Tíminn - 08.10.1982, Blaðsíða 1
— Helgarpakki
og dagskrá ríkisfjölmiðlanna 8. október til 15. okt.
TOMMA OG JENNA DEILAN
■ Ég ætla að byrja skrifin að þessu
sinni með smá innleggi í svokallaða
Tomma og Jenna deilu. Áður en ég
hóf þessi skrif mín hér í Helgarpakk-
ann var teiknimyndasyrpan um þá
félaga með því eina sem maður entist
til að glápa á í sjónvarpinu, að öðru
jöfnu, fyrir utan Löður og fréttir og
persónulega átta ég mig ekki alveg á
þessari gagnrýni Kattavinafélagsins á
teiknimyndasyrpuna. Mér finnast það
snúin rök að segja að krakkar taki hluti
úr syrpunni bókstaflega, allavega
hefur maður ekki heyrt, um það enn
þá að krakki hafi troðið straubrettinu
niður kok heimiliskattarins eða 'eitt-
hvað í þá áttina og á ekki von á að
slíkt gerist.
Gagnrýni Kattavinafélagsins er
einn af þessum stgildu „stormum í
vatnsglasi“ sem við og við koma upp
hérlendis en að öðru leyti finnst mér
ágætar athugasemdir „Músavina-
félagsins" nægja sem lokaorð í þessari
skondnu deilu.
íslendingar í Brasilíu
Frábær þáttur þeirra Jakobs Magn-
ússonar og Önnu Björnsdóttur á
sunnudagskvöldið um flutning íslend-
inga til Brasilíu á liðinni öld vakti
athygli mína. Það var nýlunda fyrir
mig að landinn hefði komið sér fyrir
þarna suðurfrá og því hafði ég mikla
ánægju af þættinum.
Mjög fagmannleg vinnubrögð ein-
kenndu þáttinn og tónlist Jakobs féll
vel að efninu, raunar mátti skipta
þættinum í tvennt,annarsvegar flutn-
ingur íslendinganna frá Þingeyjarsýsl-
um til Brasilíu og mismunandi örlög
þeirra þar og hinsvegar mynd um
kjötkveðjuhátíðina í Río de Janeiro
en það var nokkuð langur aðdragandi
að áhrifamesta punktinum sem var að
sennilega ættum við frændur í því
þjóðin verði límd við tækin að fylgjast
með húllumhæinu í Dallas. Þessi ýkta
fjölskylda hefur náð undarlegum
tökum á áhorfendum víða um heim,
sennilega hefur sauðsvartur almúginn
ekki meiri ánægju af neinu eins og að
sjá hvernig „hinn hlutinn" fer hægt og
sígandi til andskotans alveg eins og við
hin.
Annar nýr þáttur sem lofar góðu á
vetrardagskránni er þróunarbraut
mannsins er fjallar um þróun mann-
kynsins aftur úr grárri forneskju eins
og það er orðað. Dr. Richard Leakey
er góður leiðsögumaður með pott-
þéttan bakgrunn og yfirgripsmikla
þekkingu á efninu.
Heimskreppan
Geigvænleg skuldasöfnun þróunar-
ríkjanna var umfjöllunarefni í loka-
þættinum Heimskreppan á þriðjudag-
inn. Við íslendingar getum margt lært
af þessum þætti, enda margir á þeirri
skoðun að stutt sé í að íslenska ríkið
verði gert upp og boðið hæstbjóðanda.
Mexíkanar hafa snúist við vandanum
með ýmsum hætti og ég gat ekki annaö
en brosað er ein ráðstöfun þeirra til að
draga úr eyðslu var stöðvun á byggingu
nýs Seðlabankahúss þar í landi, við
ættum kannski líka að fylla upp í
holuna við Arnarhólinn.
Vinnuvernd
Nýr þáttur hefur hafið göngu sína í
útvarpinu á fimmtudagsmorgnum en
það er Vinnuvernd í umsjá Vigfúsar
Geirdal en honum til aðstoðar verður
Auður Styrkársdóttir. Fyrsti þátturinn
var kynning á því sem tekið verður
fyrir í vetur og á vinnuverndarlög-
unum en hér er á ferðinni þarft
umfjöllunarefni enda verða teknir
fyrir í vetur ýmsir þættir í starfsum-
hverfi sem geta haft áhrif á heilsu
manna.
vonlausa víti sem eru fátæktarhverfi
þeirrar borgar.
