Tíminn - 11.11.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 11.11.1982, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR U. NÓVEMBER 1982 13 ■ Heimilistæki hf. selja aðallega tölvu- búnað frá Wang Laboratories í Banda- n'kjunum, en einnig heimilis og nemend- atölvur frá Sinclair og sérhæfðar setning- atölvur frá Compugraphic. Wang tölvumar hafa verið boðnar hér á landi í ein átta ár, en Heimilistæki hf. tóku við umboðinu árið 1977. Dr. An Wang, kínverskur að uppruna, stofnaði hins vegar fyrirtæki sitt fyrir rúmum þrjátfu árum eftir að hafa selt mikilvæga uppgötvun til IBM og þar með komið undir sig fótunum fjárhagslega. í dag vinna yfir 17.000 manns hjá Wang og hefur fyrirtækið um árabil verið í fremstu röð hvað snertir vaxtarhraða og velgengni. Á síðasta fjárhagsári fór veltan yfir 1.000 milljónir dollara. „Við höfum eingöngu boðið 2200 lfnuna frá Wang, sem eru fremur litlar mini-tölvur, hentugar í meðalstór og stór fyrirtæki og stofnanir á íslenskan mælikvarða," sagði Reynir Kristjánsson, deildarstjóri hjá Heimilistækjum. „Hins vegar eru til mun stærri og öflugri tölvur hjá Wang sem ekki hafa verið fluttar hingað til lands, svokallaðar „super- mini“ tölvur. En við hófum innflutning sérstæðra ritvinnslukerfa í fyrrahaust, ritvinnslu má reyndar líka vinna á 2200 tölvunum þó ekki sé hún sambærileg ÍHr ■ Reynir Kristjánsson. vélinni í beinu framhaldi. Mögulegt er að flytja gögn úr ritvinnslukerfi inn á kerfið og má þannig oft komast hjá að tví og þvívinna sömu hlutina. Sinclair ZX-81 tölvan er líklega mest selda tölvan í heiminum í dag, um sex hundruð þúsund stykki seld nú þegar. Hún er kjörið verkfæri fyrir þá sem vilja læra forritun, tengist beint við venjulegt sjónvarp og getur haft 16.000 stafa minni. Gögn eru geymd á segulbandi sem má tengja við tölvuna. Eftir áramót 'er von á nýrri tölvu, Sinclair Spectrum, sem er fyrir þá sem eru lengra komnir og býður upp á flest það sem stærri míkró-tölvur bjóða, diskdrif, prentara, grafík og fjartengimöguleika. Hún verð- ur nokkuð dýrari en ZX-81 en samt sem áður mjög ódýr miðað við tölvur með sömu getu. Eftir áramót er einnig væntanleg ný tölva frá Wang, 16 bita míkró-tölva, „professional computer", sem er áþekk IBM „personal computer". Wang og ýmsir aðrir sátu hjá í fyrstu umferð míkró tölvanna en bætast nú slaginn. '■ Þessar annarrar kynslóðar smátölvur eru mun öflugri en hinar fyrri og koma til með að ryðja þeim af markaðinum fyrr en síðar. „WANG VAR BRAUTRYÐJANDi” — segir Reynir Kristjánsson hvað varðar hraða og mögulega vinnslu. Við höfum sérhæft okkur í gerð forritakerfa fyrir innflutnings og fram- leiðslufyrirtæki svo og sveitarfélög. Ýmsir sjálfstæðir aðilar hafa síðan búið til hin fjölbreytilegustu kerfi svo sem eins og Verkfræðistofa Helga Sigvalda- sonar sem hefur alfarið séð um kerfin á heilbrigðislínunni hjá Krabbameins- félagi Islands og nokkrum heilsugæslu- stöðvum. Þegar kerfin eru búin til er það atriði númer eitt hjá okkur að þau séu aðgengileg fyrir venjulegt fólk. Segja má að Wang hafi verið brautryðjandi þess að flytja tölvurnar úr bakherbergj- unum og inn í venjulegt vinnu-umhverfi á skrifstofum. Eins og kom fram áður bjóða Heimi- listæki hf. einnig sérhæfðar setningar- tölvur frá Compugraphic í Bandaríkjun- um. Enn eitt dæmi um þá gífurlegu breytingu sem er að verða alls staðar í kringum okkur. Textinn er sleginn inn á skjá, lagfærður og honum breytt á skjánum og er síðan settur í setningar- ■ Tölvuskólinn í Reykjavík hefur starfað á fjórða ár og skólastjóri er Reynir Hugason. Ég hitti að máli Unni Steingríms- dóttur hjá Tölvuskólanum og spurði hana um starfsemina. „Við kennum á Atari-tölvur og höfum byrjendanámskeið aðallega fyrir fullorðna og kenn- um þar undirstöðuatriðin í forrit- unarmálinu BASIC. Nemendur í þeim hafa verið á aldrinum 10-70 ára. Námskeiðin eru þann- ig uppbyggð að nemandi fær ákveðna lexíu á snældu, sem hann hleður inn í tölvu. Tölvan skrifar síðan út texta á skjáinn og útskýrir lexíu dagsins. Tölvan er því raunverulega aðalkennar- inn. Einnig eru hér notendanámskeið fyrir ■ Krakkamir hafa mikinn áhuga á tölvunum. Við erum líka með barnanámskeið. Þar notum við tölvur, sem hafa inn- byggðan lit og hljóð, heimilistölvur, hannaðar með tilliti til þess að höfða til einstaklingsins en ekki til viðskipta- heimsins. Við kennum börnunum undirstöðuna í BASIC og að forrita tölvuna með tilliti til litar og hljóðs og ennfremur er þeim kennt að teikna með henni. Krakkar eiga afskaplega auðvelt með að tileinka sér tölvunám. Þau eru opin fyrir allri tækni. Ég vildi svo gjarnan koma því á framfæri að mér finnst skorta á að mótuð sé stefna hjá stjórnvöldum í sambandi við þann tölvubúnað, sem fluttur er inn í landið með tilliti til hollustuhátta. Fyrir þann sem situr fyrir framan tölvuskjá skiptir miklu máli, hvernig sá skjár er. Það þyrfti að setja reglur um það, hvernig skjái fólk ætti að vinna við, en nágrannalönd okkar eru farin að setja um það ákveðnar reglur, hvaða skjái má nota við vinnu.“ „KRi :ei \ _ _ • : 3A_ LT MEÐ AÐTI TÖLI íunAm □ — rætt við LJnni Steingríms- dóttur hjá Tölvuskólanum þá, sem vinna við tölvur og þar er fólki ritvinnslu. Hér eru forritin öll íslensku, aðstæður. Þessi forrit eru í gangi hjá um kennt að nota ýmis bókhaldsforrit og unnin hjá okkur og miðuð við íslenskar 70 fyrirtækjum. ■ Unnur Steingrímsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.