Tíminn - 07.12.1982, Side 1

Tíminn - 07.12.1982, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982 Víkingar töpudu — Dukla Prag - Víkingur 23-15 ■ í gær léku Víkingar fyrri leik sinn í 2. umferð Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik. Andstæðingar þeirra voru Dukla frá Prag og var leikið í Tékkóslóvakíu. Tékkamir sigmðu með 23 mörkum gegn 15, en staðan í leikhléi var 10 mörk gegn 8 Dukla í hag. Munurinn á liðunum var þetta tvö til þrjú mörk, þar til síðustu tíu mínúturnar að Tékkarnir sigu framúr og unnu öruggan sigur. Viggó Sigurðsson var markahæstur í leiknum og skoraði 4 mörk, Hörður Harðarson og Steinar Birgisson skoruðu þrjú mörk hvor, Þorbergur Aðalsteins- son tvö mörk og Hilmar Sigurgíslason, Árni Indriðason og Guðmundur Guð- mundsson eitt hver. Leikurinn var fyrirhugaður á sunnu- dag, en þá komust rúmensku dómararnir sem áttu að dæma leikinn ekki til Prag og var honum því frestað. Síðari leikurinn er fyrirhugaður hér á landi næstkomandi sunnudag. Sh. ■ Haukur Geirmundsson sýndi sinn besta leik með KR í vetur gegn Nis. Hér skorar hann eitt marka sinna. Nánar um leikinn á næstu opnu. Tímamynd: EUa EUert B. Schram. Þriggja stiga reglan felld ■ TUIaga Valsmanna um að þrjú stig verði veitt fyrir sigur í deUda- keppninni í knattspyrnu var ekki samþykkt á ársþingi KSÍ um helgina. Þar með munu 2 stig vera látin nægja a.m.k. á næsta ári fyrir unnin leik. Mörg mál voru rædd á þinginu, sem stóð yfir í tvo daga. EUert B. Schram var endurkjörinn formaður KSÍ og með honum verða í stjórn Helgi Daníelsson, Friðjón B. Friðjónsson, Árni Þorgrímsson, sem aUir voru cndurkjörnir, en fyrir sátu í stjóminni sem ekki þurfti að greiða atkvæði um Gunnar Sigurðsson, Helgi Þorvaldsson og Gylfi Þórðar- son. Varamenn í stjóminni vom kjömir Sigurður Hannesson, Sveinn Sveinsson og Þór S. Ragnarsson. Ingólfur Jóns- son sigraði ■ Fyrsta skíðamót vetrarins var haldið á Miklatúni í Reykjavík á sunnudaginn. Það var Skíðafélag Reykjavíkur sem sá um framkvæmd mótsins. Þetta var göngumót og var keppt í flokknum karla og kvenna og gengu karlamir 10 km., en konurnar 6 km. Sigurvegari í karlaflokki varð Ingólfur Jónsson S.R., en hann gekk á 31:16 mín. í öðru sæti varð Haukur Eiríksson Akureyri, þriðji varð svo Garðar Sigurðsson S.R. og í fjórða sæti Ingþór bróðir Hauks, en þeir em bræður hins landskunna göngu- kappa Magnúsar Eiríkssonar frá Siglufirði. Guðbjörg Haraldsdóttir S.R. sigr- aði í kvennaflokki, Sigurbjörg Helga- dóttir varð önnur. I öldungaflokki keppti Tryggvi Halldórsson, en hann gekk 6 km., á 32,28 mín. sh Framarar höfðu betur í lokin Og sigruðu Þrótt 23:20 í 1. deild ■ Það var mikið um mistök á báða bóga í leik Þróttar og Fram í 1. deildinni í handbolta í gærkvöldi. Það vora þó Framarar sem höfðu betur í leiknum og er upp var staðið var staðan 23 mörk gegn 20 Fram í hag. í hálfleik var staðan Þrótti í hag, en er líða tók á síðari hálfleikinn komust Framarar yfir og héidu forystu aUt til loka. Fyrri hálfleikurinn var fremur sveiflu- kenndur. Framarar komust í 10-7, en rétt fyrir leikhlé var staðan 11-10 Þrótti í hag og þeir bættu öðru marki við. Síðustu mínútur leiksins voru sér- kennilegar. Bæði liðin gerðu ótrúlegan fjölda mistaka og mikilvægi leiksins var greinilega farið að setja mark sitt á hann. Þó keyrði út yfir allan þjófabálk síðustu tvær mínúturnar og lá við að fólk héldi að verið væri að aðhafast eitthvað allt annað en leika handknattleik. Þeir leikmenn sem stóðu uppúr í þessum leik hjá Fram voru Egill Jó- hannesson sem skoraði nokkur mjög góð mörk. Þá lék Sigurður Svavarsson vel, ekki bara í vörn heldur einnig í sókninni. Þá var Hinrik drjúgur á línunni. Hannes átti spretti, einkum undir lok leiksins. Sigurður varði mjög vel í markinu. Hjá Þrótti var Ólafur Benediktsson bestur í markinu og einnig var Gísli Óskarsson drjúgur. Mörkin: Fram: Egill 6, Sigurður Svavarsson, Hinrik og Hermann 4 hver, Hannes Leifsson 3, Björn og Erlendur eitt hvor. Þróttur: Páll 5, Gísli 5, Ólafur