Tíminn - 02.12.1982, Page 3
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982.
3
fréttir
FRAMKVÆMDUM VID HRAUN-
EYJAFOSSVIRKJUN LOKH)
Þriðja vélasamstæðan tekin f notkun
■ Þriðja véla-samstæða Hauneyjafoss-
virkjunar hefur verið tekin í notkun. Er
þar með framkvæmdum við Hrauneyja-
fossvirkjun að mestu lokið, tveim mán-
uðum á undan áætlun, en framkvæmdir
við virkjunina hófust vorið 1978.
Liður í Hrauneyjafossframkvæmdun-
um var bygging háspennulína frá Hraun-
Dómur f
Hæstarétti:
Vilmundur
sýkn í meið-
yrðamáli
■ Hæstiréttur hefur í meginatriðum
staðfest dóm undirréttar, sem sýknaði
Vilmund Gylfason, núverandi alþing-
ismann, af meiðyrðaákærum Jósafats
Arngrímssonar, kaupmanns í Keflavík.
Hæstaréttardómurinn gekk á mánudag-
inn.
Jósafat kærði Vilmund fyrir ummæli
sem síðarnefndi viðhafði í ríkisfjölmiðl-
um, en þar fjallaði Vilmundur um meint
fjármálamisferli Jósafats. „Maðurinn
(þ.e. Jósafat) er sem sagt kærður fyrir
tékkamisferliuppá rúmar tuttugu mill-
jónir króna en reynist fljótlega borgun-
armaður fyrir helmingi upphæðarinnar,“
sagði Vilmundur m.a. í Kastljósþætti í
sjónvarpinu árið 1974. „Og maðurinn
segir við vini sína: Hafið engar áhyggjur,
ég er dæmdur, ég er dæmdur trekk í
trekk, ég fer aldrei í tugthús," sagði
Vilmundur í sama þætti og átti við
Jósafat.
f dómi Hæstaréttar segir: „Ummæli
þau, sem st'efnt er út af, verða hvorki
talin refsiverðar aðdróttanir né móðgan-
ir. Ekki verða þau heldur talin brjóta í
bága við friðhelgi einkalífsins í skilningi
almennra hegningarlaga eða óskráðar
grundvallarreglur um persónuvernd.
Áfrýjandi, Jósafat Amgrímsson, var
dæmdur til greiðslu á 5000 króna
málskostnaði. Málskostnaður milli á-
frýjanda og stefnda, Vilmundar Gylfa-
sonar, var hins vegar látinn niður falla.
Málið dæmdu Hæstaréttardómaramir
Logi Einarsson, Björn Sveinbjörnsson,
Magnús Thoroddsen, Magnús Þ. Torfa-
son og Guðmundur Jónsson, settur
Hæstaréttardómari.
-Sjó.
eyjafossvirkjun að spennistöðinni á
Brennimel í Hvalfirði, vegna Málm-
blendiverksmiðjunnar á Grundartanga.
Framkvæmdir við línuna hófust 1980 og
lauk þeim samkvæmt áætlun hinn 1.
október sl. og hefur línan verið í rekstri
síðan. Hún er 150 kílómetra löng og
getur flutt um 400 megavött. Samanlagt
■ Skipasmíðastöð M. Bernharössonar
sem starfarð hefur á ísafirði frá 1939
hefur nú verið auglýst til sölu.
„Það eru engin verkefni. Ríkisstjórnin
og Steingrímur em búin að loka fyrir
allar nýsmíðar, sem verið hafa 80-90%
af verkefnunum hjá okkur. Það er því
vonlítið fyrir okkur að fara í samkeppni
á viðgerðamarkaðinum þar sem þau
fyrirtæki sem verið hafa í viðgerðum
hafa ekki einu sinni nóg að gera. Það er
því ekki glæsilegt fyrir fólk að standa í
þessu“, sagði Gunnar Öm Gunnarsson
framkvæmdastjóri.
Spurður um uppsagnir á mannskap
kvað hann ekki tengjast þessum söluhug-
afl hinna þriggja véla Hrauneyjafoss-
virkjunar er nú 210 megavött. Með
tilkomu virkjunarinnar hefur afl vatns-
aflsstöðva Landsvirkjunar aukist úr 449
megavöttum í 659 megavött eða um
47%. jafnframt hefur orkuvinnslugetan
aukist um 30% í 3700 gígavattsstundir á
ári.
myndum heldur verkefnaleysi. Alger
lokun fyrirtækisins sé ekki fyrir dymm
þótt dragast kunni að fá nýja kaupendur.
Af um 50 manns sem starfað hafa hjá
fyrirtækinu þegar það hefur verkefni
sagði Gunnar nú einungis um 10 eftir.
Á 3. tug manna hafi hætt af sjálfsdáðum
í haust og 11 var síðan sagt upp 1. nóv.
s.l.