Að loknum Brasilíuförunum kvaddi
svo Jóhann Kristófer þennan táradai en
óhætt er að segja að hann hafi haldið
stórum hluta þjóðarinnar hugföngnum
við skerminn undanfarin sunnudags-
kvöld.
Vetrardagskráin
í sjónvarpi næstu viku voru nokkrir
þættir vetrardagskrárinnar kynntir og-
í vikunni hófust sumir þeirra. Fjand-
vinir, breski gamanmyndaflokkurinn
á mánudagskvöldum, um nágranna-
erjur þeirra Peel og Smallbridge lofar
góðu, frábær húmor sem Bretum
einum er lagið að gera en kanadíska
sjónvarpskvikmyndin á eftir olli
miklum vonbrigðum slepjuleg um-
fjöllun á örlögum 12 ára borgardrengs
sem þráir einskis nýtan föður sinn
aftur.
„Maðurinn sem þú elskar að hata“
er mættur til leiks á ný á miðviku-
dagskvöldum og má búast við að
Friðrik Indriðason
blaðamaður skrifar
um dagskrá
ríkisfjölmiðlanna
plötur
Tappað
af ■■ ■
Bitið fast i vitið
Tappi tíkarrass
SPOR
■ Þá hefur hljómsvcitin
Tappi tíkarrass tappað af sinni
fyrstu plötu, „Bitið fast (vitið“
en hér er um sex laga 45 sn.
plötu, allt efni frumsamið af
sveitinni sjálfri.
Tappi tíkarrass hefur á
skömmum tíma skapað sér
nafn sem ein af betri hljóm-
sveitum nýbylgjurokksins hér-
lendis og hefur sveitin á að
skipa einhverri athyglisverð-
ustu söngkonu á því sviði sem
komið hefur upp Björk Guð-
mundsdóttur, en auk hennar
skipa hljómsveitina þeir Jakob
Smári Magnússon, bassi, Eyj-
óifur Jóhannsson gítar og
Guðmundur Pór Gunnarsson
trommur en auk söngsins
grípur Björk einnig í hljóm-
borð á nokkrum laganna.
Upptökur á plötunni fóru
fram í Hljóðrita í ágústmánuði
s.l. undir stjóm Tony Cook en
síðan hefur sveitin leikið lög af
plötunni á nokkrom tónleikum
og nýlega tók hún þátt í
norrænni rokkhátíð í Osló
„rock mot ros“ ásamt 19
öðrum norrænum rokksveit-
um og gat Tappi sér gott orð
þar, var meðal annars boðið að
spila á þeim þekkta klúbbi
Club 7 í Osló.
- FRI
Óslípaður
demant?
■ Þeir eru lífseigir gömlu
brýnin úr rokkhljómsveitinni
Bad Company. Einmitt núna
þegar allir héldtf að þeir væru
gíeymdir og grafnir, eða það
sem ennþá verra er, komnir á
elliheimilið, þá hrista þeir af
sér rykið (eða moldina og
ánamaðkana) og senda frá sér
nýja plötu, „Rough Diamond"
heitir hún og er sú sjötta frá
upphafi.
Sem fyrr er það Paul
Rodgers fyrrum meðlimur
hinnar frábæru hljómsveitar1
Free, sem leiðir kompaniið
(ekki Nýja kompaníið þó), en
það var einmitt undir styrkri
stjórn hans sem Bad Company
slógu í gegn árið 1974 og gerðu
allt vitlaust með laginu „Can’t
get enough“. Það lag komst
alla leið í fyrsta sæti banda-
ríska vinsæidalistans. Þá áttu
Bad Company í harðri sam-
keppni við Bachman Tumer
Overdrive, en það er nú önnur
saga...
Á „Rough Diamond", sem
má kalla „Hinn óslípaða dem-
ant“ Bad Company, eru 10 lög
og að venju er Rodgers afkasta
mestur við lagasmíðarnar.
Tónlistin hefur breyst aðeins
og auk blúsáhrifanna, sækir
nú „slæmi félagsskapurinn”
cfni í srniðju kúreka og
sveitasöngvara.
-ESE*
■ Það skal teldð fram hér að
í þessum dálki eru plötur
kynntar en ekki gagnrýndar.
Gagnrýni á plötum cr á síðum
Nútímans um helgar.
DAIHATSU
DAIHATSU CHARADE
Ármúla 23 Reykjavík Símar: 81733 - 85870
rökréttur valkostur
&ERNIR
■ | alhliða ftugþjónusta, áætlunar, leigu, fragt, og sjúkraflug
F ÍSAFIRÐI SÍMI 94 3698