Tíminn - 02.12.1982, Síða 13
12
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER
PAUGLÝSIR
/ samráði við Bændaskólann á Hvanneyri og
Hótei Loftieiðir, kynnir ÍSMAThf. ís/enska
jóiagæs og verður hún borin fram á jóiaborði
Hótei Loftieiða aiian desember í hádeginu.
VIÐ LEITUM SVARA:
„Á gæsarækt framtíð fyrir sér á ís/andi?"
Gæsin er af ítö/skum stofni, en a/in nær eingöngu
á ís/ensku grasi.
Látið bragðiaukana njóta sín og iátið á/it ykkar
í ijös, sendið iínu tii
ÍSMAThf. Brekkustíg 40 Y-Njarðvík sími 92-2152.
H
AUGLÝSIR
Vegna yfirvofandi skorts á nauta- og svínakjöti
óskar ÍSMA T hf. eftir að komast í samband
við bændur, sem hefðu áhuga á þessu sviði.
Veitum ráðgjöf þeim sem þess óska, skrifið til
ÍSMA T hf. Brekkustig 40, Y-Njarðvik.
Sími 92-2152.
orðsending til
Allar vörur frá ÍSMAThf.
eru í þægiiegum umbúðum\
sem fara vel
í frystigeymslum.
Mötuneyta - skóla og sjúkrahúsa.
Hafið samband við okkur áður en þið hannið ný
eldhús eða gerið breytingar á gömium.
Óunnið hráefni í frysti, er í raun vaxta/aust fé.
Hringið eða skrifið eftir vöru/ista frá ÍSMAThf.
X t fj í í» ? | J BREKKUSTÍG 40,
An MAT5 ”v,K
SÍMI
92-2152
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982.
liiisiiií
13
Rauða-
krossheim-
ili með
dagvistun-
og
þjónustu-
aðstöðu
fyrir eldra
fólk, opnar
á Selfossi:
■ Rauðakrossheimilið er til húsa að Austurvegi 21B á Selfossi, sem er skammt frá Sjúkrahúsinu. Rauðakrossdeildin í
Ámessýslu keypti húsnæðið, en einstaklingar í sýslunni gáfu nánast allt sem til þurfti til að hægt væri að opna heimilið,
allt frá húsgögnum til búsáhalda, mynda dúka og smáhluta, sem setja venjulegan heimilisblæ á heimilið.
Myndir Sigurður Sigurjónss.
■ Húsmóðirin á Rauðakross-heimilinu á Selfossi, Inga
Bjamadóttir heUir hér upp á könnuna.
„OKKAR STEFNA
AB VIRKJA
ALDRAÐA FÓLKIfi
TIL AÐ REKA
NEIMIUD SJÁLFT’
■ „Raunverulega hefur heimílið verið í fullum gangi í heilan mánuð áður en það var
eiginlega opnað, þótt það hafi ekkert verið auglýst. Það er svo mikið af fólki sem þarf
á allskonar fyrirgreiðslu að halda“, sagði Inga Bjarnadóttir, húsmóðir nýs Rauðakross-
heimilis sem formlega var opnað á Selfossi s.l. sunnudag.
Það er Rauðakross-deild Amesinga sem snemma á þessu ári keypti hæð í húsinu
Austurvegur 21B á Selfossi í þeim tilgangi að koma þar á fót dagvistun - og
þjónustuaðstöðu fyrir eldra fólk úr allri sýslunni og aðra þá sem þessa þjónustu vilja
nota. Öldrunarnefnd deildarinnar hefur síðan unnið að því að útbúa heimilið og undirbúa
fyrir starfrækslu, sem nánast alveg hefur verið gert með samskotum Árnesinga.
„Þetta hefur bókstaflega ekki kostað deildina neitt
- eða aðeins 15 þús. kr. að koma heimilinu af stað.
Einstaklingar hér á Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka
og víðar hafa gefið öll húsgögn og annan húsbúnað
sem til þurfti“, sagði Brynleifur H. Steingrímsson,
læknir og form. deildarinnar. Hann sagði þetta
notaða hiuti, en vel útlítandi og prýðilega í alla staði.
„Okkar stefna er sú að virkja aldraða fólkið sjálft tií
að reka heimilið og vinna við þetta, en helst ekki að
neinir faglærðir far-i að breiða vængi sína yfir þetta“,
sagði Brynleifur.
„I’að er eitt sem víst er, að hér verður nóg að gera“,
sagði húsmóðirin Inga. „Selfoss er þjónustubær fyrir
allar sveitir sýslunnar. Þess vegna var hér mikil þörf
á bækistöð þar sem fólk gæti hvílt sig eða mælt sér
mót, fengið sér kaffisopa og haft það þægilegt. Fólk
er kannski að bíða eftir að komast í nudd, í pantaða
tíma hjá lækni, aðgerðir eða slíkt uppi á spítala eða
hvað sem er og einnig að bíða eftir fari. Þess eru
dæmi að fólk útskrifist af sjúkrahúsinu kl.ll en fái
ekki far heim fyrr en um fimmleytið að kvöldi. í
slíkum tilvikum hefur fólk kannski staðið niður í
kaupfélagi og beðið allan daginn, sem er afskaplega
óvistlegt fýrir fólk sem er að koma beint úr af spítala,
oft hálf illa haldið", sagði Inga er við spurðum hana
nánar út í hugmyndina á bak við þetta nýj a heimili.
Heimilið er stutt frá sjúkrahúsinu og þaðan er
hugmyndin að fá heitan mat sem verður til reiðu í
hádeginu gegn vægu gjaldi, fyrir þá er þess óska.
Einnig getur eldra fólk fengið fótsnyrtingu, hárþvott
og annað því skylt á heimilinu. Fyrst um sinn verður
heimilið opið á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum frá kl.9 að morgni til kl.5 síðdegis.
■ Soffía Símonardóttir (konan með hvíta sjalið) er
elsti „innfæddi“ Selfvssingurinn, fædd á gamla
Selfossbænum áríð 1907. Við hlið hennar tyllti sér
niður húsmóðirin Inga en til vinstrí situr Aðalheiður
Guðmundsdóttir.Hina veglegu blómakörfu á borðinu
færði bæjarstjóm Selfoss heimilinu í tilefni af opnun
þess.
Rauðakrossdeild Árnesinga var stofnuð árið 1978
og er deild úr Rauðakrossi íslands. Starfssvæði
hennar er Árnessýsla og Selfossbær. Fyrirhugað er
að breyta skipulagi deildarinnar þannig að þrjár
undirdeildir starfi á svæðinu og er hugmyndin með
því að stuðla að meiri virkni fólks í starfsemi
Rauðakrossins. Skráða félaga kvað Inga nú á fjórða
hundrað talsins.
Á svæði deildarinnar sagði Inga á s.l. ári hafa verið
haldin 20 námskeið í skyndihjálp með um 300
nemendum. Þá hafa verið skipulagðar 8 neyðarstöðv-
ar á svæðinu.
-HEI