Tíminn - 02.12.1982, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982.
ÚtveggjaMœðning
íyiii
íslenskar aöstœðui
áótiúlega
hagstœðu verði!
Hina stílhreinu Plagan Populár útveggja-
klæðningu fáið þið hjá okkur.
Hentar bæði nýbyggingum og gömlum húsum,
t.d. ef auka þarf einangrun þeirra.
Veggklæðning í hæsta gæðaflokki.
Lítið inn og kynnið ykkur kosti Plagan Populár
veggklæðningarinnar.
BYGGINGAVORUVERSLUN \J
KÓPAVOGS BYKO
TIMBURSALAIM
SKEMMUVEGI 2 SÍMI 41000
VOKVAPRESSA
MÚRBROT — FLEYGUN
HLJÓÐLÁT — RYKLAUS
Tökum að okkur alla múrbrota- og fleygavinnu, hvar og hvenær
sem er. T.d. í húsgrunnum og holræsum, brjótum milliveggi,
gerum dyra og gluggaop, einnig fyrir flestum lögnum og f.l.
Erum með nýja og öfluga vökvapressu. Vanir menn.
VERKTAK sími 54491.
Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við
eða breyta rafiögnum, minnir Samvirki
á þjónustu sína með harttenúnu Mði rafvirkja,
sem ávaltt eru tHbúnir tH hjálpar.
samvirki
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI r SÍMI 44I5S6
heimilistíminn
umsjón: B.St. og K.L.
5. verókynning Verdlagsstofnunar:
Verd eftir
verslunum
— midad við
meðalfjölskyldu
■ Fimmta verðkönnun V erðlagsstofnunar undir heitinu
Innkaupakarfan sýnir hver heildarútgjöld meðalfjöl-
skyldu á höfuðborgarsvæðinu - vegna matar og
hreinlætisvöru - eru nflkil á einu ári, eftir því hvar er
verslað.
Avallt er miðað við lægsta verð hverrar vörutegundar
í verslunum. 36 vötutegundir voru látnar endurspegla
heildarneysluna og miðað við það magn í hverjum flokki
sem kom fram í neyslukönnun, sem gerð var fyrir þremur
árum.
Könnunin var gerð dagana 22.-26. nóvember sl. í 89
verslunum. Þetta er umfangsmesta verðkönnun, sem
gerð hefur verið hérlendis, og óvíst að önnur eins hafi
verð gerð í öðruin löndum.
1. Munurinn á verðinu í þeirri verslun
sem var með lægsta heildarverð og
hæsta heildarverð skv. ofangreindum
forsendum var 15,8% eða 8.759 kr.
miðað við ársneyslu.
2. í fyrri verðkönnun þegar borið
hefur verið saman verð á einstökum
vötutegundum pakka- og dósavöru í
verslunum hefur komið fram allnokkur
munur-á heildarverði eftir verslunum.
Þar hafa s.k. markaðsverslanir skorið
sig nokkuð úr hvað lægsta verði
viðkom. í þessari könnun sem nær til
allra matvöruflokka þ.m.t. mjólk og
mjólkurvörur, kjöt og fiskur, skera
markaðsverslanir sig ekki vcrulega úr
en eru þó meðal þeirra verslana sem
eru með einna lægst heildarverð.
3. Jafnframt því að kanna lægsta verð
á hverri vörutegund í matvöruverslun-
um skráðu starfsmenn Verðlagsstofn-
unar hæsta verð á sömu tegundum.
Mestur var mismunur innan sömu
verslunar um 20% og nemur það í
heildarupphæð um 11.000 kr. á ári.
Má í því tilviki segja að sú fjölskyida
sem ávallt kaupir dýrasta vörumerki í
þeirri verslun það sem munur á lægsta
og hæsta verði var mestur gæti sparað
sér 11.000 kr. á ári með því að velja
alltaf ódýrasta vörumerkið.
4. Könnunin undirstrikar það sem
Verðlagsstofnun hefur áður bent á að
árangursríkasta leiðin til hagkvæmra
innkaupa er að bera saman vöruverð
innan verslana í stað þess að reyna að
kaupa hinar einstöku vötutegundir í
mismunandi verslunum.
Verðlagsstofnun vinnur nú að frekari
úrvinnslu á könnuninni og mun birta
upplýsingar úr henni síðar.
Eins og áður leggur stofnunin ekki
mat á gæði vöru né mismunandi þjónustu
stig verslana. Þó má benda á að þar
sem mikili verðmunur er innan sömu
verslunar er oft um mikið vöruúrval að
ræða.
Loks skal á það bent að í nokkrum
tilvikum var tekið upp verð á fiski, kjöti
eða brauði í sérverslunum í verslunar-
miðstöðvum, ef hluti þessara vöruteg-
unda fékkst ekki í viðkomandi nýlendu-
vöruverslun.
TIERÐKYNNING C
Merðiagssidfnunar 3
Verð eftir verslunum INNKAUPA
KARFAN
Matur og hreinlætisvara -
Ársútgjöld meðalf jölskyldu
55 - 56 þús. kr.
56-57 þús. kr.
57 - 58 þús. kr.
