Tíminn - 09.11.1982, Blaðsíða 1
Allt um iþróttir helgarinnar á bls. 11, 12, 13 og 14
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Þriðjudagur 9. nóvember 1982
255. tölublað - 66. árgangur
Erlent
yflrllt:
Rætt um
afvopnun
— bls. 7 —
Liflíkur
aukast
— bls. 10
Sex þús-
und hafa
horfið
— bls. 17
Frönsk
kvik-
mynda-
vika
— bls. 23
|Forsætisrádherra gefur ekki kost á sér
BfÐUR GUNNAR EFTIR
BOÐI FRA KIÖRNEFND?
— Hefö fyrir því ad þingmönnum flokksins sé boöiö sæti í prófkjöri
AUir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
[ ins í Reykjavík, nema Gunnar Thor-
! oddsen forsætisráðherra höfðu skilað
; inn framboðstilkynningu til prófkjörs
; til kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavik, fyrir kl. 17 í gær, en þá
rann út framboðsfrestur.
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra sagði í samtali við blaðamann
Tímans í gær að hann hefði ekki gert
upp hug sinn hvort hann gæfi kost á
sér, en hann bætti því jafnframt við að
kjörnefndin gæti bætt við frambjóð-
endum á listann, og það er einmitt það
sem nefndin þarf að gera, því að það
voru aðeins 17 manns sem skiluðu inn
tilkynningu um þátttöku í prófkjöri í
gær, en þeir þurfa að vera minnst 24
og eru oftast 30 til 40.
Flestir þeir sem einhvern áhuga hafa
á prófkjörsmálum Sjálfstæðisflokks-
ins, eru nú þeirrar skoðunar, að
Gunnar Thoroddsen bíði þess nú að
kjörnefnd hafi samband við hann og
bjóði honum sæti á listanum, þvi
fyrir því hefur myndast hefð hjá kjör-
nefndum Sjálfstæðisflokksins, að ef
þingmaður flokksins gefur ekki kost á
sér í prófkjör, þá hefur kjörnefnd
samband við viðkomandi þingmann
og spyr hann hvort hann vilji gefa kost
á sér.
Gunnar Helgason, formaður kjör-
nefndar Sjálfstæðisflokksins var að
því spurður í gærkveldi, hvort kjör-
nefndin myndi fara þessa hefðbundnu
leið og bjóö:i Gunnari Thoroddsen
sæti á framl oðslista flokksins: „Pað
eina sem ég il segja er að framboðs-
frestur er liðinn, og síðan höfum við
viku til þess að vinna prófkjörslista.“
-AB
Sjá frétt á bls. 5
Stúlkan er talin hafa látist um leið og bfllinn valt.
HORMULEGT BANASLYS
— í Kópavogi um helgina eftir eltingaleik lögreglu
vid réttindalausan og meintan ölvaðan ökumann
■ Tuttugu og þrír hafa látist í
umferðinni hér á landi það sem af er
árínu. Fimmtán ára stúlka, Ingunn
Hildur Unnsteinsdóttir, til heimilis að
Balseli 35 í Reykjavík, varð tuttugasta
og þríðja fómarlambið þcgar bfll sem
hún var farþegi í lenti á Ijósastaur og
valt austast á Nýbýlavegi í Kópavogi
laust fyrir miðnættið á föstudag. Oku-
maður bflsins var 16 ára, réttindalaus
og grunaður um ölvun.
Um klukkan 23.45 varð lögreglan í
Kópavogi vör við Hondu bíl sem ekið
var á mikilli ferð austur Nýbýlaveg.
Við Þverbrekku reyndi lögreglan að
koma vegartálmum fyrir bílinn, en
ökumaður virti þá að vettugi. Hélt
hann áfram austur Nýbýlaveginn þar
til komið var að Suðurhlíðarvegi, en
þar missti hann vald á bílnum með
þeim afleiðingum að hann lenti á
Ijósastaur og valt. Bíllinn er gerónýtur.
Fimm ungmenni, 14 til 17 ára, voru
í bílnum, sem er eign ökumannsins.
Talið er að Ingunn Hildur hafi látist
samstundis, ein stúlka liggur mikið
slösuð í Borgarspítalanum eftir slysið,
en hin þrjú sluppu með minniháttar
meiðsli.
Sjó.