Tíminn - 22.10.1982, Síða 1
- í Landbúnaðarnefnd og Allsherjarnefnd neðri deildar
■ „Þetta brot á samkomulagi setur
slæman svip á þingstörfin sem fóru
sæmilega af stað og við höfum ekki verið
að stíga ofan á tærnar á stjórnarandstöð-
unni. Við vildum gott samkomulag og
höfum unnið að því að svo mætti verða“,
sagði Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins, í samtali
við Tímann í gær, eftir að Ijóst varð að
stjórnarandstaðan hafði með fulltingi
Eggerts Haukdal fellt Stefán Valgeirs-
son sem formann landbúnaðamefndar
neðri deildar Alþingis og Olaf Þ.
Þórðarson sem formann allsherjar-
nefndar sömu deildar, en kosið í þeirra
stað Seinþór Gestsson og Jósef H.
Þorgeirsson.
„Það var frágengið milli okkar Ólafs
G. Einarssonar, formanns þingflokks
sjálfstæðismanna, í upphafi þings að
starfsmenn þings og nefnda skyldu vera
óbreyttir að því undanskildu að kosið
skyldi um fulltrúa í fjárveitinganefnd.
Að öðru leyti skyldi sjálfkjörið í öll
önnur störf þingsins. í trausti þess liðum
við stjórnarliðum áframhaldandi setu
Eggerts Haukdals í atvinnumálanefnd
sameinaðs þings þar sem okkur var í lófa
lagið að fella hann út.
Sjálfstæðismenn halda ekki þetta
samkomulag sem við Ólafur G. gerðum
og hafa kosið stjórnarandstæðinga sem
formenn og varaformenn í þeim nefnd-
um sem Eggert á sæti í,“ sagði Páll
Pétursson.
Sjá nánar bls. 3.
Nicole á
ferð og
flugi
— bls. 2
■ Annar dagur opinberrar heimsóknar
finnsku forsetahjónanna, Mauno Ko-
ivisto og Tellervo Koivisto var afar
annasamur, en einkar vel heppnaður.
Gerðu hjónin, ásamt föruneyti og
íslensku fylgdarliði víðreist í gær.
Tímamynd G.E.
Fiskréttir
í Kaup-
manna
höfn
— bls. 11
Félagsstofnun
fhugar kaup
á húsnæði
til útleigu:
Herbergi
fyrir 21
einstak-
ling!
■ Félagsstofnun stúdenta íhugar nú
kaup á húsnæði við Borgartúni í
Reykjavík til útleigu fyrir stúdenta. Ef
af þeim verður getur Félagsstofnun
boðið upp á 21 einstaklingsherbergi í
viðbót við þau sem leigð eru út á Gamla
Garði og Nýja Garði.
Að sögn framkvæmdastjóra stofn-
unarinnar Sigurðar Skagfjörð Sigurðs-
sonar yrði hér um að ræða skammtíma
úrbót á gífurlegum húsnæðisvanda
háskólastúdenta, en enga framtíðar-
lausn. Til að gefa hugmynd um hve
stórt þetta vandamál er gat Sigurður
þess að um 740 stúdentar með lögheimili
utan Reykjavíkur væru við nám í
Háskóla íslands og stærstur hluti þeirra
verður að afla sér húsnæðis á almennum
leigumarkaði í borginni. Alls eru
háskólastúdentar u.þ.b. 3900 og gera
má ráð fyrir að 80% þurfi á leiguhúsnæði
að halda.
Sigurður vildi ekki ræða um það á
hvaða stigi kaupsamningar væru nú, en
væntanlega ræður það úrslitum hvort
fjárveitingavaldið fellst á að greiða
fyrir kaupunum eða ekki. -JGK
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Föstudagur 22. okt. 1982
241. tbl. 66 árgangur.
Samkomulag um nefndastörf svikið á Alþingi:
STJÖRNARSINNUM RUn
ÚR FORMANNSSÆTUNUM
— bls. 24
Qs
•c
heimiliö
- bls. 14
Gabriel
Marquez:
FEKK BOKMENNTA-
VERDUUN NÓBELS
■ „Það gleður mig sannarlega að
heyra þessar fréttir. Hann á verðlaunin
vissulega skilin“ sagði Guðbergur
Bergsson rithöfundur þegar Tíminn
leitaði álits hans á þeirri ákvörðun
sænsku akademíunnar að veita Gabriel
Garcia Marques frá Kolombíu Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum í ár.
Guðbergur hefur snúið þremur
bókum Marquez á íslensku; tvær eru
komnar út Hundrað ára einsemd og
Liðsforingjanum berst aldrei bréf og sú
þriðja Frásögn um margboðað morð er
væntanleg frá Iðunni eftir nokkrar vikur.
Marquez er fæddur árið 1928 og fyrir
löngu viðurkenndur sem einn af fremstu
sagnahöfundum Rómönsku Ameríku.
Það hefur orðið hlutskipti hans eins og
margra annarra fremstu listamanna
þeirra álfu að lifa megnið af starfsævi
sinni í útlegð, nú búsettur í Mexíkó.
í helgarblaði Tt'mans sem kemur út á
morgun er birtur kafli úr nýjustu
skáldsögu Marquez og jafnframt viðtal
við þýðandann Guðberg Bergsson sem
segir álit sitt á verkum höfundarins og
þroskaferli hans.