Tíminn - 05.10.1982, Blaðsíða 6
6_____________
stuttar fréttir
Fjölmenni við
kirkjuvígsluna
Grindavík: Mikið fjölmenni 1200 til
1500 manns, var við vígslu nýju
kirkjunnar í Grindavík á laugar-
daginn fyrir viku Vígslu-
athöfnin fór fram klukkan 14 og að
henni lokinni var gestum boðið í
Festi, þar sem konur úr Kvenfélagi
Grindavíkur buðu upp á kaffi og
meðlæti.
. í Festi voru fluttar ræður. Svavar
Árnason, formaður sóknarnefndar
og Ólafur Sigurðson, formaður
byggingarnefndar, gerðu grein fyrir
framkvæmdum. í máli þeirra kom
fram. aö kirkjan vár byggð að einum
þriðja fyrir frjáls framlög bæjarbúa
og annarra og aðeins um 11%
byggingarkostnaðarins er lánsfé.
L'oks fluttu ávörp Bragi Friðriks-
son, prófastur, Ólína Ragnarsdóttir,
forseti bæjarstjórnar Grindavíkur og
biskupinn yfir Islandi, Pétur Sigur-
geirsson. GV/Grindavík/-Sjó.
Nýr verknáms-
skóli tekinn
í notkun
á Akranesi
Akranes: Fjölbrautaskólinn á Akra-
nesi tók 17. sept. s.l. í notkun
nýbyggingu fyrir verklega kennslu í
málm- og rafiðnum. Verknáms-
brautir skólans hafa starfað frá
haustinu 1978, en hingað til í
leiguhúsnæði við erfið skilyrði.
Framkvæmdir við húsið hófust í
ágústmánuði árið 1981 svo bygging
þess hefur tekið eitt ár.
Stóra Flóri-
danamótið
á Selfossi -
Selfoss: Bridgefélag Selfoss stendur
fyrir stórmóti í bridge í ár eins og
gert hefur verið undanfarin tvö ár.
Stóra Flóridanamótið verður haldið
í Hótel Selfoss laugardaginn 16.
október n.k. kl. 13.00.
Á mótinu verður spilaður 32ja
para tölvugefinn barómeter. í boði
eru 16.000 kr. verðlaun, sem skiptast
þannig: 1. verðlaun 8.000 kr., 2.
verðlaun 5.000 kr. og 3. verðlaun
3.000 kr. Einnig verður spilað um
silfurstig.
Þátttökugjald á mótinu er 500 kr.
fyrir parið, sem greiða á í móts-
byrjun. Mótsstjóri verður Sigurjón
Tryggvason. Látttökutilkynnigar
þurfa að berast fyrir 10. október til
Erlings Þorsteinssonar (s. 1653) eða
Garðars Gestssonar (s. 1758).
- HEI
■ Hluti húss og verðlaunagarðs hjónanna Önnu og Sigurðar að Selbraut 84
á Seltjarnarnesi.
Garður ársins ’82
á Seltjarnarnesi
Seltjarnarnes: Fegrunar- og náttúru-
verndarnefnd Seltjarnarness hefur
valið garðinn að Selbraut 84 til
verðlauna sem garð ársins 1982 á
Seltjarnarnesi. Eigendur hans eru
hjónin Anna Jónsdóttir og Sigurður
Stefánsson.
Svo sem á síðasta ári var leitað til
íbúa Seltjarnarness um ábendingar
og barst fjöldi slíkra, sem nefndin
valdi úr jafnframt því að skoða garða
sem fylgst hefur verið með undan-
farin ár. í frétt frá fegrunar- og
náttúruverndarnefnd segir að mjög
margir fallegir og vel hirtir garðar
séu nú í ræktun á Seltjarnarnesi.
- HEI
Tónlistarskóli Rangæinga
að hefja sitt 25. starfsár
Kangárvullasýsla: Barnakór Tón-
listarskóla Rangæinga hefur gefið út
hljómplötu í tilefni af þeim áfanga
að Tónlistarskólinn er nú að hefja
sitt 25. starfsár. Á plötunni eru 15
lög, innlend og erlend.
Skólinn mun minnast afmælis síns
með hátíðadagskrá fyrstu vikuna í
janúar 1983.
Tónlistarskóli Rangæinga er rek-
inn af öllum hreppum sýslunnar og
eru kennslustaðir 7 talsins. Skóla-
stjöri er Sigríður Sigurðardóttir en
formaður skólanefndar er Sigurður
Haraldsson í Kirkjubæ. - HEI
ÉG BÍÐ EFTIR VORI
■ Hleðslumennirnir við grjótvegginn góða - Sæmundur Björnsson, Sumarliði Bjömsson og Sigfús Sigurjonsson.
, Tímamynd Sigurjón Valdimarsson
GRJÓTVEGGUR HLAÐINN
IIM GRAFARKIRKIU
■ Nú í haust var lokið við gerð
vegghleðslu umhverfis Grafarkirkju í
Skaftártungum, en unnið hefur verið að
þessu verki í skorpum undanfarin ár.
Það er Sæmundur Björnsson, bóndi í
Múla sem haft hefur veg og vanda af því
að hlaða garðinn, en auk hans hefur
m.a. bróðir hans Sumarliði lagt þar
gjörva hönd á verk. Að sögn Sæmundar
hafa allt frá tveim og upp í fimm til sex
menn unnið að þessu verki þegar best
hefur látið. _ ESE
Guðmundur Emilsson
tekur vid stjórn
Fflharmóníunnar
■ Guðmundur Emilsson, hljóm-
sveitarstjóri, hefur verið ráðinn stjórn-
andi Söngsveitarinnar Fílharmóníu,
sem nú er að hefja sitt 23. starfsár.
Eins og undanfarin ár mun Söng-
sveitin taka þátt í flutningi kórverka
með Sinfóníuhljómsveit fslands. Þó
verður fyrsta verkefni vetrarins aðventu-
tónleikar með íslensku hljómsveitinni,
sem nýlega var stofnuð. Viðfangsefni
þeirra tónleika verður Hátíðamótettan
„In ecclesiis" fyrir tvöfaldan kór og
málmblásara, eftir Giovanni Gabrieli,
sem þá verður flutt í fyrsta sinn hér á
landi, og kantatan „Vakna, Síóns verðir
kalla“ eftir J.S. Bach. Margt fleira
verður á döfinni hjá Söngsveitinni í
vetur.
í frétt frá Söngsveitinni segir, að
Guðmundur Emilsson, hafi í hyggju að
efla mjög starfsemi sveitarinnar. M.a.
ætli hann að fjölga söngfólki.
Upplýsingar um kórstarfið eru veittar
í símum 79820, 71435 og 39119.
- Sjó.
■ Guðmundur Emilsson mun stjóma
Söngsveitinni FQharmóníu í vetur. Sem
kunnugt er hefur hann getið sér mjög
gott orð fyrir hljómsveitarstjómun.
Gaman verður að fylgjast með honum í
hlutverki kórstjórnanda.
Tímarnynd G.E.