Tíminn - 30.11.1982, Page 1

Tíminn - 30.11.1982, Page 1
t’y. r Umsjón: Sigurður Helgason Haukar með fullt hús í 1. deild Borgarfjard- ardömurnar sigruðu ■ Þrír leikir voru háðir á íslands- móti félagsliða í borðtennis í síðustu viku. UMSB A sigraði A lið Arnarins með þremur gegn tveimur. Borgarfjarðardömurnar léku einn- ig gegn B-liði Arnarins og sigruðu þær nokkuð örugglega 3-1. Loks léku KR og Vflcingur og sigraði KR 3-1. Þessir leikir voru allir í kvenna- flokki. Góður sigur CS Brugge á Anderlecht ■ Fyrirfram bjuggust flestir við að CS Brugge, lið þeirra Sævars Jóns- sonar og Ragnars Margeirssonar í Belgíu yrði auðveld bráð stórliði Standard Liege er iiðin mættust í Brugge á sunnudaginn. Sú varð ekki raunin, því Brugge sigraði með þremur mörkum gegn einu. Sævar lék allan leikinn og glímdi við hina snjöllu framherja Standard, en Ragnar var varamaður og fékk ekki að fara inná. Lokeren vann einnig sigur á liði frá Liege er liðið fór til Liege og lék gegn FC Liege. Alls skoraði Lokeren þrjú mörk í leiknum og eru á fuliri ferð í baráttunni á toppnum í 1. deildinni. Antvverpen sigraði Beerschot með tveimur mörkum gegn einu í Ant- werpen. Þar var mikil harka og læti og fengu sjö leikmenn að sjá gula spjaldið hjá dómara leiksins og einum var vísað af leikvelli. Tongeren og Beveren skildu jöfn, bæði liðin skoruðu eitt mark. Þar með töpuðu liðin sem Islendingar leika með í Belgíu ekki leik og raunar má bæta því við, að enda þótt Lárus Guðmundsson leiki ekki með Wat- erschei um þessar mundir, þá telst lið hans lslendingslið og þeir gerðu það gott er þeir náðu jafntefli gegn Anderlecht. Fjögur lið eru efst og jöfn með 20 stig í Belgíu, en það eru Standard, Anderlech, Waterschei og Lokeren. ■ Það eru engin vettlingatök sem Hans Guðmundsson beitir þegar hann reynir að koma í veg fyrir að félagi hans í landsliðinu Jóhannes Stefánsson skori. Allt um handboltann á bls. 12. Tímamynd: Róbert A1U ER Nll MEBAL MARKAHÆSI1I MAMNA Skoraði tvö mörk í jafnteflisleik í Leverkeusen ■ Atli Eðvaldsson sýndi aftur mjög góðan leik með liði sínu Fortuna Dússeldorf á laugardaginn er þeir mættu Bayern Leverkeusen og gerðu jafntefli 3-3. Atli sá um að skora tvö markanna, og þar með batnar staða Dússeldorfliðs- ins sífellt. Með þessuim tveimur mörkum hefur Atli skoraði átta mörk í Bundesligunni og hafa þeir Rummenigge og Burgsmúll- er skorað 10 mörk hvor og Höness og Littbarski eru með 9 hvor. Það má því segja að Atli sé ekki í neinum slorfélags- skap þarna. Aðrar fréttir úr þýsku knattspyrnunni eru þær helstar, að Bayern Múnchen tókst að stöðva sigurgöngu Dortmund- liðsins átti Karl Heinz Rummenigge drjúgan þátt í þeim sigri. Hann skoraði tvö mörk í 3-0 sigri liðsins, en Dieter Höness skoraði hið þriðja. Hamborg sigraði Kaiserslautern 1-0 og Köln sigraði Borussina Mönchengladbach 4-1. Pétur sá um KR- inga ■ Þegar KR-ingar misstu Stewart Johnson útaf í leiknum gegn IR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á laugar- daginn má segja að möguleikar þeirra á sigri hafl verið úr sögunni. Jón Sigurðs- son lék auk þess mjög lítið með vegna meiðsla í baki og þar á ofan bættist, að Pétur Guðmundsson var í miklum ham og réðu KR-ingar illa við hann. Pétur skoraði samtals 40 stig gegn KR og var algjör yfirburðarmaður í liði ÍR. Næstur honum í stigaskori kom Hreinn Þorkelsson með 22 stig, en aðrir skoruðu minna. Leiknum lauk með tveggja stiga sigri ÍR, sem hefði án efa getað farið á hinn veginn hefði Stewart Johnson getað leikið lengur með. En sú varð ekki ■ Pétur Guðmundsson er hér í harðri baráttu undir körfunni. Tímamynd: Róbert raunin og urðu lokatölur því 82-80 ÍR í hag og í hálfleik var staðan 46-44 fyrir KR. Johnson skoraði 36 stig í leiknum