Tíminn - 29.10.1982, Qupperneq 1
„Helgarpakkirm” fylgir Tímanum í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Föstudagur 29. okt. 1982
246. tbl. - 66. árgangur.
Málefni
Hlöðu-
skólinn
— bls. 9
Olympíu-
I ÆM__r|i
í Luzem
— bls. 21
SEDUBANKINN AKVES-
UR VAXTAHÆKKUN
— frá næstu mánaðamótum — verður væntanlega tilkynnt í dag
■ Nú um mánaðamótin verða banka-
vextir hækkaðir um 6 til 8%, samkvæmt
heimildum Tímans. Er þessi ákvörðun
bankastjórnar Seðlabanka Islands til-
komin vegna versnandi gjaldeyrisstöðu
okkar íslendinga og aukinnar eyðslu,
sem hefur orðið til þess að gjaldeyrir
hefur streymt ört út úr landinu, en lítið
komið inn í staðinn.
„Það kemur náttúrlega ekki til mála,
að við þurrausum okkur af gjaldeyri og
getum okkur hvergi hreyft," sagði
Tómas Árnason, bankamálaráðherra,
þegar blaðamaður Tímans ræddi við
hann um þessi mál.
„Þeir sem skulda í dollurum, horfast
í augu við það að fjármagnskostnaður
þeirra er kominn yfir 100% á árinu,“
sagði Halldór Ásgrímsson, formaður
bankaráðs Seðlabanka íslands, m.a.
þegar blaðamaður Tímans ræddi við
hann um vaxtahækkanir. „Spurningin
hjá okkur er því sú,“ sagði Halldór hvort
við eigum að halda okkar innlenda fé á
einhverjum allt öðrum kjörum, en þeir
sem hafa þurft að taka erlend lán þurfa
að búa við.“ „Vaxtahækkun er ekki
ákveðin fyrr en hún er tilkynnt, en ég
reikna með að innlánsvextir verði
hækkaðir um 8 til 9%, en annað vil ég
ekki segja í bili,“ sagði Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri þegar Tíminn
spurði hann í gær um vaxtahækkanir.
- Sjá nánar bls. 5
-AB
iB
■ „Willys-jeppinn valt hægt og rólega yfir Citroeninn en sem betur fer urðu engin meiðsli,“ sagði lögreglumaðurinn, sem Tíminn spurði hvað hefði átt sér
stað áður en þessi mynd var tekin á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar um kl. 16.00 í gær. Aðdragandinn var sá, að
ökumaður Citroen-bílsins æ’tlaði að beygja af Kringlumýrarbrautinni austur Suðuriandsbraut. Á móti honum úr suðri, kom jeppinn og lentu bOamir saman
með fyrrgreindum afleiðingum. Tímamynd Sverrir
Endanlegar niðurstödur af athugun Coopers & Lybrand liggja fyrir:
FRAM LEIÐSLUGJ ALDIÐ
HÆKKAÐ UM 90 MILU.?
■ Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar-'
ráðherra, lýsti þeirri skoðun sinni á
Alþingi í gær, að íslensk stjómvöld ættu
að endurákvarða Isal framleiðslugjald
frá og með árinu 1976 að telja.
Samkvæmt lauslegu mati gæti hér verið.
um að ræða um 6 milljón dollara
hækkun, sem samsvarar um 90 milljón-
um íslenskra króna, fýrir árin 1976-1980.
Fram kom hjá ráðherranum, að nú
lægju fyrir lögfræðiálit samin af Bene-
dikt Sigurjónssyni, fyrrverandi hæsta-
réttardómara, og Ragnari Aðalsteins-
syni, hæstarréttarlögmanni, sem tækju
af öll tvímæli um að endurákvarða mætti
framleiðslugjald á Isal samkvæmt al-
mennum grundvallarreglum íslenskra
skattalaga. Hann gerði jafnframt grein
fyrir lokaniðurstöðum Coopers & Ly-
brand, þar sem segir, að yfirverð á
aðföngum til Isal árin 1975-1981 hafi
samtals numið 31.5 milljónum dollara,
eða um 470 milljónum íslenskra króna
á núverandi gengi. Samtals hefur
hagnaður ísal að mati Coopers &
Lybrand verið um 35.8 millj. dollara
meiri en bókhaldið hefur gefið til kynna,
en það jafngildir um 536 milljónum
króna.
-Sjá nánar bls. 3.