H, Magnús og Jens tvö hvor, Lárus Karl, Lárus Lár og Einar Sveinsson eitt mark hver. sh Þróttarar taplausir í 1. deild í blaki ■ Þróttarar eru í toppsætinu í 1. deildinni í blaki, en um helgina léku þeir gegn botnliði Víkings og sigruðu 3-0, 15-4, 15-4 og 15-7. Þetta er stærsti sigur Þróttara um skeið í blakinu. Stúdentar sigruðu UMSE 15-6, 15-9 og 15-11 og kræktu sér þar með í tvö stig. Síðasti leikurinn í 1. deild karla var á milli Víkinga og Eyfirðinga og höfðu Eyfirðingarnir betur, en ekki munaði miklu. Hrinurnar enduðu 15-7, 15-9 og í þeirri þriðju komust Eyfirðingar í 13-11, en töpuðu 13-15, 10-15 og í lokahrinunni var sem allur máttur væri úr Víkingum sem töpuðu 15-3. Þrír leikir fóru fram í fyrstu deild kvenna. ÍS sigraði KA 3-0, KA vann sinn fyrsta sigur í 1. deild 3-0 og loks sigraðu Þróttarastúlkurnar UBK 3-1. Akurnesingar gáfu loks leik sinn gegn Samhygð í 2. deild. 24 marka munur hjá Val og ÍR ■ Valsmenn lentu ekki í neinum erfiðleikum með ÍR-inga er liðin mættust í 1. deildinni í handbolta á sunnudaginn. Unnu þeir með ótrú- legum yfirburðum og er upp var staðið var markatalan 38 mörk gegn 14. Andstaða ÍR-inganna var því ekki mikil í þessum leik, en leikurinn þar á undan hafði geflð góða von um að eitthvað rofaði til hjá liðinu, en þá töpuðu þeir með aðeins fimm mörkum gegn íslandsmeisturam Víkings. Gunnar Lúðvíksson skoraði 8 mörk fyrir Val, en markahæstur í ÍR-liðinu var Atli Þorvaldsson með sex mörk. sh Stuttgart og Dusseldorf sigruðu ■ Fortuna Dusseldorf hefur tekið á rás upp á við á stigatöflunni í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu. Á laugardag sigraði Dusseldorf Armen- ia Bieldfeld með tveimur mörkum gegn engu, en Atli Eðvaldsson var ekki í hópi markaskorara að þessu sinni. Stuttgart vann góðan sigur á Köin með tveimur mörkum gegn einu og komst Stuttgart í 2-0 áður en Kölnar- menn komust á blað. Allgöwer skoraði bæði mörk Stuttgart ■ fyrri hálfleik, en það var Klaus Allofs sem náði að bæta stöðu þeirra í þeim síðari. Hamborg sigraði Dortmund, sem átt hafa miklu gengi að fagna með þremur mörkum gegn einu. Hra- besch skoraði tvö af mörkum Ham- borgar og lék mjög vel. Þá má geta þess að Kaiserslautem skoraði þrjú mörk gegn engu á móti Gladbach. Þar af skoraði Torbjöm Nielsson mark eftir að Allofs hafði skorað fyrsta markið. Þriðja markið skoraði síðan Kitzmann, ff Hann lék mjög vel” sagöi Mc Enroe um Björn Borg ■ „Haldi hann áfram að spUa svona, em þeir ekki margir sem geta sigrað hann,“ sagði John McEnroe um keppinaut sinn á tennismóti i Antwerpen í Belgíu um helgina. Þeir kapparnir léku í undanúrslitum og sigraði McEnroe, en hann varð að hafa fyrir þeim sigri. „Hann lék mjög vel,“ sagði McEnroe um Borg, en Björn er um þessar mundir að hefja keppni að nýju eftir árs hvfld frá keppni. Viðureign þessara heimsþekktu kappa lauk með 2-6, 6-4 og 6-3. Sigraði Svíinn þar með í einni lotu en Bandaríkjamaðurinn í tveimur. VINNUR KR NKflFlllR? — Liðin leika kl. 20.00 íkvöld ■ Frábær frammistaða KR-inga í fyrsta Evrópuleik félagsins í hand- knattleik á sunnudagskvöldið kom skemmtilega á óvart. Menn gerðu sér raunar vonir um góð úrslit, en enginn lét sig dreyma um aðra eins franunistöðu og raun bar vitni. En liðið hefur nú fímm mörk í forskot og í kvöld er að duga eða drepast. Þeir leika síðari leikinn gegn Júgóslövunum í Höllinni klukkan 20.00 og vist er að Slavarnir mæta til leiks eins og öskrandi Ijón. Þeir gera sig áreiðanlega ekki ánægða með annað en góðan sigur og munu berjast af fuUum krafti. Hið sama munu KR-ingar gera. Þeir munu verja fenginn hlut og stefna að því að verða meðal liðanna í pottinum þegar dregið verður í 3. umferð. Það var samdóma áUt allra leik- manna KR að hlutur áhorfenda í fyrri leiknum hefði skipt miklu máli og það sama mun áreiðanlega verða upp á teningnum í kvöld. Þess vegna er ástæða tíl að hvetja alla handknatt- leiksáhugamenn til að mæta í Höllina og bvetja KR tfl siguxs.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.