Tíminn - 10.11.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 10.11.1982, Qupperneq 1
IVIenning armál — bls. 9 Heimilis tfminn: fslendingaþættir fylgja blaðinu í dag TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ Miðvikudagur 10. nóvember 1982 256. tölublað - 66. árgangur póstur bls. 10 Koo og Andrew — bls. 2 Félagar á Max bar - bls. 23 Línur skýrast í harðnandi keppni um forsetaembætti FIDE: ÖRUGGT ER AÐ FRIÐRIK KOMISTIAÐRA UMFERÐ Frá Uluga Jökulssyni - Luzern ■ Aukinnar bjartsýni gætir nú hér í Luzem á meðal stuðningsmanna Frið- riks Ólafssonar, að hann komist í aðra umferð, þegar kosið verður á morgun í embætti forseta Aiþjóðaskák- sambandsins. Kosningabaráttan er í hámarki, og til marks um það hversu hörð framgangan getur orðið, þá má geta þess að Guðmundur G. Þórarins- son, sem er staddur hér í Luzem til þess aðveraFriðrik til fulltingis, ræddi í gær við forseta sovéska skáksam- bandsins Krokius og annan fulltrúa Rússa, Sevastianov um hugsanlegan stuðning Rússa við Friðrík í hanastéls- boði hjá aðalkeppinaut Friðriks, Cam- pomanes! Hafði Guðmundur átt að hitta Rússana í gær og fá þeirra afstöðu á hreint en vegna sjónvarpsviðtals þeirra, þá höfðu þeir ekki tíma, og Sevastianov bauð Guðmundi því að koma í kokteilboðið til Campomanes- ar og lét hann fá boðskort sitt í þeim tilgangi. Guðmundur G. Þórarinsson mætti því nauðugur viljugur í kokteil- boð hjá Campomanes og stóð úti við vegg og ræddi við Rússana! Þeir vilja ekki gefa upp hvern þeir muni styðja enn, en talið er að þeir muni styðja Kazic í fyrri umferðinni, en falli hann út, þá muni þeir styðja Friðrik í seinni umferðinni. Þeir greindu Guðmundi þó frá því að þeir hefðu verið á þriggja tíma fundi í gær og ekki komist að niðurstöðu um það hvem þeir vildu styðja. Guðmundur ræddi einnig við Bandaríkjamenn í þessu boði Cam- pomanes, en þeir vildu ekki heldur greina frá afstöðu sinni. Rússarnir vildu fá að heyra mat Guðmundar á stöðunni og sagðist hann hafa sagt þeim að Friðrik ætti 50 atkvæði vís, Campomanes ætti í kring um 40 atkvæði vís, en væri að tapa atkvæðum og Kazic ætti 20 til 30 atkvæði vís, allt eftir því hve miklu Campomanes tapaði. fslendingamir hér í Luzern virðast vera orðnir sannfærðir um að Friðrik komist í aðra umferð. ■ Mjog harður arekstur varö a gatnamotum Laufasvegar og Njarðargotu um klukkan 16 í gær. Austin Mini var ekið af Laufásvegi inn á Njarðargötu án þessað ökumaður hans virti biðskyldu sem þar er. Skipti engum togum, Volvo Amazon sem ekið var upp Njarðargötu lenti á framhomi Austin-bílsins. Við höggið missti ökumaður Austin-bflsins meðvitund og var hann fluttur í slysadeild. Þar raknaði hann fljótlega úrrotinu og reyndist ekki alvarlega meiddur. Báðir bflarnir skemmdust mikið. -Sjó./Tímamynd Róbert. Verkfall í Snælandsskóla f gærvegna óánægju kennara: FRÆÐSLUSTJÓRI LOFAR AÐ LEYSA UR MAUNU! ■ „Við ætlum að hafa vinnudag kennara á morgun - sem við höfum heimiid til 9-10 daga á ári - en kennsla hefst síðan aftur á flmmtudag,“ sagði skólastjóri Snælandsskóla í Kópavogi, Donald Jóhannesson, í gærkvöldi. Kennsla við skólann var felld niður í gær til að pressa á um 7 siundakennar- ar við skólann fengju fastráðningu. „Það fékkst viss bráðabirgðalausn á málinu á skólanefndarfundi nú áðan þar sem fræðslustjóri lofaði persónu- lega að leysa þetta mál með þeim eina fyrirvara að menntamálaráðherra sam- þykkti hans tillögur, sem við treystum á að hajjn geri“, sagði Donald. Aðspurður kvað Donald engan sparnað felast í því að hafa kennarana lausráðna, greiðslurséu jafnháar. Eng- inn í öllu kerfinu hafi hins vegar fengist til að svara því af hverju tregðan við fastráðningu hafi raunverulega stafað. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.