Tíminn - 20.11.1982, Side 1

Tíminn - 20.11.1982, Side 1
:-----------— 'J Helgarnámskeið starfsmanna dagvistarstofnana - bls. 10-11 Blað 1 Tvö blöð í dag Helgin 20.-21. nóvember 1982 265. tölublað - 66. árgangur erlent yfirlit: mm Smyglad hefurverid til landsins ÍO þús.ólöglegum myndböndum: RÍKISSJÚÐUR TAPAÐ A Mfí 22 MILUÓNUM KR. — vegna vangoldins innflutningsgjalds, söluskatts og vörugjalds kistan — bls. 5 ■ „Við fullyrðum að a.m.k. eru 10 þúsund myndbönd hér á landi, sem eru hingað komin með ólöglegum hætti, en alls eru myndbönd hér um 20 til 25 þúsund. Sú staðreynd að þessum myndböndum hefur verið smyglað inn í landið, hefur þær afleiðingar í för með sér að ríkisstjóður hefur tapað um 16.8 milljónum króna frá því að byrjað var að smygla þeim inn, og um 5.7 milljónum króna á ári að auki, sem er missirinn á söluskatti,“ sagði Gunnar Guðmundsson hdl., í viðtali við Tím- ann en Gunnar hefur nú verið ráðinn framkvæmdastjórí nýstofnaðra sam- taka, sem nefnast Samtök rétthafa myndbanda á Islandi. Sagði Gunnar að tap ríkissjóðs væri í því fólgið að heildsöluverð á mynd- bandi til dreifingaraðila hér á landi væri nú 2.615 krónur, en innkaupsverð væri 798 krónur, þannig að hlutur ríkisins af hverju innfluttu bandi væri 1681 króna, en sú upphæð skiptist í flutningsgjald, söluskatt, toll og vöru- gjald. Það væri því einfalt reiknings- dæmi að margfalda með 10 þúsund tapið af hverri spólu, til þess að fá út heildartapið, að söluskatti á útleigu undanskildum. „Baráttumál okkar á næstunni verða þau,“ sagði Gunnar, „að koma því í kring að ólögmæt sýning og hotkun myndbanda verði meðhöndluð innan dómskerfisins, sem hvert annað brot á hegningarlögum, og hyggjumst við í því sambandi leggja tillögur okkar fyrir Alþingi, og höfum reyndar nú þegar rætt við alþingismenn, sem hafa tekið vel í málaleitan okkar. Auk þess munum við reyna að fá hið opinbera, til að falla frá hluta af hinum óheyri- legu gjöldum sem lögð eru á myndbönd. Við nefnum í því sam- bandi, sem dæmi söluskattinn — hann leggst fyrst á innkeypta spólu, og síðan aftur á útleiguna. Þá eru innflutnings- gjöldin nánast háð geðþóttaákvörðun tollyfirvalda og því viljum við fá breytt, og að matið verði eðlilegt.“ Gunnar sagði jafnframt að ef sam- tökunum tækist að koma baráttumál- um sínum fram, þá myndi það fljótlega hafa í för með sér verulega lækkun á myndabandaefni til neytenda. —AB ■ Nýtt dvalarheimili aldraöra mun í framtíöinni rísa í Seljahverfinu í Brciðholti. Var þetta samþykkt á fundi Framkvæmdanefndar stofnana í þágu aldraðra í gær, og jafnframt ákveðið að á sama svæði verði byggðar um 50 söluíbúðir fyrir aldraða. - Þetta er mjög stefnumarkandi samþykkt, sagði Gylfi Guðjónsson, arkitekt sem sæti á í Framkvæmda- nefndinni í samtali við Tímann. Sagði Gylfi að á fundinum hefði verið samþykkt samhljóða að ráðast aðeins í byggingu dvalarheimilisins og sölu- íbúðanna til að byrja með, en fyrri tillögur höfðu gert ráð fyrir að byggt yrði mun stærra heimili, sem einnig væri hjúkrunarheimili, sjúkradeild og heilsugæslustöð. - Þessum áformum var frestað með samþykktinni, en hugmyndin er sú að í framtíðinni verði leitað að lóðum undir þessa starfsemi í nágrenni dval- arheimilisins, sagði Gylfi Guðjónsson. Samkvæmt uplýsingum Gylfa Guðj- ónssonar var einnig ákveðið að leita hófanna um lóðir undir söluíbúðir á fleiri stöðum í borginni. Hafa í því ; sambandi einkum Öskjuhlíðin, svæðið vestan Glæsibæjar og Eiðsgrandinn verið nefnd. Varðandi byggingu dval- arheimilisins er það að segja að stefnt verður að því að byggingarfram- kvæmdir hefjist á miðju næsta ári. - ESE Dvalarheimili fyrir aldrada: BYGGTÍ SEUfl- HVERFI — auk 50 sölu- fbúða fyrir aldraða . ,.V..— - „Annar dansinn” — bls. 19 ■ Bjami Guðmundsson hefur hér sloppið í gegnum þýsku vömina í landsleiknum gegn Vestur-Þjóðverjum í gærkvöldi j og skorar. En það dugði skammt, því Vestur-Þjóðverjar sigroðu 17-15 í hörkuleik. Nánar á bls. 11 í Helgarblaði. Tímamynd: Ella. Hagman líkur JR? — bls. 2 Átjánda flokks- þingið — bls. 6-7

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.