Tíminn - 21.10.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 21.10.1982, Qupperneq 1
Hugad ad jólahandavinnunni bls. 12 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Fimmtudagur 21. okt. 1982 240. tbl. 66 árgangur. Rádherranefndin sammála um kosningai fyrrihluta næsta árs: , VILL SEMJfl UM NANARI líMAflKVÖRDUN KOSNIN - við stjórnarandstöðuna gegn stuðningi við bráðabirgðalögin ■ Á fundi ráðherranefndar ríkis- stjórnarinnar í gærmorgun sem er skipuð þeim Gunnari Thoroddsen, Svavari Gestssyni og Steingrími Her- mannssyni náðist samkomulag um að eðlilegt sé að efna til kosninga fyrrihluta næsta árs. Samkvæmt heimildum Tímans þá hefur ekki verið ákveðin frekari tímasetning næstu alþingiskosninga en að þær fari fram á fyrri hluta næsta árs, því það mun eiga að gera nánari tímaákvörðun í þeim efnum að samningsatriði við stjórnarandstöð- una. Eða með öðrum orðum, þá fær stjórnarandstaðan að hafa hönd í bagga með því hvenær kosið verður, gegn því að hún styðji bráðabirgða- lögin. Ljóst er nú að of seint er að kjósa fyrir jól, og telja heimildarmenn Tímans að það sé varla tæknilega mögulegt að hafa kosningar um hávetur, því svo mikið sé undir færð komið í kosningum. Er þvf ekki reiknað með að næstu alþingiskosn- ingar geti orðið fyrr en einhverntíma með útmánuðum. Reikna heimildamenn blaðsins með að forysta stjórnarandstöðunnar muni vera tilbúin að ganga að þessu tilboði ríkisstjórnarinnar, og er talið að hún muni gera það sem í hennar valdi stendur til þess að kosningarnar verði sem fyrst eftir áramót -AB ■ Finnlandsforseti, Mauno Koivisto og kona hans, Tellervo Koivisto, komu í opinbera heimsókn til íslands í gær. Hér sitja þau kvöldverðarboð Vigdísarn Finnbogadóttur, forseta íslands, á Hótel Sögu. Tímamynd Gh f NÖBIR VORAR BllA INNAN 6ULLHRINGS SEM AF LfSIR” sagdi forseti íslands m.a. í kvöldverðarboði sem hún hélt finnsku forsetahjónunum til heiöurs ■ -í huga mínum hef ég ósjálfrátt slegið hring um hinar norrænu þjóðir. Hann er að sjálfsögðu gerður úr gulli, því ekki vil ég viðurkenna annað en af okkur stafi ljómi. Norðurlandaþjóðir . búa saman innan þess hrings við samlyndi, sem af lýsir, sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands m.a. í ræðu sinni í kvöldverðarboði sem forsetinn hélt hinum finnsku forseta- hjónum á Hótel Sögu í gærkvöld. í ræðu forseta íslands kom ennfrem- ur fram að íslendingar og Finnar ættu margt sameiginlegt. Þeir ættu sér þjóðarvitund og þeir væru stoltir af þjóðemi sínu. Vigdís Finnbogadóttir gat þess einnig að ísland og Finnland væru útvarðaþjóðir í norðri og sagði að íslendingar væru Finnum þakklátir fyrir þá hlýju sem þeir mættu í Finnlandi. Mauno Koivisto, forseti Finnlands þakkaði hin iilýju orð í garð Finnlands og í ræðu sinni sagði hann m.a.: -Við í Finnlandi höfum í tímans rás þurft að berjast og vinna hörðum höndum til að brjóta nýtt land og skapa grundvöll fyrir tilvist okkar nú á dögum. Okkar reynsla hefur kennt okkur að meta mikils þær þjóðir, sem sigrast hafa á erfiðum aðstæðum og skapað starfsöm nútíma þjóðfélög með háþróaða eigin menningu, eins og reyndin tr hér á íslandi. Leyfið mér að láta í Ijós aðdáun og virðingu finnsku þjóðarinnar fyrir þeim afrek- um sem þér hafið unnið. Island vorra daga er árangurinn af dirfsku og hyggindum, af atorku yðar og réttlæt- istilfinningu. Sjá nánari fréttir af hinni opinberu heimsókn á bls. 10 og U -ESE Kvikmynda- hornid: Heit mynd - bls. 19 lusavígsla íróknum - bis. 5 ísitölu- lál Dana - bls. 7 - bls. 9

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.