Síðasta skipið frá stöðinni var afhent
26. júlí í sumar. 1 meira en fjóra mánuði
sé síðan búið að reyna að fá verð þess
uppgert í kerfinu og sé þó ekki allt
komið enn. Á þessum fjórum mánuðum
sé kerfið búið að leika sér að því að
hækka verð bátsins um 10 millj. króna
Bókfærður stofnkostnaður vegna
virkjunarinnar ásamt línunni er nú 173
milljónir Bandaríkjadollara að meðtöld-
um vöxtum á byggingartíma reiknað á
meðalgengi hvers árs, eða nærri þrír
milljarðar íslenskra króna.
- ESE.
þar sem allt sé þetta byggt fyrir
ameríkudollara og raunar sé meira en
helmingur skipsverðsins orðinn fjár-
magnskostnaður. „Svo eru menn að
undrast að skip séu of dýr“, sagði
Gunnar. „Við megum heldur ekki smíða
hergögn þótt örugglega fyndust nógir
kaupendur að t.d. fallbyssubátum eða
slíku,“ sagði Gunnar bæði í gríni og
alvöru.
Ekki kvað hann þetta þó svo sem
fyrstu aðförina að skipasmíðaiðnaðinum
í landinu. Þetta hefði gengið svona í
hæðum og lægðum gegn um árin.
-HEI
kennslu-
gögnin
■ „Foreldrafélag nemenda í sænsku
og norsku lýsir ánægju sinni yfir því að
nú er í fyrsta sinn boðin kennsla í
sænsku í tveimur heimahverfum nem-
cnda. Við viljum í þessu sambandi
ítreka nauðsyn þess, að allir nemend-
ur, sem leggja stund á sænsku og
norsku. njóti þessara sjálfsögðu rétt-
inda að nema námsgreinina í eigin
skólum," segir í samþykkt sem ge'rð
var á fundi í Foreldrafélagi nemenda
í sænsku og norsku sem haldinn var
fyrir skömmu.
Ennfremur var farið fram á það (
samþykktinni, að kennsla i þessum
tveimur námsgreinum verði betur
kynnt í skólunum (framtíðinni. Þá var
bent á að margir nemendur þyrftu að
ferðast talsvert til að sækja tíma í
sænsku eða norsku og skólayfírvöld
taka ekki þátt í kostnaði af ferðalögu-
um.
Loks var drepið á það í samþykkt-
inni, að nemendur í námsgreinunum
þurfa sjálfir að borga allan bókakostn-
að, meðan þeir sem leggja stund á
dönsku fá allar kennslubækur endur-
gjaldslaust. -Sjó.
Sjálfvirkur
sími 50 ára
■ Sjálfvirkur sími á íslandi er 50 ára
um þessar mundir. 1. desenibcr árið
1932 voru fyrstu sjálfvirku símstöðv-
amar teknar í notkun í Reykjavík og
Hafnarfirði. Fyrsta sjálfvirka stöðin
utan höfuðborgarsvæðisins var tekin í
notkun á Akureyri 1950.
Nú eru sjálfvirkar símstöðvar á 100
stöðum á landinu með um 90.000
notendur og um 116.000 talfæri. Þá er
hægt að ná 89 löndum með sjálfvirku
vali til útlanda.
Samkvæntt sérstakri áætlun er fyrir-
hugað að koma öllum sínium dreif-
býlisins , sem enn eru handvirkir, í
sjálfvirkt samband innan fjögurra ára.
-Sjó.
Samvinnu-
sjódurinn:
Þorsteinn
Ólafsson
stjórnar-
formaður
■ Á fyrsta stjórnarfundi hins nýstofn-
aða Samvinnusjóðs var Þorsteinn
ólafsson, fulltrúi kjörinh stjórnar-
formaður. Aðrir í stjórn eru Ámi
Jóhannsson, Benedikt Sigurðsson,
Finnur Kristinsson og Þorsteinn
Sveinsson. - Sjó.
■ Hommar og lesbíur efndu til mótmæla á Austurvelli í gær. Afhentu þau forseta Alþingis ályktun þar sem þess var krafist að Alþingi
og ríkisstjóm taki til greina ályktun þingmannafundar Evrópurráðsins um afnám misréttis í garð lesbía og homma. Þá var útvarpsstjóra
afhent ályktun þar sem auglýsingabanni á lesbíur og homma í útvarpi var mótmælt.
Tímamynd Róbert.
Skipasmíðastöð M. Bernharðssonar á ísafirði:
FYRIRTÆKIÐ VERIÐ
AUGLÝST TIL SÖLU
— vegna verkefnaleysis — 80% aff starfsmönnum hætt vinnu sinni
BUNAÐARBANKINN
í MOSFELLSSVEIT
flytur í húsnæði bankans að Þverholti 1, Varmá
föstudaginn 3. desember
Nýtt símanúmer 67000
Kaffiveitingar fyrir viðskiptavini allan opnunardagínn
Verið velkomin
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS