Tíminn - 02.12.1982, Síða 2

Tíminn - 02.12.1982, Síða 2
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982. ■ Telly Savalas þarf ekki að hafa áhyggjur af auraleysi í ellinni Telly sestur í helgan stein ■ Sú var tíðin, að Telly Sava- las lét sér ekki nægja minni laun en u.þ.b. 650.000 ísl. kr. fyrir hverja þá kvikmynd, sem hann kom fram í. Nú eru þeir tímar liðnir. Telly Savalas naut mikilla vinsælda í hiutverki sínu sem leynUögreglumaðurinn Kojak, sem er íslenskum sjónvarps- áhorfendum að góðu kunnur. Arum saman var hann einn af hæst launuðu bandarískum leikurum og hann fór vel með fé sitt. Hann sér því ekki ástæðu til að hafa áhyggjur, þó að það gerist nú æ sjaldnar að honum bjóðist hlutverk. - Ég er orðinn 58 ára og afi. Ég er búinn að fá það besta út úr Ufinu, segir hann og er hinn ánægðasti. á ný — en hyggur ekki á hjónaband ■ Kunnugir segja, að það leyni sér ekki, að enn einu sinni sé Jacqueline Onassis orðin ástfangin. Að þessu sinni er það fjár- málaráðgjafi hennar, Maurice Tempelsman, sem hefur orðið fyrir valinu. Þegar Jackie fylgdi honum á fiugvöllinn fyrir skömmu, eftir að hann hafði eytt með henni helgi í sumarhúsi hennar, voru þau ekkert að fara í felur með hvern hug þau bera hvort til annars. Spurningunni um það, hvort hjónaband sé í vændum, svara vinir Jackie því til, að hún hafi sagt: - Ég hef borið nafnið Kennedy og Onassis. Ég hcf ekki hugsað mér að enda ævina sem einhver frú Tempelsman, sem enginn kannast við! ■ Kunnugir segja það sjást langa vegu á Jackie Onassis, að hún sé ástfangin. Hún hreint og beint geisli af ham- ingju. hér er hún í fylgd með Maurice Tempelsman, sem veitir Jackie alla þessa ham- ingju. CARLO PONTI ER ÓFOR- Astarhreiðrin hans Cardins ■ Franski tískukóngurinn Pierre Cardin er ekki við eina fjölina felldur í viðskiptamál- um. Ekki alls fyrir löngu festi hann kaup á hinum heimsfræga veitingastað Maxim's í París og rekur hann nú af miklum dugnaði. Og enn hyggst hann færa út kvíamar. Pierre hefur komist að þeirrí niðurstöðu, að í París sé stórkostlegur skortur á viðeig- andi húsnæði, þar sem nýgift auðugt fólk geti notið hveitibrauðsdaganna á þann hátt, sem því hæfi. Hann hefur því látið innrétta íbúðir, sem hann sjálfur á vítt og breitt um París, í því skyni að veita nýgiftum sem mestan unað í heimsborginni. Þar er á boð- stólum kampavín og ýmiss konar kræsingar. Næturgreið- inn er verðlagður á um 25.000 ísl. krónur! Pantanirnar eru þegarfarnar að streyma að og er þar ekki einungis um nýgifta að ræða. Að sögn Cardins er mikið um það, að karlar vilji hressa upp á lúin hjónabönd sín með nýjum hveitibrauðsdögum. Sjálfur er Pierre Cardin, sem orðinn er sextugur, pipar- sveinn og hyggur ekki á neinar breytingar í þeim efnum. ■ Carlo Ponti varekkifyrrstig- inn upp úr rúm- inu eftir erfið veikindi en fór að sjást til hans hingað og þang- að í fylgd fagurra ungra kvenna. ■ - Maðurinn minn mat þig mest allra stjórnmálamanna, sagði Jehan Sadat við Helmut Schmidt Góðir gestir leystir út með skemmtilegri gjöf ■ Helmut Schmidt, fyrrver- andi kanslari Vestur-Þýska- lands, og kona hans Loki fengu fyrir skömmu góða heimsókn. Þar voru komnar Jehan, fyrrum eiginkona An- wars Sadat Egyptalandsfor- seta, og dóttir þeirra Nana, sem orðin er 21 árs. Erindi þeirra mæðgna var að votta Helmut þakklæti sitt, en Jehan sagði mann sinn hafa metið hann mest allra stjórn- málamanna heims. Að vonum var vel tekið á móti þeim Jehan og Nana. Loki hafði bakað kökur í tilefni af heim- sókninni og Helmut leysti þær út með óvenjulegri gjöf. Hún var hljómplata með verkum Mozarts, en flytjandinn var enginn annar en Helmut sjálfur! BETRANLEGUR KVENNABÓSI ■ Nú virðist virkilega hrikta í hjónabandi Sophiu Loren og Carlos Ponti. Sophia, scm orðin er 48 ára, cn ber aldurinn með fádæmum vel, notaði afmælisdaginn sinn síðasta tU að leggja niður fyrir sér framtíðina. Hún trúði vinkonu sinni fyrir því, að þegar annar aðilinn í hjónabandi verði ótrúr, sé úti um ástina. Þá sé raunar ekkert eftir af hjónabandinu, nema bókstafurinn cinn. Mun hún hafa komist að þessari niðurstöðu. þegar hún dvaldist mánuðum saman í Bandaríkj- unum fyrr á þessu ári. Sophiu er nefnilega Ijóst, að því fór fjarri, að maður hennar léti sér leiðast í fjarveru hennar. Hvað eftir annað sást til hans á almannafæri í félagsskap ungra, fagurra kvenna. Þetta er svo sem ekki nýtt háttalag hjá honum en áður fyrr tók Sophia fast í taumana. Nú orðið er henni sama hvað Carlo tekur sér fyrir hendur. Carlo Ponti er nú sagður fluttur að heiman. En Sophia er ekki einmana. Að vísu harðneitar hún, að nokkur annar karlmaður sé ■ spilinu, nema því aðeins að synir hennar teljist til þess flokks. Hún segist nefnilega verja öllum sínum frístundum í félagsskap sonanna, Cipi, sem er 12 ára, og Eduardo, sem er 9 ára. - Ég er hreykin af sonum mínum, segir hún. - Og þeir eru nú orðnir svo stórir, að þeir þarfnast ekki föður síns lengur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.