Tíminn - 28.10.1982, Blaðsíða 18

Tíminn - 28.10.1982, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1982 18 flokksstarf Framsóknarkonur í Reykjavík Félag framsóknarkvenna I Reykjavík skorar á allar framsóknarkonur í Reykjavík, yngri sem eldri, að mæta á rabbfund meö kaffiveitingum, sem haldinn verður að Rauðarárstíg 18 mánudaginn 1. nóvember n.k. kl. 4'.00. Undirbúningur hins umfangsmikla jólabasars er hafinn og fyrir dyrum stendur flokksþing. Það er því mikilvægt, að sem allra flestar framsóknarkonur mæti á þennan fund. Einnig minnum við framsóknarkonur á Framsóknarvistina á Hótel Sögu í kvöld kl. 8:30. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Mosfellssveit - Kjalarnes - Kjós Framsóknarfélag Kjósarsýslu heldur félagsfund þriöjudaginn 2. nóv. n.k. kl. 21.00. í Hlégarði (gengið inn að austanverðu) Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á flokksþing 2. Kosningfulltrúaákjördæmisþing 3. Hreppsmál Stjórnin Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðarsýslu verður haldinn á Hvanneyri fimmtudaginn 28. okt. n.k. kl. 21. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing Davíð Aðalsteinsson alþingismaður mætir á fundinn. Stjórnin. Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins Október 23.-31. Stjórnmála- og félagsmálanámskeið Fimmtudagur kl. 20.00 Nútímastjórnun: Einar Haröarson kl.21.30 Fyrirspurnir ■,Föstudagur kl. 20.00 Sjónvarpsframkoma kl.21.00 Verklegaræfingar Laugardagur kl. 10.00 Verklegaræfingar kl. 12.00 Hádegisverður kl. 13.00 Verklegar æfingar Sunnudagur kl. 10.00 Verkiegaræfingar kl. 12.00 Hádegisverður kl. 13.00 Lokaorð um félagsmál kl. 14.00 Afhending viðurkenningaskírteina kl. 14.30 Námskeiðaslit Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Framsóknarflokksins sími 24480. 18. flokksþing framsóknarmanna Flokksþingið hefst laugardaginn 13. nóvember kl. 10 f.h. á Hótel Sögu, Reykjavík. Áætlað er að þingið standi í þrjá daga. Þau flokksfélög sem enn ekki hafa kjörið þingfulltrúa eru hvött að gera það hið bráðasta og tilkynna flokksskrifstofu í síma 24480. Flugleiðir og Arnarflug hafa ákveðið að gefa þingfulltrúum verulegan afslátt af fargjaldi á flugleiðum sínum innanlands gegn framvísun kjörbrefs. Ennfremur hafa Hótel Saga og Hótel Hekla ákveðið að veita þingfulltrúum verulegan afslátt á gistingu meðan á þinginu stendur. Aðalfundur ungra framsóknarmanna í Kópavogi verður haldinn mánudaginn 1. nóv. kl. 20.30 að Hamraborg 5. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing og flokksþing 3. Vetrarstarfið. 4. Önnur mál. Stjórnin. Keflavík Aðalfundur F.U.F. verður haldinn í Framsóknarhúsinu við Austurgötu sunnudaginn 31. okt. kl. 13.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Aðalfundur Framsóknarfélags V-Húnavatnssýslu verður haldinn í félagsheimilinu Hvammstanga föstudaginn 5. nóv. kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Kosning fulltrúa á flokks- þing Önnurmál Ingólfur Guðnason alþingism. mætir á fundinn. Stjórnin. Launþegaráð í Norðurlandskjördæmi eystra Framsóknarmenn í Norðurlandskjördæmi eystra hafa ákveðið að stofna launþegaráð í kjördæminu. Stofnfundur verður haldinn í félagsheimilinu á Húsavík laugardaginn 30. okt. og hefst kl. 17. Allir áhugasamir framsóknarmenn velkomnir á fundinn. Nefndin Vesturland Kjördæmisþing framsóknarmanna í Vesturlandskjördæmi verður haldið á Hótel Borgarnes laugardaginn 30. okt. og hefst kl. 10. f.h. Þórarinn Þórarinsson mætir á fundinn og ræðir stjórnarskrármálið. Stjórnir framsóknarfélaganna í kjördæminu eru minntar á að kjósa fulltrúa á þingið. Stjórn kjördæmissambandsins. Hátíðarsamkoma Framsóknar- félaganna í Reykjavík verður haldin að Hótel Sögu laugardaginn 13. nóvember n.k. og hefst kl. 20.00 með borðhaldi. Á dagskrá eru fjölbreytt skemmtiatriði, og að borðhaldi loknu verður stiginn dans fram eftir nóttu. Aðgöngumiðar eru seldir á skrifstofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstíg 18, sími 24480. Framsóknarfélögin í Reykjavík. Bingó Félag ungra framsóknarmanna heldur bingó n.k. sunnudag kl. 14.30 að Hótel Heklu Rauðarárstíg 18. FUF Reykjavik Almennur félagsfundur Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík verður haldinn sunnudaginn 31. okt. kl. 18.30 að Hótel Heklu Rauðárárstíg 18. Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Fulltrúar á flokksþing. Stjórnin. Suðurland. Kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi verður haldið að Leikskálum Vík 30. okt. n.k. og hefst kl. 10. f.h. Nánar auglýst síðar. Borgarnes - Nærsveitir Spilum félagsvist í Hótel Borgarnes föstudaginn 28. okt. kl. 20.30. Framsóknarfélag Borgarness. Bessastaðahreppur-Garðabær- Hafnarfjörður Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Gaflinum við Reykjanesbraut fimmtudaginn 28. okt. kl. 20.30. Á fundinum munu þeir Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra og Jóhann Einvarðsson alþingismaður ræða um stjórnmálaviðhorfið. Framsóknarfélögin. Reykjavík-Framsóknarvist- Reykjavík Framsóknarfélögin í Reykjavík gangast fyrir fyrstu Framsóknar- vistinni í vetur að Hótel Heklu n.k. fimmtudagskvöld, 28. október. Byrjað verður að spila kl. 8.30, og eru þátttakendur vinsamiegast beðnir að mæta tímanlega. Aðgöngumiðar við innganginn. Góð verðlaun, - og kaffiveitingar í hléi. Franisóknarféiögin í Reykjavík. Sunnlendingar 23. kjördæmisþing framsóknarmanna á Suðurlandi verður haldið í Leikskálum Vík laugardaginn 30. okt. n.k. og hefst k(. 10.00 stundvíslega. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Stjórnmalaviðhorfið, Halldór Ásgrímsson alþingísmaður. 4. Iðnþróun og atvinnumál á Suðurlandi, Hjörtur Þórarinsson framkvæmdastjóri. 5. Álit framboðsnefndar. 6. Önnur mál. Hópferðabíll fer frá Selfossi kl. 7.30. Stjórnin. Árnesingar Hin árlegu spilakvöld hefjast í Aratungu föstudaginn 5.nóv. kl. 21.00. Ávarp: Davíð Aðalsteinsson alþingism. Góð kvöldverðlaun. Heildarverðlaun: Utanlandsferð fyrir tvo. Framsóknarfélag Árnessýslu. Kvikmyndir Salur 1 Frumsýnir stórmyndina Atlantic City ínurfi jiiiornu rasriiHB R^a^.wiini fiai» Atlantic City var útnetnd fyrir 5 óskarsverðlaun í marz s.l. og hefur hlotið 6 Golden Globe verðlaun. Myndin er talin vera sú albesta sem Burt Lancaster hefur leikið i, enda fer hann á kostum í þessari mynd. Aðalhlutverk: Burt Lancaster, Susan Sarandon og Michel Piccoli Leikstjóri: Louis Malle Bönnuð innan 12 ára Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 Salur 2 Félagarnir frá Max-bar) Vtxi only make friends like these onceinalifetime... 4teðjL Richard Donner gerði myndimar Superman og Omen, og Max-Bar er mynd sem hann hafði lengi þráð að gera. John Savage varð heimsfrægur fyrir myndimar The Dear Hunter og Halr, og aftur slær hann í gegn í þessari mynd. Petta er mynd sem allir kvik- mydnaaðdáendur mega ekki láta fram hjá sér fara. Aðalhlutv.: John Savage, Davld Morse, Dlana Scarwlnd Leikstjóri Richard Donner. Sýndkl. 5, 7.05, 9.10 og 11.15 Salur 3 Hvernig sigra á verðbólguna Sýnd kl. 5 og 9 Dauðaskipið (Deathshlp) Peir sem lifa það af að bjargast úr draugaskipinu, eru betur staddir að vera dauðir. Frábær hrollvekja. Aðalhlv: George Kennedy, Ric- hard Grenna. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 7 og 11. Salur 4 Porkys er frábær grínmynd sem slegið hefur öll aðsóknamiet um allan heim, og er þriðja að- sóknarmesta mynd i Bandarlkj- unum þetta árið. Það má með sanni segja að þetta er grínmynd ársins 1982, enda er hún I algjörum sérflokki. Aöalhlutv.: Dan Monahan, Mark Herrier og Wyatt Knight. Sýnd kl. 5,7 og 9 Bönnuð Innan 14 ára. Hækkað verð. Exterminator (Lí The Exterminator (GEREYDANDINN) Sýnd kl. 11 Salur 5 Being There Sýnd kl. 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.