og næstur honum hvað skor varðar var Þorsteinn Gunnarsson með 12 stig. sh Ótrúlega öruggt hjá Valsmönnum Sigrudu ÍBK 100:61 f úrvalsdeildinni ■ Valsmenn unnu mjög öruggan sigur á Keflvikingum í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik í gærkvöldi í Hagaskóla. Lokatölur leiksins urðu 100 stig gegn 61 stigi Keflvíkinga . Yflrburðir Valsmanna voru mjög miklir allan tímann og segja má að Keflvflúngar hafi aldrei átt minnstu möguleika. Stigahæstur Valsmanna var Rík- harður Hrafnkelsson með 32 stig, Tim Dwyer skoraði 23 og Kristján Agústsson 16 stig. Hjá Keflavík var Þorstcinn Bjarnason stigahæstur með 17 stig, Axel var með 15 og Brad Miley skoraði 11 stig. BH/sh ■ Haukar og ÍS mættust í 1. deildinni í körfuknattleik á sunnu- dagskvöldið. Leikið var í Hafnarfirði og sigruðu Haukar með 77 stigum gegn 73. Haukamir hafa leikið 8 leiki i 1. deildinni og unnið þá alla og næstir á eftir þeim koma Þórsarar með 10 stig. Þá léku Grindavík og Skallagrímur og sigruðu Grindvíkingar með 118 stigum gegn 92. í þeim leik skoraði nýi Kaninn hjá Grindavík 58 stig, en það er Douglas Kintzinger sem rekinn var frá Fram og var síðan liðsstjóri hjá Val. Grindvíkingar hafa hlotið 4 stig í 1. deild, en Skallagrímur er enn án stiga. Helgi Ragnarsson með Vfkingi Ólafsvfk Ml Helgi Ragnarsson fyrrverandi leikmaður með FH-ingum hefur verið ráðinn þjálfari hjá 3. deildarliði Víkings í Olafsvík. Víkingum hefur ekki vegnað alltof vel á undanförnum árum, en líklegt er að einhverjir ieikmenn fari með Helga vestur, en FH hefur verið eins konar Ólsaraný- lenda á undanförnum árum. Keflvíkingar höfóu betur ■ Keilvíkingar höfðu betur í „Suðumesjaslagnum“ í körfuboltan- um á föstudagskvöld, en þá léku UMFN og ÍBK í íþróttahúsinu í Njarðvík. Leiknum lauk með sigri þeirra 69 stig gegn 67 og skoraði Axel Nikulásson flest stig þeirra Keflvík- inga eða 27. Þar af skoraði hann átta stig í röð á kafla í fyrri hálfleik og eins skoruðu Njarðvíkingar 19 stig í röð, en þrátt fyrir það tókst ÍBK að knýja fram sigur. Var það fyrst og fremst Axel sem gerði út um leikinn. Staðan í leikhléi var 36 stig gegn 28 Njarðvik í hag, en á lyrri helmingi síðari hálfleiks tóku Keflvíkingar sig til og jöfnuðu og komust yfir. Njarðvíkingar tóku þá aftur forystu, en á lokasprettinum tókst ÍBK að ná sigri. Eins og fyrr segir skoraði Axel 27 stig, Þorsteinn Bjarnason skoraði 14 og Jón Kr. Gíslason var með 10 stig og Brad Miley einnig með 10. Hjá Njarðvík skoraði Kottermann 19 stig, Valur 16, Arni Lárusson 11 stig og Gunnar Þorvarðarsson 10. sh 9 Islandsmet sett í bikarkeppninni ÍA varó bikarmeistari í sundi f 1. deild ■ Mjög góður árangur náðist í bikarkeppni SSÍ 1. deild, sem fram fór i Sundhöllinni í Reykjavík um helgina. Níu ný íslandsmet sáu dagsins Ijós og að auki voru sett 3 stúlknamet auk eins piltamets. Mjög hörð keppni var um titilinn bikarmeistari SSI 1982 og voru það lið Ægis, HSK og IA sem harðast börðust. Lið IA sigraði að þessu sinni, en í fyrra voru það HSK-menn sem fögnuðu sigri að aflokinni ellefu ára sigurgöngu Ægis í bikarkeppn- inni. Okkar besta sundfólk var mjög áberandi á bikarkeppninni og til dæmis sigraði Tryggvi Helgason HSK, Guðrún Fema Ágústsdóttir, Ingi Þór Jónsson ÍA öll í fjórum greinum og Ragnheiður Runólfsdóttir Akranesi sigraði í þremur greinum. Þar að auki tók allt þetta fólk þátt í boðsundum fyrir sitt félag. Eins og fyrr segir var stigakeppnin allan tímann mjög spcnnandi, en þegar upp var staðið hafði sveit IA 203 stig, Ægir 178, HSK 175 og Njarðvík. 59. Lestina rak svo ÍBV sem hlaut 32 stig og fellur þar með í 2. deild í stað Sundfélags Hafnar- fjarðar sem sigraði í 2. deild á dögunum. sh

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.