Tíminn - 22.10.1982, Page 1

Tíminn - 22.10.1982, Page 1
- í Landbúnaðarnefnd og Allsherjarnefnd neðri deildar ■ „Þetta brot á samkomulagi setur slæman svip á þingstörfin sem fóru sæmilega af stað og við höfum ekki verið að stíga ofan á tærnar á stjórnarandstöð- unni. Við vildum gott samkomulag og höfum unnið að því að svo mætti verða“, sagði Páll Pétursson, formaður þing- flokks Framsóknarflokksins, í samtali við Tímann í gær, eftir að Ijóst varð að stjórnarandstaðan hafði með fulltingi Eggerts Haukdal fellt Stefán Valgeirs- son sem formann landbúnaðamefndar neðri deildar Alþingis og Olaf Þ. Þórðarson sem formann allsherjar- nefndar sömu deildar, en kosið í þeirra stað Seinþór Gestsson og Jósef H. Þorgeirsson. „Það var frágengið milli okkar Ólafs G. Einarssonar, formanns þingflokks sjálfstæðismanna, í upphafi þings að starfsmenn þings og nefnda skyldu vera óbreyttir að því undanskildu að kosið skyldi um fulltrúa í fjárveitinganefnd. Að öðru leyti skyldi sjálfkjörið í öll önnur störf þingsins. í trausti þess liðum við stjórnarliðum áframhaldandi setu Eggerts Haukdals í atvinnumálanefnd sameinaðs þings þar sem okkur var í lófa lagið að fella hann út. Sjálfstæðismenn halda ekki þetta samkomulag sem við Ólafur G. gerðum og hafa kosið stjórnarandstæðinga sem formenn og varaformenn í þeim nefnd- um sem Eggert á sæti í,“ sagði Páll Pétursson. Sjá nánar bls. 3. Nicole á ferð og flugi — bls. 2 ■ Annar dagur opinberrar heimsóknar finnsku forsetahjónanna, Mauno Ko- ivisto og Tellervo Koivisto var afar annasamur, en einkar vel heppnaður. Gerðu hjónin, ásamt föruneyti og íslensku fylgdarliði víðreist í gær. Tímamynd G.E. Fiskréttir í Kaup- manna höfn — bls. 11 Félagsstofnun fhugar kaup á húsnæði til útleigu: Herbergi fyrir 21 einstak- ling! ■ Félagsstofnun stúdenta íhugar nú kaup á húsnæði við Borgartúni í Reykjavík til útleigu fyrir stúdenta. Ef af þeim verður getur Félagsstofnun boðið upp á 21 einstaklingsherbergi í viðbót við þau sem leigð eru út á Gamla Garði og Nýja Garði. Að sögn framkvæmdastjóra stofn- unarinnar Sigurðar Skagfjörð Sigurðs- sonar yrði hér um að ræða skammtíma úrbót á gífurlegum húsnæðisvanda háskólastúdenta, en enga framtíðar- lausn. Til að gefa hugmynd um hve stórt þetta vandamál er gat Sigurður þess að um 740 stúdentar með lögheimili utan Reykjavíkur væru við nám í Háskóla íslands og stærstur hluti þeirra verður að afla sér húsnæðis á almennum leigumarkaði í borginni. Alls eru háskólastúdentar u.þ.b. 3900 og gera má ráð fyrir að 80% þurfi á leiguhúsnæði að halda. Sigurður vildi ekki ræða um það á hvaða stigi kaupsamningar væru nú, en væntanlega ræður það úrslitum hvort fjárveitingavaldið fellst á að greiða fyrir kaupunum eða ekki. -JGK TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Föstudagur 22. okt. 1982 241. tbl. 66 árgangur. Samkomulag um nefndastörf svikið á Alþingi: STJÖRNARSINNUM RUn ÚR FORMANNSSÆTUNUM — bls. 24 Qs •c heimiliö - bls. 14 Gabriel Marquez: FEKK BOKMENNTA- VERDUUN NÓBELS ■ „Það gleður mig sannarlega að heyra þessar fréttir. Hann á verðlaunin vissulega skilin“ sagði Guðbergur Bergsson rithöfundur þegar Tíminn leitaði álits hans á þeirri ákvörðun sænsku akademíunnar að veita Gabriel Garcia Marques frá Kolombíu Nóbels- verðlaunin í bókmenntum í ár. Guðbergur hefur snúið þremur bókum Marquez á íslensku; tvær eru komnar út Hundrað ára einsemd og Liðsforingjanum berst aldrei bréf og sú þriðja Frásögn um margboðað morð er væntanleg frá Iðunni eftir nokkrar vikur. Marquez er fæddur árið 1928 og fyrir löngu viðurkenndur sem einn af fremstu sagnahöfundum Rómönsku Ameríku. Það hefur orðið hlutskipti hans eins og margra annarra fremstu listamanna þeirra álfu að lifa megnið af starfsævi sinni í útlegð, nú búsettur í Mexíkó. í helgarblaði Tt'mans sem kemur út á morgun er birtur kafli úr nýjustu skáldsögu Marquez og jafnframt viðtal við þýðandann Guðberg Bergsson sem segir álit sitt á verkum höfundarins og þroskaferli hans.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.