Tíminn - 02.12.1982, Qupperneq 24
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bila til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Sfmi 36510
■ Edda Erlcndsdóttir.
píanóleikari.
við flygilinn á heimili foreldra sinna.
- Tímamynd: Ella.
„MJÖG JÁKVÆO HtÓUN f
(SLENSKU TÓNUSTARIÍFI
Segir Edda Erlendsdóttir, píanóleikari, sem leikur einleik med
Sinfóníuhljómsveit íslands í kvöld, en Edda er búsett í Parfs
■ „Það er mjðg skemmtilegt að koma
svona heim, og þá einkum til þess að
leika með Sinfóníuhljómsveitinni,“
sagði Edda Erlendsdóttir, píanóleikari í
viðtali við Tímann í gær, en Edda leikur
einleik með Sinfóníuhljómsveit Islands
í kvöld og mun hún leika Píanókonsert
no. 2 eftir Beethoven. Edda er búsett í
París, en þar hefur hún búið um 9 ára
skeið. Hún fór þangað fyrst til náms í
píanóleik 1973 en settist síðan að í
París. Edda er gift Frakkanum Olivier
Manoiry, en hann er fiðlusmiður að
atvinnu. Þau hjónin eiga einn son,
Tómas, þríggja ára og er hann jafnt
mxlandi á frönsku sem íslensku.
„Kem oft heim“
Edda er spurð þeirrar hefðbundnu
spurningar, sem íslendingar búsettir
erlendis eru svo oft spurðir: Saknar þú
ekki íslands?
„Auðvitað sakna ég íslands, en ég er
þó svo lánsöm að ég get komið nokkuð
reglulega heim. Ég kem oft á sumrin og
undanfarin ár hef ég einnig komið heim
einu sinni á hverjum vetri og spilað“
- Nú er sennilega óhætt að segja að
þú getir litið á tónlistarlífið hér á landi
með augum gestsins - Hvað finnst þér
um þá þróun sem átt hefur sér stað í
tónlistarlífinu hér að undanförnu?
„Mér finnst þróunin hafa verið mjög
jákvæð. Það hefur óskaplega mikiðgerst
í tónlistarlífinu hér. Mikið af ungu,
efnilegu og ve! menntuðu fólki
hefur haslað sér völl. Ég hugsa
að þetta sé að hluta til vegna
þess að tónlistarskólum
hefur fjölgað. Þá hefur verið svo mikið
um það að vel menntað tónlistarfólk hafi
komið heim frá námi og farið að starfa
hér. Þá finnst mer einnig að andinn sé
betri í íslensku tónlistarlífi nú en áður.
Það þarf ekki jafnmikið tilefni til þess
að halda tónleika eða leika saman og
áður - fólk getur tekið sig saman í
smærri hópum og spilað. Þá finnst mér
íslenskir áheyrendur vera jákvæðari en
tíðkast annars staðar. Áheyrendur hér
eru opnir fyrir því sem er að gerast, þeir
mæta á tónleika og eru ekki jafnþröngur
hópur og tíðkast víða úti, þar sem
einhver sérstakur áheyrendahópur mæt-
ir til þess að hlýða á sérstaka túlkendur
tónlistar.
Ég er til að mynda mjög hrifin af því
sem íslenska hljómsveitin er að gera. Ég
fór á tónleika hjá henni síðasta laugar-
dag, og finnst mér þetta vera mikið og
gott framtak hjá tónlistarfólkinu í
hljómsveitinni."
apríl nk. Annars hefur það aldrei komið
til greina af minni hálfu að verða
píanóleikari sem ferðast um allan heim
til þess að halda konserta. Ég á mína
fjölskyldu, og henni gæti ég ekki sinnt
sem skyldi með slíkum ferðalögum."
Edda lauk einleikaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík 1973 og eftir
það hlaut hún franskan styrk til þess að
nema píanóleik við Tónlistarháskólann
í París, en aðan útskrifaðist hún 1978.
Nú kennir Edda píanóleik við Tónlistar-
háskólann í Lyon tvo daga í viku, og
blaðamaður spyr hvort það sé ekki snúið
fyrir hana að fara alla þessa leið frá
París, tvo daga vikunnar. „Nei, það er
alls ekki svo snúið. Þó þetta sé 450
kílómetra leið, þá tekur það mig aðeins
tvo og hálfan tíma að fara þangað með
hraðlestinni, en Frakkar eru mjög svo
hreyknir af þessari hraðskreiðu lest
sinni, sem er sú hraðskreiðasta í heimi!“
Tónleikamir í Ha'skólabíói hefjast kl.
20.30 í kvöld, og verður þetta í fyrsta
sinn sem Edda kemur opinberlega fram
með Sinfóníuhljómsveit íslands,
en áður hefur hún gert
útvarpsupptökur með
hljómsveitinni.
„Held eina tonleíka
í París á ári“
- Heldur þú reglulega tónleika í París?
