Tíminn - 02.12.1982, Page 15

Tíminn - 02.12.1982, Page 15
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982. bækur sér unglingasöguna Búriö sem kom út árið 1977 og varð mjög vinsæl og umdeild. Um bókina segir á kápu: „Niðurstaða skilnaðarbarnsins er bitur: „Þið fáið að ákveða sj álf, núna viljið þið þetta og núna viljið þið hitt, þið getið gifst og skilið og gert allt sem ykkur sýnist, og svo bitnar það á mér. Ég bara lendi einhvers staðar og enginn spyr mig.“ Spumingin er hvort jafnvel fullorðinn einstaklingur geti ráðið sjálfur næturstað stnum og sinna, ef hann er hrekklaus og treystir á lög og reglur. Vegurinn heim eftir Ölgu Guðrúnu Árna- dóttur er átakamikil og spennandi skáldsaga sem kemur öllum við... í miðpunkti sögunnar er ellefu ára gömul telpa sem berst fyrir því að fá að ráða lífi sínu sjálf, en í kringum hana byggist upp smám saman mynd af íslensku samfélagi eins og við þekkjum það á okkar tímum, samfélag sem vemdar börn ekki gegn ofbeldi fullorðinna..." Vegurinn heim er 187 bls. að stærð, prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Hólum. Robert Guillemette gerði kápuna. Borgfirzk bianda 6 ■ Nýlega er komið út hjá Hörpuútgáfunni á Akranesi 6. bindið í safnritinu Borgfirzk blanda. Eins og í fyrri bókunum er efnið blanda af þjóðlífsþáttum, persónuþáttum og gamanmálum. Meðal þess má nefna þættina: Þegar „Jónarnir“ versluðu í Borgarnesi - Sjómannskona á Akranesi - Þar munaði mjóu - Hrakningar á Kaldadal - Eitt ár í Borgarfirði - Sendur í sveit - Rjómabúið við Geirsá - Flóðið mikla í Hvítá 1918 - Upphaf sundkennslu í Borgarfirði - Minningarþættir frá Melum og Innra-Hólmi - Konan sem starfrækti fyrsta „sjúkrahúsið" á Akranesi - Frásagnir af Vigfúsi sterka á Gmnd - Reimleikar í Reykholti - Ekki verður feigum forðað - Skyggnst í gamlar skræður. Bragi Þórðarson bókaútgefandi á Akranesi hefur safnað efninu í þessa bók, eins og hinar fyrri. Borgfirzk blanda 6 er 252 bls. í stóru broti. Fjöldi mynda er í bókinni. Hún er prentuð og bundin í Prentverki Akraness hf. „Vala“ eftir Ragnheiði Jónsdóttur í nýrri úgáfu ■ IÐUNN hefur gefið út í nýrri útgáfu Völu sögu handa börnum og unglingum eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Saga þessi kom fyrst út árið 1948 og tilheyrir sagnaflokki Ragn- heiðar um Dóra og vini hennar. Þetta er fjórða bókin í þeim flokki, en þrjár þær fyrstu hafa nú verið gefnar út að nýju, Dóra, Dóra í Alfheimum og Dóra og Kári. - VALA er sérstæð í flokknum að því leyti að hún er sögð frá sjónarhomi Völu sem mjög hefur komið við sögu í Dóra bókunum. Sagan segir frá heimilislífi Völu frá því að hún er níu ára þar til hún er fermd. Hún gerist í Reykjavík í upphafi stríðsins. Myndir í VÖLU gerði Ragnheiður Gests- dóttir. Hún gerði einnig kápumynd. Prent- tækni prentaði bókina sem er 133 blaðsíður. 15 Hvenær verður dregið í þessari jólagetraun? □ 14. des. □ 15. des. □ 16. des Þetta er síðasti getraunaseðillinn í þessari getraun (No. 1 - 4/11 no. 2 - 18/11) 'la-getraun Eins og á síðasta ári efnir Tíminn í samvinnu við Einar Farestveit & Co. h.f. til Jóla-getraunar fyrir áskrifendur Tímans. Vinningurinn er glæsilegur TOSHIBA örbylgjuofn gerð ER 672 Deltawave að verðmæti kr. 9.200. Ofninn er svo auðveldur í notkun að börn geta notað hann án minnstu áhættu. Þessi glæsilegi Toshiba örbylgjuofn er með algerri nýjung í búnaði örbylgjuofna Deltawave. Deltawave er uppfinning Toshiba, sem gerir .betri og jafnari bakstur og fallegri matreiðslu. Ennfremur er ofninn með snúningsdisk og tímastillingu niður í 5 sekúndur og samfelldum orkustilli frá 1-9 • Getraunin verður í þremur blöðum með nokkru millibili sú fyrsta fimmtudaginn 4. nóvember. • Dregið verður 14. desember. • Vinningshafi fær ókeypis kennslu á ofninn hjá matreiðslukennara fyrirtækisins. • Það sem þú þarft að gera, er að krossa við eitt af uppgefnum svörum við spurningu hvers seðils, halda spurningaseðlunum saman og þegar þriðji og síðasti seðillinn er kominn, að senda þá alla seðlana til blaðsins merkt Tíminn jólagetraun, Síðumúla 15, Reykjavík. • Ef þú hefur krossað við rétt svar á öllum seðlunum, hefur þú möguleika á að eignast þennan nytsama

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.