Tíminn - 02.12.1982, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982.
■ Telly Savalas þarf ekki að
hafa áhyggjur af auraleysi í
ellinni
Telly
sestur
í
helgan
stein
■ Sú var tíðin, að Telly Sava-
las lét sér ekki nægja minni
laun en u.þ.b. 650.000 ísl. kr.
fyrir hverja þá kvikmynd, sem
hann kom fram í. Nú eru þeir
tímar liðnir.
Telly Savalas naut mikilla
vinsælda í hiutverki sínu sem
leynUögreglumaðurinn Kojak,
sem er íslenskum sjónvarps-
áhorfendum að góðu kunnur.
Arum saman var hann einn af
hæst launuðu bandarískum
leikurum og hann fór vel með
fé sitt. Hann sér því ekki
ástæðu til að hafa áhyggjur, þó
að það gerist nú æ sjaldnar að
honum bjóðist hlutverk. - Ég
er orðinn 58 ára og afi. Ég er
búinn að fá það besta út úr
Ufinu, segir hann og er hinn
ánægðasti.
á ný
— en hyggur ekki á
hjónaband
■ Kunnugir segja, að það
leyni sér ekki, að enn einu
sinni sé Jacqueline Onassis
orðin ástfangin.
Að þessu sinni er það fjár-
málaráðgjafi hennar, Maurice
Tempelsman, sem hefur orðið
fyrir valinu. Þegar Jackie
fylgdi honum á fiugvöllinn
fyrir skömmu, eftir að hann
hafði eytt með henni helgi í
sumarhúsi hennar, voru þau
ekkert að fara í felur með
hvern hug þau bera hvort til
annars.
Spurningunni um það, hvort
hjónaband sé í vændum, svara
vinir Jackie því til, að hún hafi
sagt: - Ég hef borið nafnið
Kennedy og Onassis. Ég hcf
ekki hugsað mér að enda
ævina sem einhver frú
Tempelsman, sem enginn
kannast við!
■ Kunnugir segja það sjást
langa vegu á Jackie Onassis,
að hún sé ástfangin. Hún
hreint og beint geisli af ham-
ingju. hér er hún í fylgd með
Maurice Tempelsman, sem
veitir Jackie alla þessa ham-
ingju.
CARLO PONTI
ER ÓFOR-
Astarhreiðrin
hans Cardins
■ Franski tískukóngurinn
Pierre Cardin er ekki við eina
fjölina felldur í viðskiptamál-
um. Ekki alls fyrir löngu festi
hann kaup á hinum heimsfræga
veitingastað Maxim's í París
og rekur hann nú af miklum
dugnaði. Og enn hyggst hann
færa út kvíamar.
Pierre hefur komist að þeirrí
niðurstöðu, að í París sé
stórkostlegur skortur á viðeig-
andi húsnæði, þar sem nýgift
auðugt fólk geti notið
hveitibrauðsdaganna á þann
hátt, sem því hæfi. Hann hefur
því látið innrétta íbúðir, sem
hann sjálfur á vítt og breitt um
París, í því skyni að veita
nýgiftum sem mestan unað í
heimsborginni. Þar er á boð-
stólum kampavín og ýmiss
konar kræsingar. Næturgreið-
inn er verðlagður á um 25.000
ísl. krónur!
Pantanirnar eru þegarfarnar
að streyma að og er þar ekki
einungis um nýgifta að ræða.
Að sögn Cardins er mikið um
það, að karlar vilji hressa upp
á lúin hjónabönd sín með
nýjum hveitibrauðsdögum.
Sjálfur er Pierre Cardin,
sem orðinn er sextugur, pipar-
sveinn og hyggur ekki á neinar
breytingar í þeim efnum.
■ Carlo Ponti
varekkifyrrstig-
inn upp úr rúm-
inu eftir erfið
veikindi en fór
að sjást til hans
hingað og þang-
að í fylgd fagurra
ungra kvenna.
■ - Maðurinn minn mat þig mest allra stjórnmálamanna, sagði Jehan Sadat við Helmut Schmidt
Góðir gestir leystir út
með skemmtilegri gjöf
■ Helmut Schmidt, fyrrver-
andi kanslari Vestur-Þýska-
lands, og kona hans Loki
fengu fyrir skömmu góða
heimsókn. Þar voru komnar
Jehan, fyrrum eiginkona An-
wars Sadat Egyptalandsfor-
seta, og dóttir þeirra Nana,
sem orðin er 21 árs.
Erindi þeirra mæðgna var
að votta Helmut þakklæti sitt,
en Jehan sagði mann sinn hafa
metið hann mest allra stjórn-
málamanna heims. Að vonum
var vel tekið á móti þeim
Jehan og Nana. Loki hafði
bakað kökur í tilefni af heim-
sókninni og Helmut leysti þær
út með óvenjulegri gjöf. Hún
var hljómplata með verkum
Mozarts, en flytjandinn var
enginn annar en Helmut
sjálfur!
BETRANLEGUR
KVENNABÓSI
■ Nú virðist virkilega hrikta í hjónabandi Sophiu Loren
og Carlos Ponti.
Sophia, scm orðin er 48 ára, cn ber aldurinn með
fádæmum vel, notaði afmælisdaginn sinn síðasta tU að leggja
niður fyrir sér framtíðina. Hún trúði vinkonu sinni fyrir því,
að þegar annar aðilinn í hjónabandi verði ótrúr, sé úti um
ástina. Þá sé raunar ekkert eftir af hjónabandinu, nema
bókstafurinn cinn. Mun hún hafa komist að þessari
niðurstöðu. þegar hún dvaldist mánuðum saman í Bandaríkj-
unum fyrr á þessu ári.
Sophiu er nefnilega Ijóst, að því fór fjarri, að maður
hennar léti sér leiðast í fjarveru hennar. Hvað eftir annað
sást til hans á almannafæri í félagsskap ungra, fagurra
kvenna. Þetta er svo sem ekki nýtt háttalag hjá honum en
áður fyrr tók Sophia fast í taumana. Nú orðið er henni sama
hvað Carlo tekur sér fyrir hendur. Carlo Ponti er nú sagður
fluttur að heiman.
En Sophia er ekki einmana. Að vísu harðneitar hún, að
nokkur annar karlmaður sé ■ spilinu, nema því aðeins að
synir hennar teljist til þess flokks. Hún segist nefnilega verja
öllum sínum frístundum í félagsskap sonanna, Cipi, sem er
12 ára, og Eduardo, sem er 9 ára. - Ég er hreykin af sonum
mínum, segir hún. - Og þeir eru nú orðnir svo stórir, að
þeir þarfnast ekki föður síns lengur.