58-59 þús. kr.
59-60 þús. kr.
60-61 þús. kr.
61 - 62 þús. kr.
62 - 63 þús. kr.
63 - 64 þús. kr.
Hagkaup Skeifunni - Vtðir Starmýri.
Hólagarður Lóuhólum 2-6 - Kaupfélag Kjalarnesþings -
Kjötmiðstöðin Laugalæk 2 - Kostakaup Reykjavíkurvegi Hf. -
KRON stórmarkaður Skemmuvegi Kóp. - Vörumarkaðurinn Ármúla 1.
Ásgeir Tindaseli 3 - Breiðholtskjör Arnarbakka 46 - Fjarðarkaup Hólshrauni 16 Hf. -
Gunnlaugsbúð Freyjugötu 15 - Hagkaup Laugavegi 59 -
Kjörbúðin Laugarás Norðurbrún 2 - S.S. Iðufelli 4 - S.S. Laugavegi 116 -
Teigakjör Laugateigi 24 - Vörðufell Þverbrekku 8 Kóp.
Árbæjarmarkaðurinn Rofabæ 39 - Brekkuval Hjallabrekku 2 Kóp. -
Drífa Hlíðarvegi 53 Kóp. - Freyjubúðin Freyjugötu 27 - JL-húsið Hringbraut 121 -
Kaupfélag Hafnfirðinga Miövangi Hf. - Kjörbúð Vesturbæjar Melhaga 2 -
Kjörval Mosfellssveit - Kjöt og f iskur Seljabraut 54 - KRON Álfhólsvegi 32 Kóp. -
KRON Eddufelli — KRON Hlíðarvegi 29 Kóp. - KRON Tunguvegi 19-
Langholtsval Langholtsvegi 174 - Matvælabúðin Efstasundi 99 -
S.S. Austurveri Háaleitisbraut 68 - Straumnes Vesturbergi 76 -
Teigabúðin Kirkjuteigi 19 - Verslunin Kópavogur Hamraborg 12 Kóp.
Allabúð Vesturbraut 12 Hf. - Árbæjarkjör Rofabæ 9 - Ásgeir Efstalandi 26 -
Arnarkjör Lækjarfit 7 Garðabæ - Austurborg Stórholti 16 - Dalmúli Síðumúla 8-
Finnsbúð Bergstaðastræti 48 - Grensáskjör Grensásvegi 46 -
Hamrakjör Stigahlíð 45 - Herjólfur Skipholti 70 - Holtskjör Langholtsvegi 89 -
Hringval Hringbraut 4 Hf. - Kaupgarður Smiðjuvegi 9 -
Kjörbúð Hraunbæjar Hraunbæ 102 - KRON Snorrabraut 56- KRON Stakkahlið 17 -
Skerjaver Einarsnesi 36 - Skjólakjör Sörlaskjóli 42 - Snæbjörg Bræðraborgarstíg 5 -
S.S. Glæsibæ - Valgarður Leirubakka 36 - Versl. Þórðar Þórðarsonar
Suðurgötu 36 Hf. - Víðir Austurstræti 17 - Þingholt Grundarstíg 2.
Dalver Dalbraut 3- Hagabúðin Hjarðarhaga 47 -
Kársneskjör Borgarholtsbraut 71 Kóp. - Kaupfélag Hafnfirðinga Garðabæ -
Kaupfélag Hafnfirðinga Strandgötu 28 Hf. - Kjöthöllin Háaleitisbraut 58-60-
Lækjarkjör Brekkulæk 1 - Matval Þingholtsbrauf 21 Kóp. - Melabúðln Hagamel 39-
Sundaval Kleppsvegi 150 - Sunnukjör Skaftahlíö 24 - Vogur Víghólastíg 15.
Álfaskeið Álfaskeiði 115 Hf. - Arnarhraun Arnarhrauni 21 Hf. -
Baldur Framnesvegi 29 - Borgarbúðin Hófgerði 30 Kóp. - Hlíðarkjör Eskihlíð 10 -
Kjötborg Ásvallagötu 19 - KRON Langholtsvegi 130 -
Nesval Melabraut 57 Seitj.nesi. - S.S. Hafnarstræti 5 -
Vegamót Nesvegi Seltj.nesi. - Verslun Guðm. Guðjónssonar Vallargeröi 40 Kóp.
Borgarkjör Grensásvegi 26 -
S.S. Skólavörðustíg 22.
S.S. Aðalstræti 9 - S.S. Bræðraborgarstíg 43 -
Hverfiskjötbúðin Hverfisgötu 50.
Skýrtngar: Þessi Innkaupakarfa sýnir samanlagt lœgsta twró á 35 mat- og hreinlætisvörum 189 verslunum á höfuöborgarsvæðinu dagana
22.-26. nóvember sl. Þessar 35 vörutegundir eru látnar endurspegla öll innkaup á mat- og hreinlætisvörum meðalfjölskyldu á einu ári. I öllum
tllvikum var ódýrasta vörumerki valíð. Ekkl er lagt mat á gæði eða þjónustu.
ÍÍMI
ERÐKYNNING wea
ERÐLAGSSIDFNUNAR