Tíminn - 20.10.1982, Qupperneq 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Miðvikudagur 20. okt. 1982
239. tbl. 66 árgangur.
Síldveiðar hafnar á Isafjarðardjúpi:
..SILFUR
HAHYRNINGAR BITA
HAFSINS”
■ í dag landar Stafnes KE 130, um
70 lestum af síld í Keflavík. Er þetta
fyrsta síldin sem veiðst hefur í nót fyrir
Vestfjörðum á þessu hausti, en síldin
fékkst á ísafjarðardjúpi.
Að sögn Guðmundar Sveinssonar,
fréttaritara Tímans á ísafirði er síldin
sem Stafnes fékk bæði feit og falleg.
Tveir bátar, annar frá Tálknafirði og
hinn frá Isafirði hafa veitt síld í lagnet
að undanförnu á ísafjarðardjúpi og
hefur veiðin verið þetta 30-40 tunnur
af síld í lögn.
Mjög mikil háhyrningaganga hefur
verið á ísafjarðardjúpi að undanförnu
ög hafa háhyrningarnir að sögn
Guðmundar haft alveg sérstakan hátt
á síldveiðinni. Þeir hafa smalað
síldinni saman í torfur en síðan hefur
einn og einn háhyrningur brugðið sér
inn í torfurnar og fengið sér að bragða
á sælgætinu. Bera síldarnar þess merki
að háhyrningar hafi komist í þær þar
sem að tíunda hver síld sem veiðist er
meira eða minna bitin af völdum
háhyrninganna.
-ESE
■ Heiðursráð Landsráðs gegn
krabbameini sat í gær fréttamannu-
fund framkvæmdanefndar Lands-
ráðsins, þar sem fulltrúum fjölmiðia
var greint frá sameiginlcgu átaki
Landsráðsins, sem ráðist verður í 30.
október, en þá verður fjársöfnun um
gjörvallt landið, i þcim tilgangi að
nægu fé verði safnað til þess að hægt
verði að standa straum af byggingu
nýs húsnæðis Krabbameinsfélags Is-
lands, en það mun fullkomna
aðstöðu félagsins til muna og gera
því aukna starfsemi færa. Erá vinstri
á myndinni eru Pétur Sigurgeirsson
biskup, Vigdís Finnbogadóttir for-
seti og Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra, en þau skipa heiðursráðið.
Lengst til hægri er Eggert Ásgeirs-
son, formaður og framkvæmdastjóri
framkvæmdanefndarinnar.
AB Tímamynd- Róbert.
Sjá nánar bls. 5
Erlent yfirlit:
Mannlegi
þátturinn
— bls. 23
Einfalt og
stílhreint
— bls. 10
Staða
borgar-
sjóðs
— bls. 3
Hörmung-
ar PLO-
manna
- bls. 7
Þjóðverjar bjóða íslendingum að sleppa við fiskuppbod:
VlUfl SEMJA UM SÉR-
STflKT iflGMARKSVERD
— gegn tryggu og reglulegu framboði fersks fisks á markaðnum
■ Svo getur farið að fiskuppboð á
íslénskum fiski og þá sérstaklega karfa
leggist niður í Cuxhaven og Bremer-
haven í Vestur-Þýskalandi og þess í
stað verði íslendingum boðið ákveðið
lágmarksverð ef þeir tryggi reglulegt
framboð af ferskum fiski á þessa
markaði.
Þjóðverjar hafa lengi haft áhuga á
að tryggja reglulegar sölur á íslenskum
fiski í fyrrgreindum höfnum og
jafnframt hafa þeir haft miklar áhyggj-
ur af því að útflutningur á íslenskum
fiski til Þýskalands hefur dregist
töluvert saman ,síöastliðin ár. Stein-
grímur Hermannsson, sjávarútvegs-
ráðherra er nýkominn heim frá
Þýskalandi þar sem hann ræddi þessi
mál við þýská fiskikaupmenn, útgerð-
armenn, fiskverkendur og stjórnmála-
menn og í samtali við Tímann sagði
Steingrímur að hér væri um mjög
athyglisvert mál og tilboð að ræða.
Að sögn Steingríms eru hugmyndir
hinna þýsku aðila þær að íslendingar
útvegi ákveðið magn af ferskum fiski.
sérstaklega karfa og í staðinn sleppi
íslendingar við fiskuppboðin og hið
tilviljanakennda verð sem þar fæst
fyrir aflann. Tekið verði upp sérstakt
lágmarksverð sem samið verði um á
hverjum tíma. í upplýsingum þeim
sem sjávarútvegsráðherra hefur undir
höndum varðandi fisksölur í Cuxhaven
og Bremerhaven þrjú sl. ár, kemur
fram að útflutningur frá íslandi hefur
stöðugt dregist saman og t.a.m. voru
aðeins flutt um rúmlega 4500 tonn af
fiski til Cuxhaven og 1860 tonn til
Bremerhaven fyrstu átta mánuði þessa
árs, en 1980 voru alls flutt um 10
þúsund tonn til Cuxhaven og 6200
tonn til Bremerhaven.
- Þetta er auðvitað fyrst og fremst
mál íslenskra útvegsmanna og svo
hinna þýsku aðila og ég mun að
sjálfsögðu gera Kristjáni Ragnarssyni
formanni LÍÚ grein fyrir niðurstöðum
ferðarinnar þegar hann kemur til
landsins, sagði Steingrímur Her-
mannsson.
ESE
o