Tíminn - 16.11.1982, Side 1
■ Leikið var í 3. deild karla á
íslandsmótinu í handknattleik um
helgina. Lið Skallagríms úr Borgar-
nesi fór norður í land og lék á
Akureyri gegn Þór og Dalvíkingum.
Þórsarar unnu mjög stóran sigur og
skoruðu 32 mörk gegn 12. Dalvíking-
ar unnu hins vegar mcð minni mun,
eða 31 marki gegn 25.
Reynir Sandgerði undir stjórn
Guðmundar Áma Stefánssonar, sem
áður lék með FH sigruðu Tý úr
Vcstmannacyjum með 20 mörkum
gegn 18. Og ekki tókst Týrumm að
sækja gull i greipar Keflvíkinga
heldur, því þar töpuðu þeir með 17
mörkum gegn 14. Loks léku Fylkir
og Ögri. Þar var svipað upp á
teningnum og hjá Þór og Skallagrimi
Fylkismenn sem hafa forystu í 3.
deild sigraðu Ögra með 34 mörkum
gegn 10.
Staðan í 3. deild eftir leiki helgar-
innar er sem hér segir:
Fylkir
Þór Ak.
Keflavik
Reynir
TýrVe.
Dalvik
Akranes
Skallagrímur
Ögri
5 5 0 0 122-77 10
6 3 2 1 145-111 8
6 3 1 2 130-107 7
5 3 1 1 109-100 7
6 2 1 3 122-105 5
6 2 0 4 134-132 4
3 1 1 1 72-76 3
4 1 0 3 85-112 2
5 0 0 5 59-158 0
Grótta og
Haukar
sigruðu
■ Aðeins tveir leikir fóni fram í 2.
deildinni í handbolta um helgina af
fjórum sem fyrirhugaðir voru. Vest-
mannacyingar gátu ekki flogið til
Akureyrar vegna veðurs og HK fékk
frestun vegna þess að þjálfari liðsins
Sigurbergur Sigsteinsson var í keppn-
isfcrðalagi með kvennalandsliðinu á
Spáni.
Grótta er enn í toppsæti og eiga
þcir Sverri Svemssyni sigurinn að
þakka gegn Aftureldingu á föstudags-
kvöld. Sverrir skoraði beint úr
aukakasti eftir að leik lauk og staðan
var þá 29-29. Þrítugasta markið
færði því Gróttu tvö stig og er liðið
í toppsxtinu í 2. deild.
Haukar léku einnig og andstæðing-
ar þeirra vora Ármenningar. Haukar
sigruðu í þeim leik meö 30 mörkum
gegn 26. Mildð skorað í 2. deildinni
um helgina.
SH
Stórsigrar hjá
Þór og Fylki
Hörkukeppni í
1. deildinni f
borðtennis
■ Keppnin í 1. deild íslandsmótsins
í borðtennis er hafin og hafa nokkrir
leikir farið fram. í karlaflokki léku
A-Iið KR og B-lið KR og sigraði
A-liðið 6-4 og hlýtur fyrir það 4 stig,
því úrslitin í þessum leik eru látin
gilda fyrir báðar umferðirnar. Þá
hafa A-lið Arnarins og B-lið KR
leikið og þar sigraði lið Amarins 6-4.
í meistaraflokki kvenna hefur
farið fram einn leikur miili A og'
D-liða Arnarins og sigraði A-liðið í
þeirri viðureign 3-0. Þar gildir hið
sama og með leik A og B-liða KR að
hann er látinn gilda fyrir báðar
umfcrðir og þvi era liðin komin með
4 stig, en A-lið Amarins í karlaflokki
með 2 stig.
Júgóslavar
leika
vígsluleik
á Akureyri
■ Búið er að ganga frá því, að báðir
leikir KR og Bikarmeistara Júgó-
slavíu í handknattleik verði leiknir
hér á landi. Verða þeir háðir í
Laugardalshöll dagana 5. og 7.
desember n.k. Hafa KR-ingargengið
frá öllum samningum þar að iútandi,
að sögn Þorvarðar Höskuldssonar
framkvæmdastjóra deildarinnar.
Þá mun júgóslavneska liðið leika
einn leik á Akurcyri og verður það
vígsluleikur nýrrar íþróttahallar Ak-
ureyringa. Þar munu þeir mxta liði
KA, sem mun hafa innanborðs
bræðuma Gunnar og Alfreð Gísla-
syni sem báðir leika með KR í 1.
deildinni í handbolta, en þeir léku
áður með KA, þannig að þeir munu
þá leika með sínum gömlu félögum
nyrðra.
Kristján og
Helgi ffara
á Húsavik
■ Þeir Helgi Helgason, sem lcikið
hefur síðustu árin með Vfldngi í 1.
deildinni í knattspymu og orðið
íslandsmeistari með liðinu tvö ár í
röð hefur ákveöið að lcika næsta
keppnistímabil á Húsavík og þjálfa
lið Völsungs. Hann og Kristján
Olgeirsson sem báðir era Húsvíking-
ar að ætt og uppruna hafa ákveðið að
snúa aftur heim og taka að sér
þjálfun liðsins. Báðir léku þeir með
Völsungi áður en þeir fóra til Vfldngs
og ÍA.
Þetta er mjög mikill liðsstyrkur
fyrir Völsung, en að sama skapi
missir íyrir liðin sem þeir hverfa frá.
