Tíminn - 23.11.1982, Side 1

Tíminn - 23.11.1982, Side 1
Umsjón: Sigurdur Helgason Meiri skyn- semi í sóknarleikinn ■ „Þetta eru okkar fvrstu lands- leikir á keppnistimabilinu og það er ýmislegt sem þarf aö lagfæra, ef við eigum að eiga einhverja möguleika í B-keppninni í vetur,,, sagði Hilmar Bjömsson er hann var spurður hvaða ályktanir hann dragi af leikjunum gegn Vestur-Þjóðverjum. „Ef við tökum sóknarleikinn fyrst, þá vatnar að spilað sé af meiri skynsemi og auk þess þarf að bæta útfærsluna á hraðaupphlaupunum. Vamarleikurinn var góður í fyrri leiknum, en gloppóttari í þeim síðari. Um markverðina má segja, að þeir náðu sér ekki á strik í leikjunum. Vömin lék mjög framarlega og þess vegna fengu þeir á sig mikið af skotum í opnum færam, sem erfitt er að verja. Það liggur í augum uppi, að það tekur ákveðinn tima að venjast því að spila gegn jafnsterkum vömum og þetta góðum markvörðum eins og Þjóðverjamir tefla fram. Hér í deiidinni eru varnirnar ekki eins sterkar og þvi þarf nokkra leiki til að leika vel. Eg get ekki séð að það sé neitt svartnætti ríkjandi þótt við höfum tapað þessum leikjum og ég er bjartsýnn á að þetta komi hjá okkur.,, Punktamót í borðtennis ■ Tveir leikir fóru fram í liðakeppni Islandsmótsins í borðtennis um helg- ina. í meistaraflokki karla léku KR B og Víkingur og sigraðu Víkingarnir 6-4. Orninn A lék gegn VGdngi A og sigruðu Ernirnir 6-4. Þá var háður einn leikur í mcistara- flokki kvenna, en þar sigraði KR Öminn B 3-0. Fyrsta punktamót vetrarins var háldið á Húsavík um helgina. Keppt var saman í meistara- og 1. flokki karla og sigraði Tómas Sölvason KR Friðrik Berndsen Víkingi í úrslitum 21-15, 21-14 og 21-14. I þríðja sæti varð Kristján V. Haraldsson HSÞ. í 2. flokki karla sigraði Bjarni Bjarnason Víkingi Kjartan Briem KR í úrslitum. Lauk leikjunum 21-15,13-21 og 21-19. Kjartan sigraði í einni lotunni. Í 3. sæti í 2. flokki varð Sigurbjörn Bragason KR. Frá Magnúsi Ólafssyni fréttarítara Tímas í Bonn. ■ Það er aðalfréttin í öllum þýskum blöðum þessa dagana, að Bernd Schuster sé á leiðinni frá Barcelona. Honum hefur sinnast við forystu- menn félagsins og talið er líklegt að hann hverfi þaðan innan skamms. Hefur hann mestan áhuga á að snúa aftur heim til Þýskalands. Hann var tekinn út úr liði Barcelona á laugar- dag og hann hefur átt í útistöðum við Udo Lattek þjálfara liðsins. Schuster er ekki eini leikmaðurinn hjá Barcelona sem á erfitt uppdrátt- ar, því sama sagan er með Diego Maradt na, argentíska knattspyrnu- snillinginn, en hann er ekki jafn mikill snillingur í mannlegum sam- skiptum. Landsliðið í Hummel ■ Handknattleikssamband Islands og Hummel umboðið á íslandi hafa gert með sér samning, um að landslið Islands leiki öll í Hummel íþrótta- fatnaði í landsleikjum. Á það við um öll landslið íslands í handknattleik, en samningur þess cfnis var undir- ritaður í síðustu viku. Þess má geta að landslið Dana, Norðmanna og Svía í handknattleik leika öll í Humnu l-íþróttafatnaði. Vörar þær sem HSÍ fær á ári hverju em að verðmæti kr. 140.000 miðað við verðlag um þessar mundir. Af þvi sést hversu mikils virði það er fyrir handknattleikinn í landinu að ná slíkum samningum. Umboðsaðili Hummel á íslandi er Ólafur H. Jónsson h/f, en það fyrirtæki rekur fyrrverandi fyrirUði landsUðsins Ólafur H. Jónsson. ■ Þorbergur Aðalsteinsson skýtur hér að marki Vestur-Þjóðverja í síðari leik Islendinga og Vestur-Þjóðverja í handknattleik, sem háður var í LaugardalshöU á sunnudagskvöld. Þetta var annar leikurinn af fjóram, sem íslenska landsUðið leikur á einni viku. Á miðvikudag og fimmtudag mæta þeir Frökkum í Laugardalshöll, en allir þessir leikir eru liður í undirbúningi fyrir B-heimsmeistarakeppnina í handknattleik sem háð verður í febrúar og mars í HoUandi. Tímamynd EUa. Broddi fór í aðra umferð NorðanEiðin komu á óvart ■ Norðurlandalif'm KA og Þór komu verulega á óvart um helgina er fram fór á Akureyrí ein umferð í riðlakeppni íslandsmótsins í 2. aldursflokki. Fyrírfram voru lið Stjörnunnar og Fylkis talin mjög sigurstrangleg, en þegar til kom var það lið KA sem hlaut flest stig. KA vann fimm leiki og tapaði aðeins einum og hlaut 10 stig í keppninni. Stjaraan hlaut 9 stig, Þór 8, Fylkir 7, Víkingur fékk 6 stig, Haukar 2 stig og Afturelding fékk ekkert stig. Islensku keppendurnir á Norðurlandamótinu í badminton áttu litla möguleika ■ Broddi Krídstjánsson var eini íslend- ingurínn sem komst i 2.umferð á Norðurlandamótinu í badminton. Hann lék gegn Finna, Thomas Westerholm að nafni og sigraði. í annart umferð lenti hann svo á móti dönskum kappa Jens Peter Nierhoff og tapaði 15-10 og 15-6. Nierhoff tapaði svo urslitaleik gegn Morten Frost. í tvenndarkeppni töpuðu Broddi og Kristín Magnúsdóttir naumlega fyrir dönsku pari, Jesper Knudsen og Dorote Kjær. Var það snörp viðureign, en Danirnir höfðu betur 15-9 og 18-13. Víðir og Kristín Berglind sátu hjá i fyrstu umferð, en voru slegin út af dönsku pari í 2. umferð. Morten Frost varð Norðurlandameist- ari í karlaflokki, Nettie Nielsen í kvennaflokki í einliðaleik. í tvíliðaleik karla sigruðu Morten Frost og Steen Fladberg og í tvíliðaleik karla sigruðu Dorote Kjær og Nettie Nielsen. Lene Köppen tók ekki þátt í mótinu að þessu sinni, en hún hetur verið Norðurlandameistari mörg undanfarin Úrslit í leikjum KA urðu sem hér Uif Johansen sigraði Víði Bragason í fyrstu umferð og var hann þar með úr keppninni í einliðaleik. Kristín Berglind Kristjánsdóttir fór á síðustu stundu á mótið í stað Þórdísar Eðvald og lék hún gegn Annette Börjeson og tapaði, en Kristín Magnús- dóttir tapaði fyrir Lenu Straxler frá Svíþjóð. 16-10 19-10 14- 10 15- 19 15-10 18-16 GH/Akureyrí KA-Þór KA-UMFA KA-Haukar KA-Víkingur KA-Stjarnan KA-Fylkir SH BBroddi Kristjánsson komst í 2. umferð á NM i badminton.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.