Tíminn - 12.12.1982, Blaðsíða 27

Tíminn - 12.12.1982, Blaðsíða 27
SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 27 Velkomin í tölvudeild APPLE AÐALSMERKIÐ í TÖLVUHEIMINUM APPLE er kjarni einkatölvukerfis sem er hannað til þess að fást við meiri háttar verkefni á sviði viðskipta, fjármála og ritvinnslu á hraðvirkan hátt. APPLE tölvan er fyrirferðarlítil og kemst hæglega fyrir á skrifborði. Sérstaklega hannað innsláttarborð með sjálfvirkri endurtekningu á hverjum lykli og aðgreindu lyklaborði fyrir tölvur gera vélina sérlega þægilega í notkun og hagræðið er enn meira vegna sérhæfðra lykla, sem flýtir mjög fyrir við alla vinnslu á vélinni. Tölvan er með innbyggðri diskettustöð og eigið minni vélarinnar er 256 K, eða 262 þúsund stafir eða tákn. Afar fullkomið stýrikerfi (SOS) er notað á APPLE. Þetta stýrikerfi gerir kleift að finna og lesa upplýsingar á mjög hraðvirkan og öruggan hátt, og koma kostir þessa kerfis einkar vel í ljós þegar notaður er PROFILE harður diskur þar sem um getur verið að ræða hundruð gagnaskráa sem lesa þarf, flokka og raða. PROFILE er harður „Winchester" diskur með 5 mb, eða vel yfir 5 milljón stafa geymslurými. Með PROFILE er auðveldara en áður að fást við gagnavinnslu og kerfið er 10 sinnum fljótara að finna og lesa upplýsingar en hefðbundin diskettudrif. PROFILE veitir ennfremur aukið öryggi hvað varðar geymslu ganga, en stýrikerfið fylgist sjálfvirkt með ýmsum hugsanlegum villum og færir upplýsingar á öruggan stað á disknum ef með þarf. Ef miðað er við geymslurými, er PROFILE afar ódýrt á einingu og tækið er mjög öruggt 1 rekstri enda hannað til þess að þola mikla og langvarandi notkun. VERÐ: APPLE III án PROFILE kostar nú kr. 82.780.00. Innifalið í því verði er 12“ tölvuskjár, APPLE WRITER ritvinnsluforrit og VISICALC. Auk þess fylgja vélinni svonefnd SYSTEM UTILITIES, en það eru hjálparforrit til breytinga og aðlögunar á stýrikerfi. Með PROFILE kostar APPLE kr. 132.470.00 og eru þá innifalin ofangreind forrit. Greiðsluskilmálar eru 25% útborgun og eftirstöðvar á 6 mánuðum. Afgreiðslufrestur er 2 til 3 dagar, enda eru tölvurnar nær alltaf á lager hjá okkur. VELKOMIN í TÖLVUDEILD Skipholti 19 sími 29800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.