Tíminn - 10.11.1982, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982.
í spegli tfmansf
Í.Umsjón: B.St. og K.L.
K00 FÓR í NÆTUR-
kolluna
■ Liberacc píanóleikari sefur
aldrei án þess að hafa parrukið
á höfðinu, og meira að segja
fer með það í bað.
„Eg hef aðeins tvisvar séð
hann án hárkollunnar", segir
hinn 27 ára einkabílstjóri hans,
Scott Thorson, sem nú er í
málferlum við fyrrum vinnu-
veitanda og ástvin sinn. „í
annað skiptið sá ég hann
parruklausan í sturtubaði og
hitt skiptið þegar hann var á
spítala að gangast undir and-
litslyftingar-skurðaðgerð.
Liberace hafði tekið Scott
| Thorson að sér, þegar þeir
kynntust i Las Vegas fyrir 6
árum, og gerði hann þá að
einkabðstjóra sínum. Scott
Thorson kxrir nú hinn 63 ára
vinnuveitenda sinn fyrir „brot-
ið hjúskaparloforð“. Hann
segir að Liberace liafi lofað að
sjá fyrir sér, og krefst fram-
færslupeninga af hinum ríka
og skrautlega píanóleikara.
Fyrir peningana segist Scott
Thorson ætla að afla sér
menntunar, sem hann hafi
ekki haft ráð á hér á árum
áður, en hafi alltaf baft hug á.
HEIMSOKN I HðlllNA
— varð að fá lögregluvernd til að losna við
blaðamenn og Ijósmyndara
■ „Koo eyddi nótt í höll-
inni“. Þessa fyrirsögn mátti
nýlega sjá á forsíðu eins af
bresku dagblaðanna, og síðan
hélt frásögnin áfram sem aðal-
frétt á forsíðunni. Við birtum
hér smávegis úrdrátt úr þessari
frásögn:
Astarævintýrið heldur áfram
- og eftir allt andstreymið að
undanförnu hittust þau nú
aftur í London, Andrew prins
og Koo Stark.
Síðustu nótt (31.okt.) eyddu
elskendurnir saman í Bucking-
hamhöll. Þetta voru fyrstu
endurfundir eftir allt sem gekk
á, þegar Andrew fór til Mustiq-
ue í Karabíska hafinu i frí með
vinkonu sinni. Þegar upp
komst að hún hafði leikið í
vafasömum kvikmyndum ætl-
aði alit um koll að keyra hjá
hirðinni, að því að sagt er.
Koo hefur að undanfömu
haft aðsetur í íbúð í London,
sem vinafólk hennar á, og
hefur lögregluvörður verið
henni til halds og trausts.
Þama um kvöldið, þegar
Koo fór í heimsóknina, hjálp-
aði lögreglan henni að komast
fram hjá blaðamönnum og
Ijósmyndurum, sem stöðugt
sitja um hana. Hún komst í bfl
sem beið hennar. Eftir miklar
krókaleiðir komst hún til halar-
innar og var þar hleypt inn um
einhvern hliðarinngang.
Þaðan kom hún svo aftur
■ Koo kemur heim að morgni. Hún hljóp úr leigubflnum og inn
í íbúðina, þar sem hún býr hjá vinafólki sínu.
■ Andrew prins brosir og
virðist hafa tekið gleði sína á
ný. Vinir hans sögðu, að hann
hefði verið óánægður og leiður
eftir fríið í Karabíska hafinu,
sem mest lætin vom út af.
um morguninn, og tók sér
leigubfl á torgi nálægt höllinni.
Um 11 leytið kom hún svo
aftur heim í íbúð sína, og þrír
lögreglumenn stóðu tilbúnir
þegar bfllinn renndi heim að
dyram í íbúðinni í Kensington,
þar sem Koo býr. Hún var í
sömu fötum og kvöldið áður -
Þegar hún hljóp undir lögreglu
vernd út í bfl. Að síðustu
segir svo í þessari bresku
forsíðufrétt:
Nú fer prinsinn að Ijúka
leyfinu sínu og skyldan kallar.
Hann á að fara til sjóherstöðv-
arinnar í Culdrose í Cornwall.
- Þessi næturheimsókn í höll-
ina - í fjarvem drottningar og
Philips prins - hrekur allar
tilgátur um að ástarævintýr-
ið bafi farið út um þúfur.
Christiaan Barnard í
hjónaband í 3ja sinn?
Liberace
sefur
með hár-
■ Þegar vinir Christiaans
Barnard pískra um, að nú
sé þriðja hjónabandið í
vændum hjá þessum fræga
hjartaskurðlækni og hjarta
knosara, eiga þeir ekki
við, að enn sé ný kona
komin í spilið hjá honum.
í janúar sl. slitu þau
samvistum, Christiaan og
kona hans Barbara. Kvaðst
hún vera búin að gefast
upp á öllu flandrinu í manni
sínum. En nú hafa þau
aftur samið frið, að sögn
kunnugra. Æ oftar kcmur
það fyrir, að þau eyða
rólegum dögum saman á
fyrrum sameiginlegu heimili
þeirra og haga sér eins og
ástfangnir unglingar. Vin-
irnir bæta því við, að Christ-
iaan hafi ekki gert sér grein
fyrir hversu ástfanginn af
Barböru hann er fyrr en
eftir skilnaðinn!
■ Loks rann upp Ijós fyrir
Christiaan Barnard. Vinir
hans segja hann fyrst hafa
áttað sig á því, hversu
ástfanginn hann er af konu
sinni, eftir að þau skildu.
GLITRANDI
■ Michiko Takeda sýnir á myndinni dýrasta
golfútbúnað, sem vitað er til að framieiddur hafí
verið. Michiko er sölumaður í lúxusverslun í
Tokyo, þar sem sýndir og seldir eru sérstakir dýrir
gripir til gjafa - eða til að kaupa handa sjálfum
sér ef veskið er yfírfullt af peningum. Sjálf er
Michiko sögð það allrafegursta í búðinni, - en
hún er nú ekki til sölu.
Þessi golfkúla, sem stúlkan heldur á í hendinni,
kostar meira en 10.000 sterlingspund. Hún er
sett 336 demöntum, sem glitra í öllum regnbogans
litum, þegar sólin skín á kúluna. Líklega fær
þessi kúla þó ekki að veltast mikið á grasi á
gólfvöllum, því að það er dýrt spaug ef hún
tapaðist; Þá er kylfan ekki slorleg, - enda er hún
áætluð á 300.000 sterlingspund. Hún er gullhúðuð
með 18 karat gulli og sett 121 demöntum.
Ef þið hafíð áhuga á að verða ykkur úti um
svona fínt golfsett, þá fæst það í Nisshindo -
gjafabúðinni í Tokyo, og Michiko er þar alla daga
við afgreiðslu.