisstraumar um pólskt þjóðlíf. Fólk- ið vildi fá meira að segja um eigin málefni og samningar tókust við stjórn- völd um að örlítið skyldi létt á okinu og stofnun frjálsra verkalýðssamtaka Ieyfð. sú frjálsræðisþróun, sem þama hófst, átti þó skamma lífdaga fyrir höndum. Henni lauk með setningu herlaga 12. desember 1981. Upptalningu af þessu tagi mætti hafa langa. Þau eru mörg ríkin sem búa við einræðisstjórnir og kúgun og gmnd- vallarreglur stofnskrár samtaka okkar eru í engu virtar. Meðan svona atburðir endurtaka sig með stuttu millibili er æði erfitt að draga úr þeirri spennu sem nú ríkir í alþjóðasamskiptum og taka til við raunhæfar aðgerðir til að efla og varðveita frið og öryggi í samræmi við grundvallarmarkmið samtaka okkar. En slíkra aðgerða er svo Sannarlega þröf. Krafa um afvopnun Vígbúnaðurinn er tröllslegri og vopn- in ógnvænlegri en heimurinn hefur áður þekkt - og áfram er haldið hinu tryllta vígbúnaðarkapphlaupi. Sjálfsagt má til eilífðar deila um hver aðili sé sterkari öðram og úr því fæst líklega aldrei skorið, nema það gerist, sem enginn vill, áð stórveldin láti á það reyna. En hætt er við að fáir verði til frásagnar og að sigurvegarar verði litlu öfundsverðari af sínu hlutskipti en hinir sigmðu af sínu. Gereyðingarvopnin geta hvenær sem er leitt ragnarök yfir mannkyn. Ábyrgð kjarnavopnaveldanna er þung. Þau hafa örlög heimsbyggðar í hendi sér. Mannkynið á í reynd ekki á milli neinna leiða að velja. Sú eina, sem ekki liggur fyrr eða síðar til torífmingar hlýtur að felast í raunsæjum og heiðarlegum samningum um samdrátt í vígbúnaði sem fyrsta skref á þeirri löngu leið að algerri afvopnun sem á og verður að vera óskadraumur þeirra er trúa á

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.