Tíminn - 28.10.1982, Blaðsíða 11
■ i’ainiiui
(Óliif Kolbrun
Hiiriinrdótlir)
oc Papagcno.
Þarft þú, félagið eða fyrirtækið að halda mannfagnað?
Við bjóðum þig velkominn, hvort sem þú ert einn eða með stóran hóp með þér.
Staður hinna vandlátu hefur glæsileg húsakynni fyrir alls konar mannfagnað - fyrir alla landsmenn
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1982
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1982
10
fréttafrásögn
11
fréttafrásögn
I „Töfraflautan er trú-
lega ástsælasta ópera sem
samin hefur verið, og hún
er líka eitt margslungnasta
listaverk óperusögunnar.
Hún er sambland af gamni
og alvöru, einum þræði er
hún ævintýri handa börn-
um um vonda drottningu
og góðan prest, töfraflautu
sem dýr dansa eftir og
töfraklukkur sem stökkva
öllum óvinum manns á
braut, en öðrum þræði er
hún voldugur lofsöngur
um ást manns og konu, og
enn einum þræðinum á-
kall um andlegt frelsi og
frið á jörð. Loks er hún
helgileikur, trúarjátning
höfundar síns.“
Þessi kynningarorð um Töfraflautuna
eftir Wolfgang Amadeus Mozart eru á
kynningarblaði frá fslensku óperunni, í
tilefni af því að íslenska óperan
íslenska óperan
frumsýnir
T öf raf lautuna
eftir Mozart
í kvöld:
■ Hlutverk hirðmcynna þriggja, í þjónustu Næturdrottningarinnar eru ■ höndum þeirra Sieglinde Kahman, Elínar Sigurvinsdóttur og Önnu Julíönu
er ern hér með beim Panaeenó (Steindór Þráinssoni oe Tamínó (Garðar Cortez).
■ Lydia Riicklinger í hlutverki Nætur-
drottningarinnar.
„TRULEGA ASTSÆIASTA
ÓPERA SEM
O
SAMIN HEFUR VERIД
frumsýnir verkið í húsakynnum sínum í
Gamla bíói í kvöld. Hljómsveitarstjóri
er Bandaríkjamaðurinn Gilbert Levine
og leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir.
Mcð helstu hlutverk fara þau Ólöf
Kolbrún Harðardóttir, Garðar Cortez,
Eiríkur Hreinn Helgason, Steinþór Þrá-
insson, Guðmundur Jónsson, (en hann
söng einnig í uppfærslu Þjóðleikhússins
á Töfraflautunni 1956) og Lydia Rúck-
linger. Annars taka flestir helstu
söngvarar íslendinga þátt í sýningu
íslensku óperunnar, þeirra á meðal
Anna Júlíana Sveinsdóttir, Elín Sigur-
vinsdóttir, Halldór Vilhelmsson, Sigurð-
ur Björnsson og Sieglinde Kahmann.
Tíminn brá sér á æfingu íslensku
óperunnar í vikunni og spjallaði við
nokkra þátttakendur í sýningunni.
Pamína prinsessa, dóttir
Næturdrottningarinnar
Hlutverk Pamínu, dóttur. Nætur-
drottningarinnar, sem haldið er fanginni
í musteri Sarastró, er í höndum Ólafar
Kolbrúnar Harðardóttur. Blaðamaður
spurði Ólöfu hvað henni þætti um þetía
hlutverk sitt: „Ég hef mjög mikla ánægju
af þessu verkefni. Þetta . • hlutverk er
ólíkt öðrum hlutverkum sem ég hef áður
sungið. °amína er ung og saklaus
stelpukrakki, sem í verkinu þroskast í
ástfangna stúlku. Ég hef fengið að
hafa hönd í bagga með leikstjóranum
Þórhildi, um persónusköpun Pamínu.
Af því hef ég haft ánægju, auk þess sem
tónlist Mozart hrífur mie
Tamínó er bjargvættur
Pamínu
Það er Garðar Cortez sem fer með
hlutverk Tamínós, bjargvættar Pamínu,
en er fenginn af Næturdrottningunni,
móður Pamínu til þess að reyna að
bjarga henni úr klóm Sarastórs, sem hún
segir hinn versta mann. Tamínó ratar í
ýmsar raunir er hann reynir þetta, en
kemst jafnframt að því að Sarastró er
hinn ágætasti maður. Hann og Pamína
fella hugi saman, en til þess að þau fái
að eigast, og taka við ríki sólkonungsins,
föður Pamínu, í stað Sarastró verða þau
að sigrast á ýmsum þrautum sem
Sarastró leggur fyrir þau.
Blaðamaður Tímans spurði Garðar
Cortez hvernig honum félli hlutverk
Tamínó: „Mér finnst mjög gaman að
þessu hlutverki. Þetta er reyndar eitt af
fáum Mozarthlutverkum sem hæfir
minni rödd. Það hefur einnig verið afar
skemmtilegt að taka þátt í undirbúningi
að uppfærslu þessa mikla verkefnis, og
æfingar hafa að mínu mati gengið mjög
vel. Annars ættir þú að spyrja æfinga-
stjórann okkar, Mark Tardue um það
hvernig æfingarnar hafa gengið, en hann
hefur æft einsöngvara og kórinn, þannig
að þeir væru reiðubúnir til þess að æfa
undir stjórn hljómsveitarstjórans."
- Blaðamaður tekur Garðar á orðinu
og spyr Mark Tardue um hvernig hafi
gengið að hans mati. „Þetta er í fyrsta
sinn sem ég tek að mér svona verkefni
fyrir utan Bandaríkin og ég verð að segja
það, að það kom mér ánægjulega á óvart
hverskonar efniviður beið mín héma.
Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast,
en hef sfðan komist að raun um að
„standard" íslensks tónlistarlífs er mjög
hár og mér hefur þótt ánægjulegt í alla
staði að starfa hér. Ég held að ég haft
hvergi nokkurs staðar fyrirhitt jafn
elskulegt fólk og íslendinga, að minnsta
kosti hafa viðtökur þær sem ég hef hlotið
verið afar hlýlegar."
Næturdrottningin eitt
erfiðasta sönghlutverk
sem til er í óperum
Garðar Cortez og Ólöf Kolbrún höfðu
upplýst blaðamann um að hlutverk
Næturdrottningarinnar, í Töfraflaut-
unni væri eitt alerfiðasta sönghlutverk
sem til væri í óperutónlist, og sögðu þau
að aðeins fáar raddir í heiminum gætu
sungið þetta hlutverk, en röddin sem til
þarf liggur eins ofarlega og hugsast getur
í tónlist, og nefnist colloratura. Stúlkan
sem syngur Næturdrottninguna heitir
Lydia Rucklinger og er hún austurrískur
nemi, í söng og blaðamennsku. f kvöld
fer hún með sitt fyrsta hlutverk á sviði,
en áður hefur hún sungið einsöng á
tónleikum í ísrael auk þess sem hún
hefur að sjálfsögðu sungið fjölda
hlutverka í námi sínu við Tónlistar-
háskólann í Vín. Lydia, sem er aðeins
24 ára gömul, segir þegar blaðamaður
spyr hana um hlutverk hennar í
Töfraflautunni: „Það er rétt, að þetta er
geysilega erfitt hlutverk, því tónhæðin
er svo mikil, og ég verð að koma beint
á sviðið og syngja erfiðar, dramatískar
aríur, en fæ- ekki að hita mig upp með
auðveldari söng. Það leggst hins vegar
vel í mig að syngja þetta hlutverk og ég
hef haft mjög gaman af því að æfa með
íslenskum listamönnum. Það er ekki
kominn neinn frumsýningarskrekkur í
mig enn, en hann kemur sjálfsagt.“
„Megum ekki hlaupa og
hafa hátt“
Blaðamanni tekst að króa af þrjár
sætar hnátur, sem hlaupa eftir ganginum
í Gamla bíó, um leið og þær bera saman
bækur sínar um það hvað hver þeirra
hafi nú komið með í nesti á æfinguna.
Hnáturnar heita Ingibjörg Agnes Jóns-
dóttir, 11 ára, Jóra Jóhannesdóttir, 11
ára síðan í gær og Guðrún Elín
Sigurðardóttir 10 ára. Blaðamaður spyr
þær hvað þær séu að gera þarna; og
einum rómi svara þær: „Við leikum í
Töfraflautunni. Við Ieikum allt mögu-
legt, bæði krakka og svo dýr, t.d. fugla,
dádýr, héra og tígrisdýr. Það er ein
stelpa í viðbót sem heitir Anna Sóley,
sem leikur líka og svo eru fjórir
strákar."
Þá forvitnast blaðamaður um það hjá
ungu dömunum hvort þær séu í
leiklistarskóla en þær segja: „Nei, við
erum í Ballettskóla Þjóðleikhússins og
einn strákanna ltka.“ Aðspurðar um það
hvort þetta sé gaman segja þær: „Já,
þetta er voða gaman. Það er ekkert erfitt
að æfa svona á kvöldin, því við lærum
bara heima fyrir skólann á daginn. Það
eina sem er leiðinlegt, er að við megum
Hljómsveitarstjórinn, Gilbert Levine.
■ Tamínó ásamt dýrum skógarins, en þeirra á meðal eru litlu dömurnar þrjár, sem
stutt spjall er við hér á síðunni.
ekki hlaupa og hafa hátt, þegar við erum ekki
að æfa, þá eigum við bara að sitja kyrrar, og
það er svolítið leiðinlegt.“
- Það er ekki erfitt að ímynda sér að
leikstjórinn Þórhildur Þorieifsdóttir hafi góðan
aga á ungu dömunum, því hún lætur skipanirnar
vaða óhikað, hvort sem kórmeðlimir eða
einsöngvarar eiga í hnút. Lítur blaðamann
hálfgerðu hornauga, því hann er helst til
snemma mættur til leiks, og segir í hvössum tón.
„Hvenær var þér sagt að mæta?“ Má síðan ekki
vera að að hugsa meira um það, en snýr sér að
ljósameistaranum og segir: „Heyrðu, þetta er
hálfflatneskjulegt, „rýkur síðan upp á senu, og
messar yfir karlpeningnum í kórnum og segir
m.a. Heyriði karlar, það þarf örlítið meira
fjaðrafok á þessum stað.“ Sem sagt, í nógu að
snúast, og ekki allt smollið endanlega saman,
þegar Tímamenn litu inn, en verður sjálfsagt
allt í sómanum á frumsýningunni í kvöld,
þegar þýðir ómar töfraflautunnar berast út um
salarkynni Gamla bíós. - AB
Æ STAÐUR HINNA VANDLATU
Pantið tímanlega.
M i
| ★ Fjölbreyttan matseðil ★ Diskótek
D 1 L/Ulli ★ Skemmt^triði ★ Lifandi músik
Símar: 23333 og 23335
Föstudagskvöld - Skemmtikvöld
Laugardagskvöld - Skemmtikvöld
Sunnudagskvöld - Þórskabarett