Tíminn - 30.11.1982, Side 1
Allt um íþróttir helgarinnar á bls. 11, 12, 13 og 14
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Þriðjudagur 30. nóvember 1982
273. tölublað - 66. árgangur
Dropar:
Orlátir
Eyjamenn!
- bls. 24
Pétur
mikli
— bls. 23
Opna vard óvænt bædi sláturhusin á Saudárkróki í einn dag:
UM 400 ÁM VAR SUHUD
VEGNA RdOREmtUNAR
— Sýkingin afleiðing flúormengadrar gjósku úr Heklugosinu 1980
■ Vegna flúoreitrunar varð að slátra
á flmmta hundrað ám úr Skagafirði í
síðustu viku, sem ella var álitið að
hefðu dregist upp og drepist. Voru
bseði sláturhúsin á Suðárkróki opnuð
í einn dag vegna þessa, s.l. miðviku-
dag. Allmargt fé hafði drepist áður
Sýking þessi kemur fram í svokölluð-
um gaddi, er myndast á tönnum og
tanngarði fjárins og veldur eymslum
og sárindum sem ágerast smám saman
svo að skepnan missir lyst og getur í
rauninni hvorki bitið eða étið hey né
annað fóður og ekki jórtrað.
Sýkingin er afleiðing flúormeng-
aðrar gjósku er féll víða á Norðurlandi
í Heklugosinu í ágúst 1980, en hvað
mest á Hofsafrétti, þ.e. hálendinu inn
af Skagafjarðardölum, og langt niður
í byggð. Þrátt fyrir það að þá hafi verið
gripið til þess ráðs að flytja féð í haga
utar í héraðinu sem að mestu leyti
sluppu við öskufall, svo og að hagnýtt
hafði verið ýmisskonar ráðgjöf og
leiðbeiningar, eru afleiðingar .hinnar
eitruðu ösku enn að koma í ljós. Hefur
allmargt fé af þeim sökum dregist upp
og drepist.
Við athugun á fé á öllum bæjum í
Austurdal, Vesturdal og einum bæ í
Svartárdal f Lýtingsstaðahreppi fannst
síðan hvarvetna sýkt fé, mest um 90
kindur á einum bæ. Var þá ákveðið að
farga hinu sýkta fé þar eð sýnt þótti
að ella myndi það veslast upp og
drepast á næstu vikum og mánuðum.
Svo löngu eftir sláturtíð er að
sjálfsögðu hvergi líflömb að fá þannig
að stórt skarð er vfða höggvið í
fjárstofn bænda á þessum slóðum.
Einar Gíslason, ráðunautur kannar
nú möguleika á bótagreiðslum vegna
þessa tjóns bænda.
Á.S. Mælifelli/HEI
■ Mikið óveður gerði á Suður- og Vesturlandi á sunnudagskveldið. Meira og minna varð ófært á þessum landsvæðum meðan það gekk yfir, rafmagn datt út o.fl.
Þessi mynd var tekin upp í Breiðholti þegar unnið var við að losa bifreiðar úr snjónum eftir að veðrinu slotaði. Sjá nánari fréttir bls. 3 Tímamynd: Róbert
Eld-
flaugar
— bls. 7
Aðventu-
kransar
— bls. 10
Talning gekk mjög seint f prófkjöri sjálfstædismanna f Reykjavlk:
GEIR FÆR SLÆMA ÚTREIÐ!
— var f7. sæti þegar hélmingur atkvæða hafði verið talinn
■ Albert Guðmundsson, alþingis-
maður og forseti borgarstjómar var í
fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavik, í nótt kl. 02,
þegar 4000 atkvæði höfðu verið talin
af liðlega átta þúsund atkvæðum, og
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, var í sjöunda sæti.
Fyrir ofan flokksformanninn, vora
auk Alberts, þau Birgir ísleifur Gunn-
arsson, Friðrik Sóphusson, Ellert B.
Schram, Ragnhildur Helgadóttir og
Pétur Sigurðsson.
Klukkan tvö í nótt haföi Albert
Guðmundsson hlotið 2870 atkvæði,
Birgir ísleifur Gunnarsson, var í öðru
sæti með 2854 atkvæði, Friðrik
Sóphusson, varaformaður flokksins
var í 3. sæti með 2848 atkvæði, Ellert
B. Schram, var í 4. sæti með 2643
atkvæði, Ragnhildur Helgadóttir í 5.
sæti með 2623 atkvæði, Pétur Sigurðs-
son, í 6. sæti með 2409 atkvæði, Geir
Hallgrímsson, í 7. sæti með 2303
atkvæði, Geir H. Haarde í 8. sæti með
2097 atkvæði, Jón H. Magnússon í 9.
sæti með 2031 atkvæði, Guðmundur
H. Garðarsson í 10. sæti með 2023
atkvæði, Bessí Jóhannsdóttir í 11. sæti
með 1465 atkvæði og Jónas Elíasson,
í 12,sæti með 1439 atkvæði.
Talning atkvæða dróst mjög á
langinn í gærkvöldi og nótt, og hafa
menn látið í veðri vaka að hin óvænta
útreið formannsins, Geirs Hallgríms-
sonar hafi átt sinn þátt í því.
Hafði verið upplýst í Valhöll síðdeg-
is í gær, að reikna mætti með því
fyrstu tölulegu upplýsingarnar um i
prófkjörsþátttakenda yrðu gerðar <
inberar um kl. 22 í gærkveldi, en fyr
upplýsingar, um röðina voru el
gefnar fyrr en laust fyrir kl. 01 í nc
og þá höfðu verið talin 2500 atkvæ
Framkvæmdastjóri flokksins, Kjarl
Gunnarsson skýrði dráttinn á þa
hátt að talning hefði ekki getað hal
fýrr en kl. 22.