Tíminn - 14.12.1982, Blaðsíða 1
Dýr mundi Hjörleifur allur — bls. 9
Samkomulag milli Alþýðubandalags og stjórnarandstöðunnar í kjördæmamálinu?
„SliKT SAMKOMULAG TVÍMÆLA-
LAUST STJÖRNflRSUTflflTRIÐI”
— segir Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra
■ „Það er auðvitað kominn grund-
völlur að nýrri stjóm ef Alþýðubanda-
lagið og stjórnarandstaðan koma sér
saman um kjördæmamálið. Slíkt væri
tvímælalaust stjórnarslitaatriði, og þá
ættu þessir nvju samstarfsaðilar að taka
við,“ sagði Olafur Jóhannesson, utan-
ríkisráðherra í samtali við Tímann í gær,
en Ólafur flutti í gærkveldi erindi á
Hótel Heklu um kjördæmamálið, en
fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í
Reykjavík stóð fyrir þeim fundi.
„Mér er kunnugt um þær viðræður sem
Alþýðubandalagið hefur átt við stjórnar-
andstöðuna um kjördæmamálið, og ég
tel það fáránlegt að samstarfsflokkur í
ríkisstjórn fari að setjast á bekk með
stjórnarandstöðu og semja um þessi
mál,“ sagði utanríkisráðherra.
Ólafur sagði jafnframt: „Ég tel að um
tvær leiðir sé að velja í kjördæmamálinu
til þess að jafna vægi atkvæða, þannig
að svipað vægi komist á og var 1959.
• Annars vegar er um niðurskurð á
þingmönnum í kjördæmum að ræða, og
hins vegar um fjölgun þingmanna
Ég hef verið og er eindregið inni
á fjölgun þingmanna." Aðspurður um
það hversu mikil hann teldi að þing-
mannafjölgunin ætti að vera sagði utan-
ríkisráðherra: „Það er algjört aukaatriði
hve mikil fjölgunin verður. Það skiptir
ekki máli hvort þeir verða þrir eða
fimm, heldur að fallist verði á prinsippið
að fjölga." - AB
Áfengisdrykkja unglinga
margfaldast:
FJÖROUNGUR-
INN NEVTIR
BRENNIVfNS
VIKULEGA
— eda oftar, eftir að þeir
ná 15 ára aldri
■ Árið 1980 kváðust 28 af hverjum 100 fímmtán ára drengjum í Reykjavík
drekka áfengi vikulega eða oftar og 26 af 100 stúlkum á sama aldri, samkvæmt
könnun cr gerð var af Guðrúnu Ragnarsdóttur Briem, þjóðfélagshagfræðingi
það ár. Er þetta mjög mikil aukning frá árinu 1972 er engin stúlka á þessum
aldrei sagðist drekka áfengi svo oft og aðeins 8 af hvcrjum 100 piltum,
samkvæmt því er frant kemur í grein eftir Hildigunni Ólafsdóttur
afbrotafræðing í nýjasta hefti Geðvemdar.
Sé litið á tölu þeirra 15 ára unglinga
er segjast drekka ntánaðarlcga eða
oftar var það 61 af hverjum HK)
stúlkum árið 1980 á móti 22 árið 1972
og 53 af hverjum 100 strákum 1980 á
.rnóti 21 í cldri könnuninni.
Af 17 ára stúikum kváðust nú 68 af
100 drekka mánaðarlega eða oftar, þar
af 24 a.m.k. vikulega á möti alls 27,
þar af 4 vikulega eða oftar, í eldri
könnuninni. Af piltunum kváðust 85
af hverjum 100 drekka mánaðarlcga
eða oftar, þar af 35 a.m.k. vikulega, í
síðari könnuninni á möti alls 45 af 100
og, þar af 16 vikulegajeða oftar, í þeirri
eldri.
Að sögn Hildigunnar var samkvæmt
báðum könnununum algengast að
unglingar drekki áfengi á heimilum,
þ.c. öðrum en foreldraheimilum
sínum. Mjög fáir drekka í viðurvist
forcldra sinna heldur í félagsskap
annarra unglinga. Áfengisneysla
þcirra mótist því af neysluvenjum
félaganna frcmuren foreldranna. Hins
vegar töldu mun fleiri ungling-
anna í síðari könnuninni að foreldram-
ir vissu af því að þeir neyttu áfengis,
eða um 69% í nýrri könnuninni á möti
54% í þeirri eldri.
Hina auknu áfengisneyslu telur
Hildigunnur geta leitt til enn frekari
aukningar. Því fleiri scm drekki, þeim
mun meiri hvati og þrýstingur á aðra
að gera það líka.
- HEl
■ „Jóla hvaðl, Það þýðir nó ekkert að snúa út úr gamli minn. Það stendur svart á hvítu í umferðarlögunum að það
mega ekki vera fleiri en fimm í fimm manna bfl og það þýðir ekkert að skeggræða þetta frekar". Þannig hefði þetta
ímyndaða samtal milli jólasveinsins og lögreglumannanna getað verið, en sem betur fer fóru laganna verðir mildum höndum
um jólasveinana þrettán sem brugðu sér í bæjarferð um heigina. Sjá nánar frétt og myndir á bls. 4.
Tímamynd Róbert
Nokkrir tugir skartgripa finnast við Nauthólsvík:
„SJÁLFSAGT ÞÝFI”
segir Guðmundur Hermannsson yfirlögregluþjónn
■ Nokkrir tugir skartgripa, aðallega
hringir, fundust við veginn hjá Nauthóls-
vík á sunnudagskvöldið. Maður er átti
leið þar hjá sá glampa á eitthvað við
veginn og við nánari athugun kom í Ijós
að þetta voru skartgripir. Lögreglan var
kvödd til en ekki fundust fleiri gripir við
nánari leit.
„Við fundum ekki fleira, en sjálfsagt
er um þýfi að ræða“ sagði Guðmundur
Hermannsson yfirlögregluþjónn í sam-
tali við Tímann. Hann sagði ennfremur
að gripirnir hefðu ekki verið hrímaðir er
þeir fundust og benti það til að þeir
hefðu verið nýtilkomnir á þennan stað.
Að öðru leyti vísaði hann málinu til
Rannsóknarlögreglunnar en ekki feng-
ust nánari upplýsingar þar um málið og
ekki upplýst hvaðan þessir gripir væru
komnir.
- FRl