Tíminn - 02.12.1982, Síða 11
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982.
S'i'IJÍl'
11
bækur
ELSKAÐU
MIG
Elskaðu mie
■ Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent frá
sér nýja bók eftir danska rithöfundinn Erling
Poulsen. Bókin heitir Elskaðu mig. Er hún
7. bókin í flokknum „Rauðu ástarsögumar“.
„Irena kannaðist við glampann í augum
arkitektsins. Hún reyndi að líta undan. Gráu
augun hans töfmðu hana. Hún ætlaði að
víkja frá honum, en fæturnir neituðu að
hlýða. Hún titraði af innibyrgðri þrá þegar
hendur hans stmku líkama hennar og hún
fann mjúkar krefjandi varir hans við sínar.
Viljalaust féll hún í faðm hans... „Elskaðu
mig,„ hvíslaði hún.
Benny Thorsen stóð í myrkrinu fyrir utan
húsið. í ljósbirtu gluggans sá hann móta fyrir
tveimur mannvemm í ástríðuþmngnum
faðmlögum. „Hættið. Hættið," hrópaði
hann, en verumar inni í húsinu stóðu í
þéttum faðmlögum, sáu ekkert, heyrðu
ekkert. Hann hljóp að dymm hússins, lamdi
þær utan trylltur af logandi afbrýði.“
Elskaðu mig er 197 bls. Skúli Jensson
þýddi. Prentverk Akraness hf. hefur annast
prentun og bókband.
GUÐMUNDUR
IORUNDSSON
■
Guðmundur Jörundsson:
Sýnir og sálfarir
■ Út er komin hjá Skuggsjá bókin Sýnir og
sálfarir eftir Guðmund Jörundsson útgerð-
armann og skipstjóra. Guðmundur er lands-
kunnur athafna- og aflamaður, einstakt
prúðmenni og drengskaparmaður, sem allir
sem til þekkja vita, að ekki hallar réttu máli.
Guðmundur er alinn upp í Hrísey, þar sem
Jömndur hákarlaformaður, afi hans, stund-
aði sjóinn og síðar Jörundur faðir hans, sem
einnig var kunnur sjómaður og útgerðarmað-
ur.
En Guðmundur Jörundsson er einnig
mörgum kunnur fyrir dulargáfur. og það er
sá þáttur úr lífí hans, sem hann hér segir frá.
Þessar dulargáfur telur hann sig hafa erft frá
Kristínu Antonsdóttur, móðurömmu sinni, og
þær hafa markað lífs hans og mótað á margan
hátt.
Allar frásagnir, sem birtast í bókinni,
skrásetti Guðmundur meðan þær vora hon-
um ferskar í minni og era þær því
nákvæmlega tímasettar.
Sýnir og sálfarir er 152 bls., sett og
umbrotin í Acta hf, prentuð í Prenttækni og
bundin í Bókfelli hf. Láms Blöndal gerði
hlífðarkápu og útgefandi er Skuggsjá.
1981
nefnist hún Luktar dyr. Höfundar bókarinnar
eru sænsku rithöfundamir Maj Sjöwall og
Per Wahlöö, og er þetta áttunda og jafnframt
stærsta bókin í þessum sagnaflokki, sem
hefur verið gefinn út á fjölmörgum þjóð-
tungum og alls staðar notið mikilla vinsælda.
Ekki síst meðal vandlátra lesenda. í flokkn-
um eru tíu lögreglusögur alls sem eru
sjálfstæðar hver um sig, en aðalpersónurnar
era þær sömu, Martin Beck og starfsbræður
hans í rannsóknarlögreglu Stokkhólmsborg-
ar.
Luktar dyr er 266 bls. og er gefin út bæði
innbundin og sem kilja. Setningu og prentun
annaðist Prentrún hf., en Bókfell hf. batt.
Öm og Örlygur:
Tvær hreyfímyndabækur
■ Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur sent
frá sér tvær litlar hreyfimyndabækur. Nefnist
HefUr þú spurt a
Húsavík?
Við eigum nánast allt sem þú þarfnast til húsbyqqinqa,
jafnt áhöld sem efni.
önnur bókin „Litir“ en hin bókin „Lögun.“
Hefur útgáfan áður gefið út tvær bækur í
þessum sama flokki og vora þær um hljóðin
og dýrin.
Hreyfimyndabækur þessar er ætlað að
vera í senn skemmtun ungra bama og til
fróðleiks og náms. Söguhetjur bókanna era
Tumi trúður og Skotti þvottabjöm. I bókinni
um Iitina eru þeir félagar að læra að þekkja.
heiti litanna og í bókinni „Lögun“ kynnast
þeir heitum hinna ýmsu forma, svo sem
feminga, þríhyminga og fleira. Eru bækur
þessar einkum ætlaðar ungum bömum og
eiga að aðstoða foreldra eða kennara þeirra
við uppfræðslu á skemmtilegan og lifandi
hátt.
Þýðandi beggja bókanna er Stefán Jökuls-
son.
Bækurnar „Litir“ og „Lögun" era settar
og filmunnar í Prentstofu G. Benediktssonar
en prentaðar og bundnar í Singapore.
Bnwwrw*****
LÖGUN
Hreyfimyndabók
LITIR
Hvað gerðist á íslandi 1981
Árbók íslands
■ Bókaútgáfan Orn og Örlygur hf. hefur
sent frá sér bókina „Hvað gerðist á Islandi
1981 - Árbók íslands“ eftir Steinar J.
Lúðvíksson. Er þetta þriðja bókin í árbóka-
flokki - áður hafa komið út bækur um árin
1979 og 1980 eftir sama höfund.
Hvað gerðist á íslandi 1981 ersamtímasaga
innlendra atburða rakin í máli og myndum.
Myndaritstjóri bókarinnar er Gunnar V.
Andrésson fréttaljósmyndari hjá Dagblað-
inu&Vfsi en ljósmyndir eftir flesta kunnustu
fréttaljósmyndara landsins eru í bókinni, auk
þess sem myndskreytingar era eftir Gísla J.
Ástþórsson sem túlkar með þeim skoplegu
hliðina á ýmsum atburðum sem fjallað er um
í bókinni.
í bókinni er efninu skipt niður í flokka
eftir eðli atburða og gangur mála rakinn í
yfirlitsgreinum, þannig að lesendur eiga að
fá glögga yfirsýn yfir hvernig mál hófust,
hvernig þau þróuðust og hver málalok urðu,
svo fremi að þau hafi þá legið fyrir.
Skáldsaga um glæp:
Luktar dyr
■ Komin er út hjá Máli og menningu ný
bók í sagnaflokknum Skáldsaga um glæp og
if byggingarvörur
Husavík. Sl'mi (96) 414 44
SJÖMAft
MðHlÚÖ
SKALDSAGAU4^GLÆP
Luktar dyr