„Ég hef haldið tónleika svona einu
sinni á vetri í París. Það er ákveðin
skýring á því hvers vegna ég hef ekki
gert meira af því, því sonur minn
er1 aðeins þriggja ára og ég hef ekki /
viljað vera á neinu flakki á meðan f
hann er svona ungur. En nú, A
uppúr þessu gæti orðið einhver Æ
breyting þar á. Ég á til Æm
dæmis að leika á tónleikum Æm
í Svíþjóð í
- AB.
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER
fréttir
Pálmi stefndi í
stórsigur
■ Pálmi Jónsson, land-
búnaðarráðherra, virtist
ótvíræður sigurvegari í
prófkjöri sjálfstæðismanna
í Norðurlandi- Vestra í
gærkvöldi. Þegar 700 af
rúmlega 1800 atkvæðum
höfðu verið talin, hafði
Pálmi hlotið 442 atkvæði í
fyrsta sæti en Eyjólfur
Konráð Jónsson, sem tal-
inn var skæðasti keppi-
nautur ráðherrans, aðeins
221, eða nákvæmlega
helming atkvæða Pálma.
í annað sæti hafði Ey-
jólfur Konráð fengið 256
atkvæði, Páll Dagbjartsson
198, Jón Ásbergsson 172,
Ólafur Óskarsson 91 og
sýslumaðurinn Jón ísberg
78 atkvæði.
Búist var við að talningu
lyki síðla nætur. Sjó
Dróst 200 metra
með strætisvagni
■ Kona sem var að fara út
úr strætisvagni á Bústaðavegi
í gærdag varð fyrir því að
festast í hurð vagnsins og
dróst hún 150-200 metra leið
með vagninum áður en upp-
götvaðist hvað hafði gerst.
Konan marðist nokkuð og
skarst, en all mikill snjór var
á og hefur það að líldndum
bjargað henni frá mun alvar-
legri meiðslum.
EGÓá
Borginni
■ Hljómsveitin EGÓ mun
halda tónleika á Hótel Borg í
kvöld, fimmtudagskvöld, og
hefjast þeir kl. 10. Á undan
hljómsveitinni mun hópur
ungra ljóðskálda lesa úr verk-
um sínum.
EGÓ hefur sem kunnugt er
nýlega sent frá sér breiðskífu
í Mynd, og mæta þeir á
Borgina með nýtt prógramm
auk þess sem Rúnar Erlings-
son bassaleikari mun leika
með þeim, én hann kom inn í
sveitina skömmu áður en nýja
platan var tekin upp. - FRI.
dagar til jóla
\
dropar
Márí
Fiskveiðasjóð
■ Fyrir nokkru var auglýst
laus til umsóknar staða for-
stjóra Fiskveiðasjóðs, en bráð-
It'ga mun Sverrír Júlíusson,
sem gegnt hefur starfinu
undanfartn ár, láta af því.
Nokkrar bollaleggingar hafa
verið um hugsanlegan eftir-
mann Sverrís, en nú er talið
líklcgast að Már Elísson, fiski-
málastjóri, verði ráðinn í það
af stjórn sjóðsins.
Jafnframt hafa menn leitt
getur að þvi hver muni setjast
í stólinn í húsi Fiskifélagsins ef
af því yrði. Hefur nafn Þor-
steins Gíslasonar, skipstjóra,
verið nefnt sem hugsanlegs
kandidats.
Matti Matt í
Seðlabankann?
■ En fyrst faríð er að minnast
á Fiskveiðasjóð, þá er ekki úr
vegi að minnast þess, að nú um
áramótin mun stjórnarformað-
ur hans, Davíð Ólafsson, láta
af starfi sínu sem einn af
bankastjórum Seðlabankans.
Stóliinn er eyrnamerktur sjálf-
stæðismönnum, og því væntan-
lega einn slíkur sem kemur til
með að setjast í hann. Matthías
Á. Matthíssen, alþingismaður
og fyrrverandi fjármálaráð-
herra, hefur verið orðaður við
stöðuna, sem væntanlega
myndi leiða til þess ef af yrði,
að hann gæfi ekki kost á sér
við næstu alþingiskosningar.
Síðustu daga hefur þó annað
nafn borið á góma, sem er Geir
Hallgrímsson, eftir útreiðina
sem hann varð fyrir í prófkjöri
flokksins um síðustu helgi.
Dr. Gunnar
handleikur póli-
tíska framtíð
Geirs
■ Dr. Gunnar Thoroddsen,
forsætisráðherra hefur nú á
pólitíska framtíð Geirs Hall-
grímssonar, formanns Sjálf-
stæðisflokksins í hendi sér. Ef
dr. Gunnar ákveður að fara í
framboð með eigin lista við
næstu alþingiskosningar í
Reykjavík, er öruggt að Geir
Hallgrímsson er vonlaus um að
ná kosningu. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur nú fimm kjör-
dæmakjörna þingmenn í
Reykjavík og einn uppbótar-
þingmann, þannig að ef dr.
Gunnar býður fram þá saxast
verulega á þessa tölu. Mættu
jafnvel Pétur sjómaður og
Ragnhildur Helgadóttir fara
að vara sig alvarlega.
Krummi ...
telur upplagt að Geir taki
við ritstjóm á DV eftir að
EUert hættir.