Tíminn - 02.12.1982, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982.
bækur
sér unglingasöguna Búriö sem kom út árið
1977 og varð mjög vinsæl og umdeild.
Um bókina segir á kápu:
„Niðurstaða skilnaðarbarnsins er bitur:
„Þið fáið að ákveða sj álf, núna viljið þið þetta
og núna viljið þið hitt, þið getið gifst og skilið
og gert allt sem ykkur sýnist, og svo bitnar
það á mér. Ég bara lendi einhvers staðar og
enginn spyr mig.“ Spumingin er hvort
jafnvel fullorðinn einstaklingur geti ráðið
sjálfur næturstað stnum og sinna, ef hann er
hrekklaus og treystir á lög og reglur.
Vegurinn heim eftir Ölgu Guðrúnu Árna-
dóttur er átakamikil og spennandi skáldsaga
sem kemur öllum við... í miðpunkti sögunnar
er ellefu ára gömul telpa sem berst fyrir því
að fá að ráða lífi sínu sjálf, en í kringum
hana byggist upp smám saman mynd af
íslensku samfélagi eins og við þekkjum það
á okkar tímum, samfélag sem vemdar börn
ekki gegn ofbeldi fullorðinna..."
Vegurinn heim er 187 bls. að stærð,
prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Hólum.
Robert Guillemette gerði kápuna.
Borgfirzk bianda 6
■ Nýlega er komið út hjá Hörpuútgáfunni
á Akranesi 6. bindið í safnritinu Borgfirzk
blanda. Eins og í fyrri bókunum er efnið
blanda af þjóðlífsþáttum, persónuþáttum og
gamanmálum. Meðal þess má nefna þættina:
Þegar „Jónarnir“ versluðu í Borgarnesi -
Sjómannskona á Akranesi - Þar munaði
mjóu - Hrakningar á Kaldadal - Eitt ár í
Borgarfirði - Sendur í sveit - Rjómabúið við
Geirsá - Flóðið mikla í Hvítá 1918 - Upphaf
sundkennslu í Borgarfirði - Minningarþættir
frá Melum og Innra-Hólmi - Konan sem
starfrækti fyrsta „sjúkrahúsið" á Akranesi -
Frásagnir af Vigfúsi sterka á Gmnd -
Reimleikar í Reykholti - Ekki verður feigum
forðað - Skyggnst í gamlar skræður.
Bragi Þórðarson bókaútgefandi á Akranesi
hefur safnað efninu í þessa bók, eins og hinar
fyrri.
Borgfirzk blanda 6 er 252 bls. í stóru broti.
Fjöldi mynda er í bókinni. Hún er prentuð
og bundin í Prentverki Akraness hf.
„Vala“ eftir Ragnheiði
Jónsdóttur í nýrri úgáfu
■ IÐUNN hefur gefið út í nýrri útgáfu
Völu sögu handa börnum og unglingum eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. Saga þessi kom fyrst
út árið 1948 og tilheyrir sagnaflokki Ragn-
heiðar um Dóra og vini hennar. Þetta er
fjórða bókin í þeim flokki, en þrjár þær
fyrstu hafa nú verið gefnar út að nýju, Dóra,
Dóra í Alfheimum og Dóra og Kári.
- VALA er sérstæð í flokknum að því leyti
að hún er sögð frá sjónarhomi Völu sem
mjög hefur komið við sögu í Dóra bókunum.
Sagan segir frá heimilislífi Völu frá því að
hún er níu ára þar til hún er fermd. Hún
gerist í Reykjavík í upphafi stríðsins.
Myndir í VÖLU gerði Ragnheiður Gests-
dóttir. Hún gerði einnig kápumynd. Prent-
tækni prentaði bókina sem er 133 blaðsíður.
15
Hvenær verður dregið í þessari jólagetraun?
□ 14. des. □ 15. des. □ 16. des
Þetta er síðasti getraunaseðillinn í þessari getraun
(No. 1 - 4/11 no. 2 - 18/11)
'la-getraun
Eins og á síðasta ári efnir Tíminn í samvinnu við Einar Farestveit &
Co. h.f. til Jóla-getraunar fyrir áskrifendur Tímans.
Vinningurinn er glæsilegur TOSHIBA örbylgjuofn gerð ER 672
Deltawave að verðmæti kr. 9.200.
Ofninn er svo auðveldur í notkun að börn geta notað hann án minnstu áhættu.
Þessi glæsilegi Toshiba örbylgjuofn er með algerri nýjung í búnaði örbylgjuofna Deltawave.
Deltawave er uppfinning Toshiba, sem gerir .betri og jafnari bakstur og fallegri matreiðslu.
Ennfremur er ofninn með snúningsdisk og tímastillingu niður í 5 sekúndur og samfelldum orkustilli frá 1-9
• Getraunin verður í þremur blöðum með nokkru millibili sú fyrsta fimmtudaginn 4. nóvember.
• Dregið verður 14. desember.
• Vinningshafi fær ókeypis kennslu á ofninn hjá matreiðslukennara fyrirtækisins.
• Það sem þú þarft að gera, er að krossa við eitt af uppgefnum svörum við spurningu hvers seðils,
halda spurningaseðlunum saman og þegar þriðji og síðasti seðillinn er kominn, að senda þá alla
seðlana til blaðsins merkt Tíminn jólagetraun, Síðumúla 15, Reykjavík.
• Ef þú hefur krossað við rétt svar á öllum seðlunum, hefur þú möguleika á að eignast þennan nytsama