Báðir era þeir mjög sterkir leikmenn
og hefur Kristján t.d. verið einn
sterkasti leikmaður Akurnesinga' á
síðustu árum. Helgi var ekki fastur
maður i liði Víkings í fyrrasumar, en
hann er samt sem áður mjög sterkur
leikmaður.
Kvermaliðið
í öðru sæti
■ íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik hafnaði í 2. sæti á mód sem það
tók þátt í á Spáni um helgina. Liðið
sigraði Vestur-Þjóðverja og ítali og
lék síðasta leik sinn gegn heimakon-
um, Spánverjum. Spænska liðið
hafði gert jafntefli við Vestur-þýsku
stúlkumar og þvi hefði jafntefli nægt
þeim íslensku til sigurs ■ mótinu.
En ekki fór svo vel, því þær
spænsku sigraðu með 21 marki gegn
17. Þess má geta, að þetta vora fyrstu
landsleikir íslenska kvennaliðsins i
rúmlega eitt ár og ekki eru fyrirhug-
aðir neinir kvennalandsleikir á næstu
mánuðuin.
■ Það er mikil einbeitni í svip þessara ungu körfuknattleiksmanna sem vora að keppa í íslandsmóti 5. flokks um helgina.
Sjá bls. 17.
Tímamynd Róbert
ÞETTA VERÐA ALLS
EKKI LÉTTIR LEIKIR
Segir Hilmar Björnsson um landsleikina gegn
Vestur-Þjóðverjum í handbolta
■ „Þetta verða alls ekki léttir leikir,“
sagði Hilmar Bjömsson landsliðsþjálfari
í handknattleik um viðureign íslendinga
og Vestur Þjóðverja í handknattleik um
næstu helgi. „Vestur-Þjóðverjar era
toppþjóð í handknattleik. Þess vegna
verða þeir erfiðir viðureignar. En verði
vamarleikurinn og markvarslan í góðu
lagi ættum við að geta sigrað.“
Fyrri leikurinn verður háður á föstu-
dagskvöld klukkan 20.00 í Laugardals-
höll og sá síðari á sama stað á
sunnudagskvöld klukkan 20.00.
íslenska liðið hefur æft mjög vel fyrir
þessa leiki og þá leiki sem koma í kjölfar
þeirra, en þeir eru gegn landsliði
Frakka. Til marks um æfingaálagið má
nefna, að á fimmtán dögum æfði liðið
alls 27 sinnum, þannig að flesta daga
hefur það æft tvisvar á dag. Er þá æft í
hádeginu og á kvöldin. Nú síðustu
vikuna hefur liðið Ieikið æfingaleiki
gegn 1. deildarliðum og að sögn Hilmars
virðist liðið vera að smella saman.
Landsliðshópur íslands.
Hilmar Björnsson hefur valið 17
leikmenn til undirbúnings undir þessa
leiki sem framundan eru. Það eru
markverðimir Einar Þorvarðarson,
Kristján Sigmundsson og Brynjar
Kvaran. Lfnumennirnir Þorgils Óttar
Mathiessen, Steindór Gunnarsson,
Magnús Teitsson og Jóhannes Stefáns-
son. Hornamenn eru Bjarni Guðmunds-
■ Þorbergur Aðalsteinsson á að
stjóma landsliðinu á leikvelli í
ieikjunum gegn Þjóðverjum og
Frökkum.
son, Guðmundur Guðmundsson og
Ólafur Jónsson. Útispilarar eru Þorberg-
ur Aðalsteinsson, Sigurður Gunnarsson,
Kristján Arason, Sigurður Sveinssson,
Páll Ölafsson, Alfreð Gíslason og Hans
Guðmundsson. Fyrirliði landsliðsins er
Þorbergur Aðalsteinsson. Þeir Bjarni og
Sigurður Sveinsson leika báðir með
þýska félaginu Nettelstedt og koma þeir
til landsins á fimmtudag, þannig að þeir
munu ekki fá langan tíma til æfinga með
félögum sínum. En vonandi kemur það
ekki að sök.
Landslið Vestur-Þjóðverja
í landsliðshópi Þjóðverjanna eru eftir-
taldir leikmenn:
Klaus Woeller, Rein. Fuechse Berlin,
Andreas Thiel, Vfl. Gummersbach
Dieter Bartke, Fa. Göppingen
Ulrich Gnau, Tv. Grosswallstadt
Bemd Wegener, Tusem Essen
Joerg Loehr, Vfl. Guenzburg
Manfred Freisler, Tv. Grosswallstadt
Karl-Heinz Schulz, Vfl. Guenzburg
Frank Damman Vrl. Gummersbach
Thomas Krokowski, Vfl. Gummersbach
Erhard Wunderlich, Vfl. Gummersbach
Claus Fey, Vfl. Gummersbach
Klaus Voik, Tus. Hofweier
Uwe Schwnker, Thv. Kiel.
Heiner Brand, Vfl. Gummersbach
Markus Huett, Vfl. Gummersbach
Ulrich Roth, Mtsv. Schwabing
Þarna er valinn maður í hverri stöðu
og hafa þeir leikið allt að 119 landsleiki,
en það er Heiner Brand sem er
leikjahæstur leikmanna liðsins. Aðeins
einn nýliði er í hópnum Markus Huett
frá Gummersbach.
SH