Tíminn - 09.10.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 09.10.1982, Qupperneq 1
Áskrgftargetraunasedillinn fylgir bladinu í dag - bls.8-9 Bla 1 ð 1 Tvö blöð ídag Helgin 9.-10. okt. 1982 230. tbl. - 66. árgangur Afleiðing ákvörðunar Daviðs um uppstokkun embættis frædslustjóra: STARFSMðNNUM FRÆOSLU- STJÓRA FÆKKAR UM 744 — og verður þeim komið undir sérstaka stjórn borgaryfirvalda ■ í dag starfa undir stjórn fræðslu- stjórans í Reykjavík 778 starfsmenn. Þegar til franikvæmda koma þær breytingar á skipulagi stofnunarinnar sem Davíð Oddsson hefur lagt tU í kjölfar ráðningar Aslaugar Brynjólfs- dóttur í starf fræðslustjóra fækkar þeim um 744. Verða þá starfsmenn undir stjórn Aslaugar 34, að sögn borgarstjóra. Komu þessar uplýsingar fram á síðasta fundi borgarstjómar. Á þeim fundi var samþykkt tillaga um að fela borgarstjóra að óska eftir viðræðum við menntamálaráðuneytið um nýskipan fræðslustjóraembættis- ins. Er meining meirihluta borgars- tjómar að taka öll störf sem ekki eru beint lögbundin undir stjóm fræðslu- stjóra og færa þau undir nýja borgarstofnun sem starfaði hliðsett gamla fræðslustjóraembættinu. Öll þessi tilfærsla kemur til af þeirri ákvörðun að skipa Áslaugu Brynjólfs- dóttur í starf fræðslustjóra, en ekki Sigurjón Fjeldsted eins og sjálfstæð- ismenn í fræðsluráði lögðu til. „Með því að ganga gegn vilja meirihluta fræðsluráðs hefur menntamálaráð- herra kastað hanskanum“, sagði Markús Örn Antonsson á borgar- * stjórnarfunuinum. En hver em þau verkefni sem borgin getur tekið undan stjóm núverandi fræðslustjóra? Kristján Benediktsson, fyrrverandi formaður fræðsluráðs, upplýsti á fundinum að það væru viðhald skólahúsnæðis, ræstingar í skólum, og sameiginleg innkaup á handmenntaefni til skólanna. A.m.k. væru þessir þrír liðir stærstir. Taldi hann óheillaspor stigið ef hugmyndir sjálfstæðismanna yrðu að veruleika. í bókum borgarfulltrúa framsóknar- manna vegna þessa máls segir m.a.: „Við lítum á þessa tiilögu sem hefndarráðstöfun í því augnamiði að takmarka störf og áhrif fræðslustjóra frá því sem nú er. „í sama streng tóku borgarfulltrúar Alþýðubandalags og Kvennaframboðs: „Slík breyting getur ekki haft annað í för með sér en aukinn kostnað og óhagræði í för með sér “ Kás *Wi Háhyrn- ingarnir koma — bls. 8-9 SKEMMTI- FERDASKiP FRA , REYKJAVIK NÆSTA SUMAR — á vegum Eimskip og Hafskip ■ Farskip - sjálfstætt hlutafélag til að annast útgerð bílaferju og farþegaskips milli Reykjavíkur, Bretlands og Þýskalands hefur nú verið stofnað af Eimskipafélagi íslands hf. og Hafskip Að sögn forráðamanna félaganna hefur mjög ákveðin innlend eftirspum verið eftir þessum ferðamáta og augljós þörf fyrir hentugt bílferjusam- band við Evrópu. Félögin hófu fyrst athuganir á slíkum rekstri hvort í sínu lagi, en ákváðu síðan af augljósum hagkvæmnisástæðum að vinna saman að könnun á rekstrargrundvelli bílferju og farþegaskips. Kannanir eru sagðar hafa leitt í Ijós að rekstrargmndvöllur er fyrir slíkri ferju yfir sumartímann og hefur félagið þegar tryggt sér vandaðan skipakost fyrir siglingar á komandi sumri. Gert er ráð fyrir vikulegum ferðum frá Reykjavík. Boðið verður upp á öll þægindi farþegaskips ásamt flutningi á einkabílum. ítarlegri upplýsingar em sagðar liggja fyrir innan tíðar. Framkvæmdastjóri Farskips hf. hefur verið ráðinn Einar Hermanns- J son, skipaverkfræðingur og markaðs- stjóri Ágúst Ágústsson, rekstrarhag- fræðingur. - HEI f spegli tímans: Burt Reynolds bls. 2 Thatcher í Kína — bls. 5 — bls. 15 N

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.